Tíminn - 19.12.1976, Síða 3

Tíminn - 19.12.1976, Síða 3
Sunnudagur 19. desember 1976 3 SAMYINrSUTRYGGIINGAR GT. ÁRMÚLA 3. SÍMI 38500 | HEIMILI: IMFERDARKORTID ham„Jóns gmnna-gerðu svo i eí: Nú getur fjölskylda þín æft sig í umferðarreglum heima á stofuborði. Umferðarkortið hans „Jóns granna“ fœst nú á skrifstofu okkar, hjá umboðsmönnum og í ýmsum verslunum gegn 2oo króna gjaldi. OG ekki baraþað! íþví skyni að örva alla til leiks höfum við samið ákveðið verkefni til að spreyta sig á. Lausnir eiga að berast skrifstofu okkar fyrir 1. mars 1977. Dregið verður úr réttum lausnum og veitt ein verðlaun: A th. Umferðarkortið er 138 am langt og í fjórum litum. Á því eru umferðarmerki og fleiri leiðbeiningar. Þessari • mynd er einungis œtlað að sýna merkingar vegna verðlauna verkefnisins. Verkefnið. Katrín, kona Jóns granna, ekur manni sínum í vinnunaað morgni dags. Hús þeirra er merkt A. Fyrst faraþaueinn hring austur í bæ,austur fyrir barnaheimilið, til að njóta sólaruppkomunnar. Svo er ekið um hringtorgið að pósthúsinu (merkt B). Þar er stansað og Jón skreppur inn að sækja póstinn sinn í pósthólfið. Því næst ekur Katrín áfram út úr einstefnugötunni, beygir inn á aðalbrautina til vinstri og heldur til hljóðfæraverslunarinnar, en þar vinnur Jón (sbr. „Og hann býr til fegurstu fíólín“). Að lokum ekur Katrín um hringtorgið, heim til sin. Þeir kaflar leiðarinnar.sem athuga á, eru merktir inn á kortið hér til hliðar. Umferðarkorti þessu er ætlað að uera „þroskaleikfang“ í umferðarmenningu. Þekking á umferðarlögum og-reglum getur forðað þér, og þínum, frá slysi í umferðinni. Af þeirri ástæðu er til þessa leiks stofnað. Geymið lýsingu verkefnisins. Hún gildir áfram til 1. mars nk. Klippið svarseðilinn frá og sendið okkur hann í umslagi merkt: Samvinnutryggingar g.t. Ármúla 3 Reykjavik (Æfing i umferðarreglum). Fleiri svarseðlar verða birtir, einir sér, á tímabilinu. Dómnefnd skipa: Guðni Karlsson, forstöðumaður Bifreiðaeftirlits ríkisins. Sigurður Ágústsson, fulltrúi Umferðarráðs. Sturla Þórðarson, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. Ath.: Öllum er heimil þátttaka. Fyigjum reglum, forðumst slys. r SVARSEÐILL 1,1 já nei □ □ 3,1 já nei □ □ 5,la) já nei □ □ 7,la) já nei □ □ 1,2 □ □ 3,2 □ □ b) □ □ b) □ □ 1 1,3 □ □ 3,3 □ □ c) □ □ 7,2a) □ □ 1 1>4 □ □ 5,2a) □ □ b) □ □ 1 l,5a) □ □ 4,1 □ □ b) □ □ 7,3a) □ □ b) □ □ 4,2a) □ □ 5,3a) □ □ b) □ □ 1 b) □ □ b) □ □ 1 2,1 □ □ 4,3 □ □ 1 2,2 □ □ 4,4a) □ □ 6,la) □ □ „ | 2’3a> □ □ b) □ □ b) □ □ 3, b) □ □ 4,5a) □ □ 1 b) □ □ NAFN ÞÁTTTAKANDA: Kanaríeyjaferð með Samvinnu- ferðum fyrir þrjá, að verðmœti kr. 255.000.