Fréttablaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 2
2 16. janúar 2006 MÁNUDAGUR Ódýr laserprentari Tilboð: kr. 9.900,- Verð áður: 16.900 Brother HL-2030 Fallega hannaður laserpren- tari. Fer vel á borði eða hillu. • Prentar 16 bls. á mínútu • 8 Mb minni • Upplausn 2400 × 600 dpi • Windows og MacOS • USB tengjanlegur • 250 bls. pappírsskúffa • Einföld uppsetning Brotherlasertæki eruöll með 3ja ára ábyrgð ANDLÁT Maðurinn sem lést í umferð- arslysi á Sæbraut í Reykjavík á föstudagsmorg- un hét Pétur Sig- urðsson. Pétur var tæp- lega sextugur kjötiðnaðarmað- ur og strætóbíl- stjóri, fæddur 27. janúar 1946. Hann var til heimilis að Geit- landi 8 í Reykjavík og lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin börn. ■ Pétur Sigurðsson vagnstjóri: Lést á föstudag í umferðarslysi PÉTUR SIGURÐSSON ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� BJÖRGUN Björgunarsveitir á Suð- urlandi urðu að fara eftir tveimur jeppum sem festust í óbyggðum í fyrrinótt. Um klukkan þrjú um nóttina brotnaði ís undan jeppa sem var við Gýgjarfoss norðan Kerlingafjalla og sat hann þar fastur. Ekki náðu förunautar að draga bílinn upp svo kallað var á björgunarsveitarmenn til aðstoðar sem náðu bílnum upp um morguninn. Á Haukadalsheiði festist svo annar jeppi en hann var öllu fyrr kominn til byggða. - jse Björgunarsveitir á Suðurlandi: Jeppar fastir í óbyggðum Bílvelta í Borgarfirði Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni þegar hún rann til á hálum veginum í Norðurárdal og valt. Slysið varð um klukkan tvö í gærdag. Ökumaður slapp ná teljandi meiðsla en bifreiðin er talsvert skemmd. Lögregla á eftir hrossum Lögreglan á Akranesi varð að smala hrossum sem hlaupið höfðu yfir grindahlið um klukk- an þrjú í gærdag og komist að veginum milli Akraness og Hvalfjarðarganga öku- mönnum til hrellingar. Að sögn lögreglu gekk vel að koma hrossunum fyrir innan girðingar. LÖGREGLUFRÉTTIR ÍRAK, AP Rizgar Mohammed Amin, yfirdómari í réttarhöldunum gegn Saddam Hussein, fyrrverandi for- seta Íraks, hefur sagt af sér. Írakski stríðsdómstóllinn á enn eftir að ákveða hvort fallist verði á uppsögnina. Amin sagði af sér af persónulegum ástæðum að sögn dómstólsins, en ekki vegna þrýstings frá stjórnvöldum. Rétt- arhöldin munu hefjast á ný þann 24. janúar þrátt fyrir óvissuna varðandi þátttöku Amins. Margir telja að dómarinn hafi sagt upp vegna gagnrýni í hans garð um að réttarhöldin yfir Saddam hafi farið úr böndunum. „Ein ástæðan fyrir uppsögn hans eru yfirlýsingar frá ráðamönnum, meðal annars frá dómsmálaráð- herranum, þar sem hann er gagn- rýndur fyrir frammistöðu sína í réttarsalnum,“ sagði starfsmaður við réttarhöldin. Saddam er ákærður ásamt sjö öðrum fyrir að hafa fyrirskipað morð á yfir 140 sjita-múslimum í bænum Dujail árið 1982. Verði þeir fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér dauðadóm. - fb Réttarhöldin gegn Saddam: Dómarinn sagði af sér AMIN Yfirdómarinn Rizgar Mohammed Amin hefur sagt af sér af persónulegum ástæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Oktavía Jóhannesdótt- ir, eini bæjarfulltrúi Samfylking- arinnar á Akureyri, hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins á Akureyri vegna kom- andi sveitarstjórnarkosninga. Oktavía, sem sagði skilið við Sam- fylkinguna skömmu fyrir áramót, sækist eftir 3. til 4. sæti á listan- um. Sigbjörn Gunnarsson, fyrr- verandi sveitarstjóri Skútustaða- hrepps og þingmaður Alþýðu- flokksins, hefur einnig gengið til liðs við sjálfstæðismenn á Akur- eyri og hann stefnir á annað til fjórða sæti í prófkjörinu. - kk Prófkjör sjálfstæðismanna: Oktavía ætlar í framboð BÆJARFULLTRÚI Oktavía situr enn í bæjar- stjórn Akureyrar fyrir Samfylkinguna. ERFÐAFRÆÐI Grein eftir vísinda- menn og samstarfsaðila Íslenskrar erfðagreiningar birtist í gær í hinu virta vísindatímariti Nature genet- ics um einangrun á erfðabreyti- leika sem veldur aukinni hættu á sykursýki af gerð 2. Þetta er í fyrsta sinn sem vís- indamönnum tekst að einangra algengan erfðabreytileika sem hefur veruleg áhrif á myndun sjúkdómsins. Erfðabreytileikinn fannst í rannsóknum á Íslandi en niðurstöðurnar hafa síðan verið staðfestar í Danmörku og Banda- ríkjunum. Sykursýki af gerð 2 hefur með aukinni velmegun orðið eitt stærsta heilbrigðisvandamál vestrænna landa. Sjúkdómurinn hrjáir um 200 milljónir manna í heiminum og Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin (WHO) gerir ráð fyrir að fjöldinn verði kominn í 300 milljónir árið 2025. Sjúkdómurinn tengist offitu og tíðni hans eykst því hratt sam- fara aukinni