Tíminn - 19.12.1976, Qupperneq 5

Tíminn - 19.12.1976, Qupperneq 5
Sunnudagur 19. desember 1976 5 Heilsurækt Mörgum aðferðum er beitt til að reyna að halda likam- anum ungum og sjúkdómum i fjarlægð. Japanir beita ýmsum aðferðum, sem okk- ur koma undarlega fyrir sjónir, en kannske getum við eitthvað af þeim lært. Hér koma nokkur sýnishorn: 1) Þessi náungi er 71 árs, þó að varla megi merkja það. Fyrir 33 árum hóf hann sjálfsnudd, fyrst með þvotta- stykki, siðan með skrúbb, og nú er svo komið, að virburst- inn, sem hann notar venju- iega til að rifa mótorhjólið sitt, er orðinn hans eftir- lætisnuddtæki. Segir karlinn að þessu mikla heislubót, honum hafi ekki orðið mis- dægurt siðan hann hóf nudd- ið, og ekki er það verra, að hann er alveg laus við ásækni skordýra og bit þeirra, þar eð þau vipna ekki á húð hans. 2) Hér er sýnd lækningaað- ferð gegn nýrnasjúkdómum, sykursýki, magakvillum og ófrjósemi! Aðferðin felst i þvi að pota i kviðinn i 10 min- útur samfieytt daglega. Ým- ist er það gert með berum höndum, eða með priki. Æfð- ir potarar eru i miklum met- um i Japan. 3) Hér sjáum við aðferð, sem á að lækna gikt og kvef. Kannske ættum við að reyna hana núna, þegar margir þjást einmitt af þessum kvillum. Deigt handklæði er lagt á veila staðinn, þar á er sett hrúga af sýpruslaufum (kannski má notast við ein- hverja aðra viðartegund), þar út á er hellt blöndu af alkóhóli og lækningajurtum og siðan kveikt i öllu saman. Vissara hlýtur að vera að hafa vatn við höndina ef eld- urinn breiddist út. 4) Tómatabað, er sagt vera hollt gegn magakvillum og °9 manna mein hreinlega til hressingar. Uppskriftin er sú, að kreista beri safann úr 10 tómötum úti baðvatnið (i staðinn má nota niðursoðinn tómata- safa, og er þá reiknað með 2 stórum dósum) 1-2 minútum áður en farið er i baðið, og eftir baðið er siðan 10 min- útna nudd. 5) Ertu i sifelldri vöðva- spennu? Þá ættirðu kannske að reyna þessa aðferð. Fáðu 'þér flugbeitt sverð, eða sveðju, og strjúktu egginni varlega eftir húðinni. öðru hverju máttu gefa smá högg með blaðinu flötu. Þetta ku vera gamalreynd aðferð, sem „samurai,” japanskir hermenn á miðöldum, við- höfðu til að hressa sig eftir hafa verið brynjuklæddir i bardögum. 6) Þessi náungi stendur á höfði og drekkur vatn úr glasi með röri á meðan, þrisvar á dag. Segir hann þetta vera hollt fyrir heila- starfsemina og blóðrásina.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.