Tíminn - 19.12.1976, Page 35
Sunnudagur 19. desember 1976
35
Vinnuveitendasambandið
lýsir sig reiðubúið til
viðræðna um kjaramdlin
Timanum hefur borizt eftir-
farandi samþykkt fram-
kvæmdastjórnarfundar V.S.f.
— Fyrir rúmu ári, nokkru
áður en samningaumleitanir
aðila vinnumarkaðarins hófust,
gerði fram kvæmdast jórn
Vinnuveitendasambands Is-
lands sérstaka samþykkt, þar
sem sambandið lýsti sig reiðu-
búið til að hefja þá þegar
viöræður við verkalýðshreyf-
inguna og rikisstjómina um
ástand og horfur i efnahags- og
kjaramálum þjóðarinnar. Var
tekið fram i samþykkt Vinnu-
veitendasambandsins, aö miklu
varðaði, að sameinazt yrði um
samræmt átak i efnahags- og
kjaramálum, jafnframt þvi,
semsúskoðun varlátini ljós, að
heildarlausn yrði ekki við kom-
iö, nema með samvirku sam-
ráði og ákvörðunum aðila
vinnum.arkaðarins og rikis-
valdsins og mætti engan tima
missa i þeim efnum.
Framkvæmdastjórn Vinnu-
veitendasambands Islands vill
nú, 14 mánuðum siöar, itreka þá
stefnu, sem fólst i fyrrgreindri
ályktun, og lýsir yfir þvi, að
Vinnuveitendasambandið er
hvenær sem er reiöubúið að
hefja viðræður um þá skipan
kjaramála, sem taka skuli við
að gildistima núverandi samn-
inga útrunnum.
Þótt útlit sé fyrir, að umskipti
séu að verða til hins betra i
efnahagsmálum þjóðarinnar,
þá er langt i frá, að þjóðarskút-
an hafi rétt við. Verðbólgan
verður 25-30% á árinu 1976,
viðskiptahallinn er enn tæp 4%
af þjóðarframleiöslu og
greiöslubyröi erlendra skulda
er talin verða um 17% af út-
flutningstekjum á þessu ári og
gæti enn farið vaxandi á næstu
árum. Þá er á næsta ári i bezta
falli þess að vænta að halda
þeim viöskiptakjarabata, sem
fram er kominn. Og þrátt fyrir
hækkun útflutningsverðlags á
sjávarafuröum, hafa tilkostn-
aðarhækkanir innanlands og
utan verið slikar, aö Þjóðhags-
stofnun segir i nýútkomnu yfir-
liti sinu, „Úr þjóðarbúskapn-
um”, að það sé áhyggjuefni, að
lengra hafi verið gengiö i hækk-
un tekna i sjvarútvegi, en jafn-
vel hækkandi verölag afuröa
leyfi.
Nýjustu verðhækkanir freð-
fisks á Bandarikjamarkaði
skipta hér engum sköpum, þar
sem markaðshækkanir og
gengissig hafa ekki haft við inn-
lendum hækkunum og þvi komið
i hlut Verðjöfnunarsjóðs aö
tryggja frystihúsunum hærra
útflutningsverö fyrir fram-
leiðsluna en markaösverð hefur
gefiö tilefni til. Sjóðurinn er
tómur og mun þessi veröhækk-
un þvi öll ganga til aö jafna nú-
verandi halla hans, en ekki
renna til fiskvinnslunnar.
A nýafstöðnu þingi Alþýöu-
sambands íslands var gerð
ályktun, þar sem þvi er slegiö
föstu, að fullar efnahagslegar
forsendur séu nú fyrir hendi til
þess að stórbæta almenn launa-
kjör og að óhjákvæmilegt sé aö
hækka verkalaun mjög mikiö
þegar i næstu kjarasamningum.
Þessi samþykkt þingsins er
þeim mun merkilegri þar sem
Alþýðusambandsþing itrekaði
jafnframt þá grundvallarkröfu
að dregið verði úr verðbólgunni,
enda er fullyrt i ályktun þings-
ins að byrðunum af verðbólg-
unni sé sifellt velt af fullum
þunga yfir á heröar alþýðunnar.
Þvi miður verður ekki á þessu
sviði fremur en öörum bæði
sleppt og haldið. Það kann
engan veginn góðri lukku að
stýra að gera hvort tveggja i
senn að fordæma veröbölguna
og setja fram kaupkröfuhug-
myndir, sem verka myndu eins
og olia á verðbólgubálið.
Þjóðhagsstofnun bendir á það i
fyrrgreindu yfirliti sinu, að ef
von eigi að vera til þess að
draga úr hraöa veröbólgunnar á
næsta ári og koma jafnframt
stöðunni út á við i viðunandi
horf, þurfi að fara saman hóf-
legar tekjuákvarðanir um mitt
næsta ár og aðhald i útgjöldum
hins opinbera og lánveitingum.
Aðilar vinnumarkaðarins
verða að taka höndum saman
um að forða þjóðinni frá nýrri
ver ðbólguholskeflu vegna
þeirra skelfilegu afleiðinga,
sem af henni kynnu að hljótast.
Dalvík:
Fyrsta rakarastofan opnuð
gébé Rvik. — Nýlega opnaði Jón Baldvinsson rakarastofu aö Goöa-
braut 11 á Dalvik. Rakarastofan sem er hin glæsilegasta, mun vera sú
fyrsta sinnar tegundar á Dalvik, svo nú þurfa Dalvikingar ekki lengur
að fara inn á Akureyri til að losa sig við hárlubbann. Meðfylgjandi
mynd sýnir Jón Baldvinsson snoða einn fyrsta viðskiptavininn á hinni
nýju stofu.
sem heldur verðgildi sínu,
oggeturfært ágandanum veglegan
nappdrœttisvinning
_ _ Dregið 10 sinnum um 598 vinninga
að upphceð 20 milljónir króna, í fyrsta skipti 10. febriiar n.k.
HappdrætásskuJdabréfin em til solu nú. Þau fást í öílum
bönkum og sparisjóóum og kosta 2000 krvnur.
IÉI SEÐLABANKI ISLANDS