Fréttablaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 16. janúar 2006 3
RÁÐ frá Rakel
RAKEL ÁRNADÓTTIR SKRIFAR UM GIFS
Margir kostir við gifs
Á Íslandi er það frekar nýtt að nota
gifs til húsbygginga, en í Evrópu
og Bandaríkjunum er það algengt.
Gifsframleiðsla verksmiðja í Mont-
martre hverfi Parísar var á sínum
tíma svo mikil og til svo margvís-
legra nota að gifs hefur verið kallað
múrhúð Parísar. Notkun gifs nær
reyndar 5000 ár aftur í tímann er
Egyptar uppgötvuðu hina sérstöku
eiginleika þess. Þeir blönduðu gifsi
og leir saman og notuðu blönduna
sem múrblöndu við byggingu pýr-
amídanna, sem standa jú enn í
dag.
Gifs er náttúrlegt steinefni.
Frakkinn Lavoisier uppgötvaði
efnaformúluna árið 1775, en hún
er: CaSO4 x 2H2O. Gifs var sems-
agt kalsíumsúlfat og kristallað
vatn. Gifs myndast við úrfellingu,
en það er að finna í vötnum, sjó og
á hverasvæðum. Í náttúrunni tekur
það á sig ýmis form, e.o. a) hálf-
gagnsæir kristallar; b) með silki-
áferð eða trefjótt; eða c) kornótt
og þétt í sér. Á þurrkasvæðum er
einnig að finna afbrigði sem kall-
ast Eyðimerkurrósin vegna lögunar
sinnar, en efnið er ógagnsætt og
í því hafa fest sandkorn. Ekki má
gleyma því að gifs er líka notað í
skraut. „Alabastur“ eða mjólkur-
steinn er nefnilega afbrigði af gifsi
notað sem tálgusteinn í listmuni.
Hrágifs er tekið í náttúrunni,
þurrkað og mulið í duft. Síðan er
það hitað þannig að upp gufar
mestur hluti vatns sem enn er
bundið í gifsið. Síðan eru mótaðar
sveigjanlegar plötur, sem auðvelt
er að móta og nota í margvíslega
framleiðslu.
Kostir gifs sem efniviðar í bygg-
ingariðnaði eru lygilega margir.
Það hljóðeinangrar, brennur ekki,
endist lengi og hentar jafnt í veggi,
loft og gólf. Gifs dregur í sig raka
við hátt rakastig og gefur frá sér
raka þegar loft verður aftur þurrt,
en leiðir hins vegar ekki rafmagn.
Svo er það lyktarlaust og ekki er
vitað til að í því séu heilsuspillandi
efni.
Ef einhver segir ykkur að ekk-
ert þýði að nota það í veggi vegna
þess að ekki sé hægt að hengja
upp þunga hluti, þá er það rangt.
Veggurinn heldur og hluturinn líka
ef réttar festingar eru valdar. Munið
bara að fá ráð um réttar festingar í
næstu byggingarvöruverslun.
Reykskynjarar bjarga mannslífum og mikilvægt er að
reykskynjari sé á öllum heimilum. Best er að hafa nokkra
skynjara víðs vegar um heimilið til að öruggt sé að allir
heimilismenn verði þess varir fari þeir að stað. Hægt er
að fá reykskynjara sem gefa boð til Neyðarlínunnar um
leið og þeir verða varir við reyk. Einnig er hægt að fá
samtengda skynjara sem fara allir af stað um leið og sá
fyrsti nemur reyk. Ekki gleyma að athuga reglulega hvort
reykskynjarinn sé í lagi og skipta reglulega um rafhlöðu í
skynjaranum.
Slökkvitæki og eldvarnarteppi eru einnig nauðsynleg inni
á heimilinu. Kynnið ykkur vel hvernig nota eigi slík tæki
og kennið börnum ykkar helstu tökin á þau og mikilvægi
þeirra. Munið að þegar eldur hefur kviknað er enginn tími
til að læra réttu tökin á tækinu.
Forvörn besta ráðið
MIKILVÆGASTI ÞÁTTURINN ÞEGAR KEMUR AÐ ÖRYGGI HEIMILISINS ER AÐ
KOMA Í VEG FYRIR TJÓN MEÐ ÖFLUGUM FORVÖRNUM.
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
NFS ER Á VISIR.IS
Bein útsending á VefTV og
upptökur þegar þér hentar