- Þátttaka fjölskyldunnar. Verðlaunin eru Kanaríeyjaferð fyrir þrjá uegna þess að Samuinnutryggingar uonast til að allir meðlimir huerrar fjölskyldu sameinist um að leysa þrautina og sendi suo inn ráðningu huer fyrir sig. Hér koma spurningarnar. (Atriði eru hverju sinni talin upp í þeirri röð sem þau koma fyrir á leið Katrínar). Á leið frá 1 til la. 1, 1 Ber Katrínu að gefa stefnumerki? 1, 2 Má hún aka hiklaust inn á umferðargötuna? 1, 3 Ber henni að víkja fyrir akandi umferð frá báðum hliðum? 1, 4 Má hún aka yfir varúðarlínuna? 1, 5 Heitir breiða, brotna línan á móts við biðskyldu- merkið: a) Varúðarlína? b) Markalína? Á leið frá 2 til 2a. 2, 1 Er gangandi vegfaranda skylt að taka tillit til akandi umferðar sem nálgast, sé hann á merktri gangbraut? 2, 2 Er bláa gangbrautarmerkið leiðbeiningar- merki? 2, 3 Sé gangandi vegfarandi á gangbrautinni, eða í þann veginn áð fara út á hana, hvort er þá öruggara að Katrín stöðvi bílinn: a) Við gangbrautina? b) 10 metra frá henni? Á leið frá 3 til 3a. 3, 1 Má Katrín aka hiklaust inn á hringtorgið? 3, 2 Ber henni að víkja fyrir X bílnum sem nálgast frá vinstri? 3, 3 Er rétt, miðað við ökuleið hennar, að hún velji vinstri akrein á hringtorginu? Á leið frá 4 til 4a. 4, 1 Hefur bíll Katrínar forgang fyrir Y bílnum? 4, 2 Nú komum við að gildru á kortinu. Framundan er merki, sem ekki má vera þama, miðað við aðrar merkingar. Er það: a) Aðalbrautarmerkið? b) Tímatakmarkað stöðuleyfi? 4, 3 MáKatrínleggjaökutækifyrirframanháhýsið? 4, 4 Hvor á forgang: a) Gangandi maðurinn sem stigið hefur út á gangbrautina? b) Katrín sem er að beygja til hægri? 4, 5 Á Katrín að stöðva bílinn: a) Vinstra megin í einstefnugötunni? b) Hægra megin í einstefnugötunni? Á leið frá 5 til 5a. 5, 1 Hvað af eftirfarandi þarf Katrín að hafá í huga áður en hún ekur af stað aftur firá akbrautar- brún: a) Gá að umferðinni? b) Gefa stefnumerki til hægri? c) Gefa stefnumerki til vinstri? 5, 2 Hvar á bíllinn að vera þegar hún kemur að gatnamótunum: a) Hægra megin í götunni? b) Vinstra megin í götunni? 5, 3 Hvar á hún að stöðva bílinn: a) Framendi bíls við stöðvunarlínuna? b) Framan við línuna, svo að hún sjái betur inn á aðalbrautina? Á leið frá 6 til 6a. 6, 1 Hvort er réttara að Katrín gefi stefnumerki: a) Einni bíllengd áður en hún ekur til vinstri? b) 5-6bíllengdum áður en hún ekur til vinstri? Á leið frá 7 til 7a. 7, 1 Er biðskyldumerkið: a) Aðvörunarmerki? b) Bannmerki?- 7, 2 Hvora akreinina ætti Katrín að velja, miðað við leið hennar um hringtorgið: a) Hægri akrein? b) Vinstri akrein? 7, 3 Hvaða greinar umferðarlaga væri gott að hafa í huga þegar ekið er út úr hringtorgi og Z billinn er á hægri akrein: a) 26. gr. og 37. gr.? b) 4. gr. og 28. gr.? Athugið að svara ávallt öllum liðum 8purninganna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.