tíðni offitu í heimin- um. Er jafnvel talað um faraldur í þessu sambandi. Flestir sem grein- ast með þessa tegund sykursýki eru komnir yfir fertugt. Myndast sjúkdómurinn af því að líkaminn nær ekki að vinna nægilega vel úr því insúlíni sem er í líkamanum. Um fimm þúsund einstaklingar hafa verið greindir með sykursýki af gerð 2 hér á landi en talið er að fyrir hvern þann sem greindur er með sýkina séu tveir til þrír með sjúkdóminn ógreindan. Sykursýki 1 er aftur á móti sú tegund sykursýki sem greinist oftast á barns- eða unglingsaldri. Á hún rætur að rekja til þess að of lítið insúlín er í líkamanum. Þurfa þessir sjúklingar að sprauta sig með insúlíni, oftast tvisvar til sex sinnum á dag. Í þeim þjóðfélagshópum sem rannsóknin á Íslandi beindist að eru yfir 30% einstaklinga með eitt eintak af erfðabreytileikanum sem veldur aukinni hættu á sykursýki 2 og meira en 7% einstaklinga bera tvö eintök. Líkurnar á því að fá sykursýki hjá þeim sem eru með eitt eintak af breytileikanum í erfðamengi sínu eru 45% meiri en hjá þeim sem ekki eru með breyti- leikann. Þeir sem eru með tvö ein- tök af breytileikanum eru í 150% meiri hættu á að fá sykursýki en einstaklingar í viðmiðunarhópi. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að uppgötvunin sé meiriháttar áfangi í mannerfðafræði. Bætir hann því við að erfðafræðingar um allan heim hafi lengi reynt að finna breytileikann sem tengist aukinni hættu á sykursýki 2. Telur hann að uppgötvunin gæti aukið skiln- ing okkar á líffræðilegum orsök- um sjúkdómsins auk þess sem hún geti haft bein áhrif á heilsugæslu, þar sem frekar einfalt sé að smíða greiningarpróf til að mæla hvort einstaklingur beri þennan breyti- leika. freyr@frettabladid.is Fundu erfðabreyti- leika sykursýki 2 Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið erfðabreytileika sem teng- ist sykursýki af gerð 2. Niðurstöður umfangsmikilla rannsókna gætu leitt til þróunar á nýjum meðferðar- og greiningarúrræðum. KÁRI STEFÁNSSON Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að einangrun erfðabreytileikans sem tengist sykursýki 2 sé meiriháttar áfangi í mannerfðafræði. SPURNING DAGSINS Guðmundur, á ekki að fara að ganga frá göngunum? Jú, svo lengi sem fólkið gengur með okkur. Það gengur ekkert annað. Guðmundur Hallvarðsson er formaður samgöngunefndar Alþingis, en nú er unnið að því að bæta samgöngur við Bolungarvík hugsanlega með því að leggja þaðan göng sem koma inn í Vestfjarðargöngin. DÓMSMÁL Lögmaður hjá Lögmönn- um í Laugardal hefur kært hluta rannsóknar ríkislögreglustjóra til Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann telur upplýsingar af bankareikn- ingi fyrirtækisins, sem ríkislög- reglustjóri fékk frá Fjármálaeftir- litinu, illa fengnar. Fjármálaeftirlitið fékk úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í lok nóvember um að aflétta skyldi bankaleynd af reikningum lög- mannsins hjá Landsbankanum til að rannsaka eignatengsl í Spari- sjóði Hafnarfjarðar. Lög um eftir- litið voru tekin fram yfir lög um trúnaðarskyldu lögmanna. Lögmaðurinn, Karl Georg Sig- urbjörnsson, segir að 78. grein opinberra mála hafi verið brotin. „Kæran gefur okkur tækifæri til að bera einstakar rannsóknarat- hafnir lögreglu undir dóminn.“ Karl Georg segir vafasamt að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins hafi sótt úrskurðinn utan almenns skrifstofutíma. Niðurstaðan gæti hafa orðið önnur hefði málið feng- ið meiri skoðun hjá dómstjóra. Karl segir einnig ámælisvert að eftirlitið skyldi ekki upplýsa dóm- arann á kæruvakt um mánaðalöng samskipti milli hans og eftirlitsins og að hann hafði neitað þeim um aðgang að reikningunum til að brjóta ekki trúnað við skjólstæð- inga sína. Niðurstöðu héraðsdóms er að vænta í næstu viku. - gag Lögmaður segir Fjármálaeftirlitið með illa fengin gögn: Lögreglurannsókn kærð UTAH, AP Ómannað hylki með sýni af stjörnuryki kom til jarðar í Utah í Bandaríkjunum í gær við mikinn fögnuð vísindamanna. Tókst lend- ingin með miklum sóma. Hylkið, sem hafði verið í sjö ár á ferð um geiminn, safnaði meðal annars ryki úr halastjörn- unni Wild 2 árið 2004 og var það í fyrsta sinn sem slíku ryki var safnað. „Þetta var frábær endir á förinni,“ sagði Charlton Allen, vísindamaður við Johnson-geim- stöðina. Vísindamenn vonast til að stjörnurykið muni gefa mikil- vægar upplýsingar um uppruna sólkerfisins. -fb Sjö ára geimferð lokið: Með stjörnu- ryk til jarðar KARL GEORG SIGURBJÖRNSSON Lögmaður- inn segir upplýsingar af bankareikningi illa fengnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.