Fréttablaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 55
MÁNUDAGUR 16. janúar 2006 Menningar- og ferðamálaráð bauð í vikunni nýjum styrkhöfum og öðrum aðstandendum til móttöku í Ingólfsnausti. Þar ávarpaði Stefán Jón Hafstein, formaður ráðsins, gesti og heiðraði Tónlistarhópa Reykjavíkur 2006. Félagar úr kammerkórnum Schola Cantorum tóku lagið en kórinn er annar tveggja Tónlistarhópa Reykjavík- ur þetta árið, hinn er KASA hópur- inn. Fengu hvor um sig tvær millj- ónir króna. Mikill fjöldi annarra styrkja voru veittir. Þar á meðal 1,5 milljónir króna til Mynd- höggvarafélagsins í Reykjavík og Alþjóðlegu kvikmyndahátíð- arinnar í Reykjavík en Tónlistar- þróunarmiðstöðin hlaut 1,2 millj- ónir. Strengjaleikhúsið fékk eina milljón til uppsetningar á óper- unni Skugginn og Kling og Bang gallerí fékk 700 þúsund krónur til áframhaldandi gallerísreksturs á Laugavegi 23. Stærri hluta styrkveitinga menningar- og ferðamálaráðs er þó varið til starfssamninga til fleiri ára og eru til þeirra þegar bundnar í samninga tæpar 56 milljónir árið 2006. Þriggja ára samningar ráðsins verða næst auglýstir nú í haust vegna áranna 2007, 2008 og 2009. Tónlistarhópar Reykjavíkur 2006 heiðraðir SCHOLA CANTORUM Annar tveggja Tónlist- arhópa Reykjavíkur 2006. Nýlega komu nokkrir gamlir íslenskir nemendur úr Cambridge og Oxford háskólunum í Bretlandi saman og stofnuðu með sér félag þeirra sem hafa stundað nám og eða vísindastörf við skólana. Til- gangur félagsins er meðal annars sá að efla tengsl milli skólanna og Íslands og kynna þá námsmögu- leika sem íslenskum stúdentum bjóðast við Cambridge og Oxford. Einnig er ætlunin að fá til landsins vísindamenn og fræðimenn frá skólunum til að kynna rannsókn- ir sínar og halda fyrirlestra hér á landi. Félagið er öllum opið sem lagt hafa stund á rannsóknir og eða nám við Cambridge- og Oxford háskóla og geta þeir sem áhuga hafa skráð sig á heimasíðu þess, www.oxbridge.is. Efla tengsl við Oxbridge FORMAÐUR OXBRIDGE Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, er formaður hins nýskipaða félags. Microsoft Íslandi afhenti fyrir helgi Reykjavíkurdeild Rauða krossins hugbúnað að gjöf sem verður útdeilt til flóttamannafjöl- skyldna sem komu hingað til lands frá Kosovo og Kólumbíu í haust. Hugbúnaðurinn verður notaður í tölvur sem flóttamennirnir hafa fengið að gjöf frá velunnurum Rauða krossins. Fjölskyldurnar sem njóta góðs af eru alls sjö talsins, ein sjö manna fjölskylda frá Kosovo og sex einstæðar mæður frá Kól- umbíu með alls átján börn á sínu framfæri. Nú fær hver fjölskylda tölvu með uppsettum hugbúnaði sem nýtist áreiðanlega vel því allir fjölskyldumeðlimir stunda nú íslenskunám af miklum móð. Microsoft til hjálpar NÝTIST VIÐ ÍSLENSKUNÁM Elvar Steinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Microsoft, afhendir Rauða krossinum hugbúnað í tölv- ur flóttamanna frá Kosovo og Kólumbíu. Mokaði út málverkum fyrir milljónir Hallgrímur Helgason í góðum málum DV2x10-lesið 15.1.2006 21:06 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.