Tíminn - 19.12.1976, Síða 2
2
Sunnudagur 19. desember 1976
Tíu
þorskastrið
1415-1976
Eftir prófessor Björn
Þorsteinsson
sagnfræðing, fæst
nú hjá flestum
bóksölum.
SÖGUFÉLAG
Skartgripa-
skrín
Gott úrval.
Póstsendi
Magnús E. Baldvinsson,
Laugavegi 8- sími 22804.
^prnillf
* ,W»W\\muWfc
Dönsku leirvörurnar
( úrvall
Auglýsið í Tímanum
borgarmál
Lítið gert úr starfi hinna frjálsu félaga:
Bryddað upp á mörgum nýjung-
um í skóla- og æskulýðsstarf-
semi í nefndaráliti, sem lagt
hefur verið fram í borgarstjórn
A fundi borgarstjórnar I fyrra-
dag var dreift áliti samstarfs-
nefndar fræösluráös og æskulýös-
ráös, þar sem fjallaö er um tóm-
stundastörf og skemmtanir barna
og unglinga i borginni. 1 áliti
þessu cr bryddað upp á mörgum
nýjungum i skóla- og æskulýðs-
starfsemi i Reykjavik, en athygli
vekur, hve hinum frjálsu félög-
um, t.d. iþróttafélögum, skáta-
félögum og öörum samtökum
ungs fólks er ætlað litiö hlutverk i
þessu starfi.
Fer hér á eftir útdráttur úr
álitsgerðinni:
„1 októbermánuöi 1976 var
skipuð nefnd, sem i áttu sæti þrir
fulltrúar frá fræðsluráði og þrir
frá æskulýðsráðu. Að ósk æsku-
lýðsráðs skyldi nefndin kanna,
hvort ekki beri að stefna að þvi,
að unglingar á skyldunámsstigi
þurfi ekki að sækja skemmtanir
út fyrir skólahverfi sitt. Nefndin
sat fund skólastjóra og fræðslu-
ráös borgarinnar hinn 11. október
sl., þar sem miklar umræður urðu
um þetta efni.
Samkvæmt upplýsingum for-
ráðamanna skólanna er mikið
framboð á tómstundastarfi i efstu
bekkjum skyldunámsskólanna
(skóladansleikir, plötukvöld,
bekkjakvöld, skólahljómsveitir,
diskótek, tafl, spil, tennis, snyrt-
ing, ljósmyndun o.s.frv.), þó
nokkuð sé það misjafnt eftir skól-
um. Varla er bætandi við fimm
daga vinnuviku skólanemenda,
enda gjarnan sömu áhugasömu
nemendurnir, er sinna hvers kon-
ar framboði á tómstundastarfi og
skemmtunum meiri fyrri hluta
vetrar en eftir áramót. Töluvert
af þessu starfi fer fram á tóm-
stundanámskeiðum þeim, er
æskulýðsráð heldur i samvinnu
við skólana. Auk þess er svo hluti
nemenda i margs konar störfum
utan skóla, svo sem tónlistar- og
dansnámi, myndlistarnámi,
iþróttastarfi o.fl. v
Nefndin leggur til aö allt fram-
boð opinberra aðila á tómstunda-
starfi fyrir börn og unglinga á
grunnskólaaldri verði veitt i
heimahverfi þeirra (skólahverfi),
svo fremi að eðli framboðs geri
ekki annað fyrirkomulag sjálf-
sagt (s.s. siglingar, skólagarðar
og skiðaferöir).
Skulu nú raktir þættir þeir,
-----------------------------\
Texas Instruments
TIL JÓLAGJAFA
Mikið úrval
HAGSTÆTT VERÐ
DÓRf
SÍMI 81500’ÁHMÚLAII
sem nefndin telur brýnasta þörf
að lögð sé áherzla á.
1. Rétt þykir að framboð á tóm-
stundastarfi færist neðar i ald-
ursflokka, hefjist i 10 ára
bekkjum og þróist áfram,
þannig aö nemendur megi und-
ir leiðsögn læra að nýta tóm-
stundir og þjálfast i stjórnun og
ábyrgð, i þvi skyni að efla fé-
lagsþroska þeirra.
2. Þar sem mestur áhugi og þörf
virðist vera hjá unglingunum
fyrir samkomuhald i vikulok,
leggur nefndin rika áherzlu á
að opiö hús og dansskemmtanir
verði á föstudags- eða laugar-
dagskvöldum, eins og nú er i
ýmsum skólum og hefur gefizt
vel.
