Tíminn - 19.12.1976, Síða 6

Tíminn - 19.12.1976, Síða 6
6 Sunnudagur 19. desember 1976 Haukagil i Hvitársiðu 1884 Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga 153 Frá Sámsstöðum. Heybinding um 1930 Sámsstaðir i Hvitársiðu. Byggt um aldamótin 31. október sl. var birt mynd af bænum og fólkinu á ffaukagili i Hvitársiðu. Sigurður Jónsson frá Haukagili og Ragnar Ólafs- son hafa gefið upplýsingar þær er nii fylgja um heimilisfólkið á Haukagili árið 1884. Myndina tók Sigfús Ey- mundsson ljósmyndari súmarið 1884 og er hún fágætur merkis- gripur, þvi frá þeim tima eru mjög fáar myndir til af sveita- bæjum, og ekki siður fyrir þaö, að allt fólkið þekkist, sem er á myndinni. Talið frá vinstri: Sólveig kona ljósmyndarans en hún var systir Daniels Daniels- sonar dyravaröar i stjórnarráö- inu. Ingibjörg Arnadóttir Geirsson- ar Vidalin húsfreyja. Sigurður Jónsson bóndi á Haukagili i nær fjörutiu ár, söðlasmiður og oddviti i mörg ár, söngmaöur góður og eignað- ist fyrsta orgel i Borgarfirði. Sigurður var sonur Jóns prests Benediktssonar á Svalbarði i Þistilfirði og Guðrúnar Korts- dóttur frá Möðruvöllum i Kjós. Margrét Helgadóttir. Foreldrar hennar voru Helgi Böðvarsson og Guðrún Sveinsdóttir á Háa- felli, Bæ. IV bls. 328. Bróðir hennar var Guðjón i Laxnesi faðir Halldórs Laxness. Mar- grét varð önnur kona Einars Ingjaldssonar formanns á Bakka á Akranesi en dó ung. Helgi faðir Margrétar þá kaupamaður á Haukagili, ann- ars vinnumaður i Fljótstungu. Foreldrar hans voru Böðvar Jónsson og seinni kona hans Margrét Þorláksdóttir. Pétur Illugason kaupamaður, kallaður Pétur stóri eða Pétur sterkiættaður af Seltjarnarnesi. Um hann er minnst vitað. Jón Sveinsson ráðsmaöur, hann annaðist fjárhirðingu og þótti frábær við það starf og einn þarfasti maður heimilisins og annálaður sem slikur. Bjarni sonur Jóns þá vinnumaö- ur á Haukagili Bæ. I 352. Þóra Guðmundsdóttir vinnu- kona, foreldrar hannar voru Guðmundur ólafsson skipa- smiðs Péturssonarog kona hans Kristin Jónsdóttir. Málfriður Benjaminsdóttir, hún sá um innanbæjarstörfin mjólkurvinnslu o.þ.h. Foreldrar hannar voru Benjamin Auðuns- son og Guöný Asmundsdóttir. Málfriöur var amma Sigurðar Jónssonar frystihússtjóra i Borgarnesi. Benjamin var bróð- ir Björns Blöndal sýslumanns Húnvetninga. Vigdis Jónsdóttir frá Norö- tungu, siðar kona Sigmundar Guðmundssonar i Görðum viö Akranes. Guðný Jónsdóttir kom átján ára að Haukagili og var þar alla ævi, og dó þar um sjötugt. Hún vann Haukagilsheimilinu af mikilli trúmennsku og dugnaði. Guðný var hálfsystir Grims Jónssonar sem úti varð 1883. Bæ III 80. (á myndina vantar Jón Sigurös- son siðar bónda á Haukagili). Sámsstaðir á Hvitársiðu hafa lengi verið þingstaður Hvitár- siðuhrepps. Hér er mynd af gamla Ibúðarhúsinu, en það var reist rétt eftir aldamótin 1900. Litum lika á heybindingu á Sámsstöðum, kringum 1930. Búið er aö velta bagganum og verið að gera lykkjurnar. Eftir að taka utan af. Ibúðarhúsið aö Neðranesi i Stafholtstungum var byggt um 1915. Frá Neðranesi um 1915

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.