Tíminn - 19.12.1976, Side 26

Tíminn - 19.12.1976, Side 26
26 Sunnudagur 19. desember 1976 NOKKUR UGLUR Fullvaxin ugla getur oröiö yfir sjötlu sentimetrar á hæö. Nær ekkert fer framhjá stórum augum hennar og afar næmri heyrn. ÞEGAR skyggja tekur, fer uglan á kreik. Hljóölaust svifur hún og fylgist náiö meö þvi, sem fram fer i kringum hana. Segja má, aö ekkert fari fram hjá stórum augum hennar. Smæstu mýs, sem skriöa á jöröinni, dúf- ur,krákur-og m.a.s. sjúkir refir geta ekki veriö óhultir fyrir henni. Bou bou, en þaö heitir uglan á latinu, getur oröiö vfir sjötiu sentimetrar á hæö og vænghaf hennar allt aö einn metri og áttatiu sentimetrar. Uglan gerir sig heimakomna næstum þvi hvarsem er. 1 eyði- mörkum jafnt sem I Himalaya- fjöllum, á Sikiley, Rússlandiog i Kina. Hér á landi hefur henni þó ekki fundizt lifvænlegt, þó að einstaka fugl slæöist hingaö ■éridrum og sinnum. 1 Þýzka- landi var i eina tiö mikiö af ugl- um, en hefur nú verið nær út- rýmt þar. Þetta varö uglan að þola vegna matgræöginnar. Henni þykja nefnilega ýmsir söngfuglar góöir, og dýravernd- unarmenn eru jafnan þeirrar skoöunar, aö söngfuglar séu æöri en fuglar, sem sú gáfa er ekki gefin. Uglan er einnig keppinautur viliibráöar veiöi- mannanna. Báöum þykja fasan- ar og kaninur einkar lostæt, og sér veiöimaðurinn þvi hag sinn i þvi aö losna viö ugluna. Þaö er ekki oft, sem menn sjá uglu bregöa fyrir. Hún fer fyrst á stjá eftir rökkur. Á daginn situr hún aðgeröarlaus, dormar og vonar þaö heitast, aö hún veröi ekki ónáöuö. Þaö kemur lika örsjaldan fyrir, þvi hún er ekki i þaö miklu uppáhaldi hjá hinum dýrunum, að þau leiti >haná sérstaklega uppi, — þau yita sem er, að þau eru flest á . matseöli hennar. En ef minni fuglar rekast á hana aö degi til, ráöast þeir aö henni með látum, þar til hún hypjar sig burt. Hún leitar sér þá ekki matar þar um slóöir þá nóttina. Meira aö segja dýr, sem lifa á svæöum, þar sem uglan hefur lengi veriö útdauö, óttast hana. Maður þarf aöeins aö likja eftir hljóði hennar u-hooo, þá verður uppi fóturog fit meöal fuglanna, og gefa þeir varúðarmerki um aö erkióvinurinn sé á næsta leiti. Uglur éta svo til allt, sem aö kjafti kemur: mýs, hamstra, rottur, ikorna, krákur, dúfur og af og til fisk. Ekki kippir hún sér upp viö það, þó að dýrin séu sjúk, og ræðst hún oft á sjúka refi eða héra. Uglan er liklega eini fuglinn, sem étur brodd- gelti. HUn fer þannig að þvi, aö hún klæðir hann fyrst úr brodd- feldinum og byrjar alltaf á höf ð- inu. A veiöum sinum svífur uglan algjörlega hljóölaust um.Væng- haf uglunnar getur orðiö allt aö einum metra og áttatiu senti- metrar. Rendur vængjanna eru settar fingeröum fjöörum, þannigaö enginnþytur myndast við flugiö. Það er næstum þvi ekkert, sem fer fram hjá stórum appel- sinugulum augum hennar sem, frábrugðið öðrum fuglum, er beint fram á viö. Sjónsviðið er auövitaö afar litiö, en á móti þvi vegur, aö hún getur snúið höfö- inu hundraö og áttatíu gráöur án þess aö blikna. Uglan sér skýrt I tuttugu sinnum minni birtu en maðurinn þarf til aö greina hluti. Mun betri en sjón uglunnar er heyrnin. Mjög langt er á milli eyrnaganganna I sveru höfðinu. Fuglinn getur greint nákvæm- lega mismuninn á milli fjar- lægðar þess hljóös, sem hann heyrir meö vinstra eyranu, og þvi hægra. Og út frá þessum mismun reiknar ugluheilinn ná-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.