3. Mikill áhugi virðist vera á þvi
að koma á meira samstarfi
milli nemenda, skóla og for-
eldra um tómstundaiðju.
Nefndin leggur þvi til, að reynt
verði aö koma á einhvers konar
frjálsu starfi i skólunum sjálf-
um, t.d. á laugardögum, sið-
degis eöa að kvöldi, sem for-
eldrar og e.t.v. fleiri ibúar
hverfanna geta tekiö þátt i.
4. Þá mælir nefndin með þvi aö
könnun verði gerö á nýtingu
skólahúsnæðis um helgar og
frjálsum félögum i hverfunum
veitt húsnæðisaðstaöa á sunnu-
dögum, eftir þvi sem frekast er
kostur, og að skólahúsin veröi
jafnframt nýtt að sumrinu til
æskulýðsstarfs.
5. Nefndin bendir á, aö állt tóm-
stunda- og skemmtanastarf i
skólunum þarf að vera i fullri
samvinnu við nemendur sjálfa.
Mælt er með þeirri tilhögun,
sem i sumum skólum er þegar
tekin upp, að nemendur kjósi
sér fulltrúa á haustin, sem
undirbúi með kennurum og
e.t.v. foreldrum, fasta dagskrá
fyrir hálfan veturinn i einu”.
Elin Pálmadóttir (S) kynnti
álitsgerðina, en siðan tók til máls
PállGislason (S).Fann hann áliti
samstarfsnefndarinnar flest til
foráttu og kvað það minna sig á
sambærileg plögg frá Póllandi,
þar sem ævi barna og unglinga
væri i stórum dráttum skipulögð
fyrirfram. Sérstaklega fann Páll
að því, hve nefndin ætlaöi hinum
frjálsu félögum rýran hlut i æsku-
lýðsstarfinu.
Adda Bára Sigfúsdóttir (Abl)
kvaðst fagna þvi, að nefndarálitið
liti dagsins ljós. Sagði hún það
byggt upp I anda sósialisma og
þar af leiðandi væri það til fyrir-
myndar.
Guðmundur Magnússon (Afl)
vildi stórauka félagslif i skólum
borgarinnar, ekki aðeins um
helgar, heldur einnig i sjálfu
skólastarfinu. Þá sagði hann, að
efla bæri hina frjálsu félagastarf-
semi.
Alfreö Þorsteinsson (F) sagðist
sammála Páli Gislasyni. Taldi
Alfreð nefndarálitið byggt á
þeirri stefnu — sem bæði Alþýðu-
bandalagið og Sjálfstæöisflokkur-
inn virtust aðhyllast — að menn
ættu að lifa og hrær'ast i einhverj-
um skipulögðum stofnunum frá
vöggu til grafar.
Alfreð vék einnig að ofvexti
æskulýðsráðs borgarinnar. Sagði
hann, að til þess rynnu nú 100
millj. króna á ári, meöan 2-3
millj. kæmu i hlut Æskulýðsráðs
rikisins.
Þá var borin upp svohljóðandi
tillaga þeirra Davíðs Oddssonar
(S) og Ragnars Júliussonar (S):
Borgarstjórn ályktar, að æski-
legt sé, að skólamannvirki i öllum
hverfum borgarinnar nýtist til al-
hliða félagslegrar starfsemi.
Samþykkir borgarstjórn að fela
fræðsluráöi og æskulýðsráði, að
höfðu samráði við skólastjóra og
menntamálaráðuneytið, að gera
tillögur um hvernig nýta megi nú-
verandi húsnæði skólanna til fé-
lagsstarfsemi nemenda, annarra
unglinga og alls almennings i hin-
um einstöku borgarhverfum. Þá
skal kanna, hvort æskilegt sé að
lita sérstaklega til þessara þarfa
við hönnun nýrra skóla, og þá
hvort breytingar þurfi að gera, til
þess að skólahúsnæðið nýtist sem
bezt fyrir félagsstarfsemi nem--
enda og almennings.
Tillagan var samþykkt eftir
nokkrar umræöur með 12 sam-
hljóða atkvæðum. et
Stefán Stefánsson, forseti
Þjóðræknisfélagsins i Vestur-
heimi, og Olla kona hans, og
Kristján Arnason, forseti
tslendingadagsins og Marjo-
rie, kona hans, sem voru hér á
tslandi i sumar með hóp af
Vestur-tslcndingum, hafa
beðið blaöið að óska öllum
frændum og vinum hér á landi
gleðilegra jóla og farsæls nýs
árs og þakka ógleymanlegar
móttökur á liðnu sumri.