Tíminn - 19.12.1976, Side 29

Tíminn - 19.12.1976, Side 29
Sunnudagur 19. desember 1976 ILWM 29 Ölvaður tannlæknir veldur dauða tveggja manna Dæmdur til að veita eldri borgurum ókeypis þjónustu Tannlæknir nokkur, sem und- ir áhrifum áfengis varö valdur að dauða tveggja ungmenna með gáleysislegum akstri, var fyrir skömmu dæmdur til aö gefa öldruðu fólki kost á ókeypis tannlæknisþjónustu, einn dag i viku i heilt ár. — Það er enginn vegur að viö getum lifgað þessar manneskj- urafturþótt viðvildum, — sagði dómarinn A1 Yencopal, er hann kvað upp þennan óvenjulega dóm yfir dr. Edgar Mays, — en ef til vill getum við notað hæfi- leika þina til góðs og gert eitt- hvaö gott úr þessum harmleik. Yencopal sagði að Mays, sem viðurkenndi að hafa óviljandi oröið valdur að manndrápi, gæti hafa hlotið allt að tiu ára fang- elsisvist, en bætti hann við, það ersvo mikill fjöldi af eldra fólki, sem þarf á tannlæknisaðstoð aö halda, en getur ekki veitt sér það vegna mjög takmarkaðra fjárráöa.Ogégvilaðþessu fólki sé hjálpaö. Mays samþykkti að eyða ein- um degi á viku i eitt ár við að veita hverjum þeim eldri borg- ara sem kæmi á stofuna til hans ókeypis þjónustu. Meira að segja skuldbatt hann sig til að útvega þeim ókeypis falskar tennur og góma. Samkvæmt út- reikningum hans getur þessi ókeypis læknisþjónusta verið þrjátiu og fimm þúsund dala viröi eftir áriö. Dómarinn sagði ennfremur, að Mays yrði að sjá um það að koma þvi á framfæri viö eldra fólk að það ætti kost á ókeypis tannlæknisþjónustu, meöal ann- acs með þvi aö senda út tilkynn- ingar á elliheimili i suöaustur- hluta Washington-borgar. Hann sagðist vilja sjá biðstofu Mays þéttsetna af eldra fólki einu sinni i viku og hann myndi sjálf- ur koma við hjá honum og kanna málin. Hann bannaði lika Mays að bragða áfengi á reynslutima sinum, sem er f jög- ur ár. Mays játaði að vera valdur að dauða Freds og Dicie Hanes, báðum tuttugu og sjö ára að aldri, en þau létust i mai slðast- liðnum, þegar bill hans lenti á bifhjóli sem þau voru á. „Það finnst engin mælistika, sem mælt getur hryggð skjól- stæðings mins og þá sekt sem á honum hvilir sem afleiöing af þessum atburði sagði lögfræð- ingur Mays réttinum. Misgjörð- ir hans voru ekki . gerðar af ásettu ráði. Hann mun bera merki þessa hörmulega atburð- ar þar til hann mætir skapara sinum.” Mays sjálfurhefur ekki viljað gefa neinar yfirlýsingar i sam- bandi við þennan sérstæða dóm En frú Rex Vaught, fram- kvæmdastjóri elliheimilis i borginni ræður sér ekki fyrir kæti. Þetta er dásamlegt segir hún. Við vitum öll aö kostnaður við tannlæknaþjónustu er allt of hár til að margir eldri borgarar i þjóðfélagi okkar geta veitt sér hana. Ég þakka Yencopal dóm- ara fyrir þennan visa dóm. (Þýtt J.B.) Mynd sú, sem fyigja átti greininni Söguleg mynd I mið- vikudagsbiaöi Timans, varö af vangá viðskila. Hún er af Bjarna M. Gislasyni, er hann flutti fyrirlestur þann, erhann nefndi Edda og Saga i danska útvarpið 1. nóvember 1938, en þar reifaöi hann fyrstur manna þá hugmynd, aö Danir færöu íslendingum aö gjöf þau fornbókmenntahandrit ís- lenzk, er varöveitt væru i dönskum söfnum. Til ömmu Ert þú í vandrœðum með hvað á að gefa? Cý f I eiginmannsins IfiSkð , ] ’ ginkonunnar . Ti ei Til pabba Til mömmu Líttu við hjá okkur. vörur fyrir alla — verð fyrir alla lEKK^ KRISMLL Laugaveg 15 sfmi 14320 Hí húk eftir Eiiúrúm Helgadóttiir Mta/ Mkam m Jðn OM og J6H Biarm Guðrún Helgadóttir íafahúsi í afahúsi Þetta er sagan um Tótu litlu, átta ára óvenju- lega bráðþroska telpu, og fólkið í afahúsi, mömmu hennar og pabba, systkini, afa og ömmu. Og á hinu leitinu er skólinn, þar sem margt þertil tíðinda, og fólkið í götunni. Sagan lýsir fjölþættu iðandi mannlífi, þar sem ekki skortir skemmtileg atvik né hnyttin tilsvör frem- ur en í fyrri bókum Guðrúnar. Báðar bækurnar um Jón Odd og Jón Bjama eru komnar út í nýjum útgáfum og fást nú aftur hjá bóksölum ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ c AUGLYSIÐ I TIMANUM J

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.