Fréttablaðið - 16.01.2006, Síða 66
30 16. janúar 2006 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
SKRÁÐU HÓPLEIK OG KEPPTU VIÐ FÉLAGANA
STILLTU UPP ÞÍNU EIGIN DRAUMALIÐI Á VISIR.IS
VERTU MEÐ OG SKRÁÐU ÞIG STRAX!
KYNNA:
&
Á VISIR.ISENSKI BOLTINN 2005-2006
SEINNA MÓTIÐ ER HAFIÐ!
STIGIN ÚR 14 BESTU UMFERÐUNUM GILDA.
STILLTU UPP ÞÍNU DRAUMALIÐI, ALDREI OF SEINT
Reykjavíkurmótið í fótbolta fer af stað
um næstu helgi þegar KR og Leiknir
mætast. Í fyrra voru það FH-ingar sem
sigruðu Valsmenn í úrslitaleiknum en
þeim var þá boðið að taka þátt sem
handhöfum Íslandsmeistaratitilsins,
athygli vekur að þeir eru þó ekki meðal
þátttökuliða í ár. „Við reiknuðum fast-
lega með því að vera boðið að taka þátt
í ár líkt og í fyrra. Mín skoðun er sú að
það sé mjög sniðugt að bjóða Íslands-
meisturunum hverju sinni, en ég skil
ekki af hverju það er ekki gert núna,“
sagði Pétur Stephensen, framkvæmda-
stjóri hjá FH.
Þó að FH hafi unnið úrslitaleikinn í
fyrra voru Valsmenn krýndir Reykjavík-
urmeistarar þar sem boðslið getur ekki
unnið mótið. Heyrst hefur að rætt hafi
verið um það að ef FH yrði boðið að
taka þátt í mótinu í ár ættu reglurnar
að vera þannig að liðið gæti ekki
komist upp úr riðlinum. Pétur
kannaðist ekki við þetta þegar
það var borið undir hann. „Við
viljum náttúrulega ekki taka
þátt í móti sem við getum
ekki unnið. Það er hálf
kjánalegt.“ sagði Pétur, en
hann segir FH-inga ekkert
vera neitt svekkta yfir því að
vera ekki boðið í mótið að
þessu sinni.
„Við þurftum að stytta mótið
og því er ekkert boðslið
að þessu sinni. Þjálfararnir
neituðu að byrja mótið fyrr
og það þarf að klárast fyrir
deildabikarinn. Þess vegna þarf að hafa
þetta svona,“ sagði Steinn Halldórsson,
formaður Knattspyrnuráðs Reykjavík-
ur, þegar málið var borið undir hann.
Mótið í ár byrjar á svipuðum tíma
og í fyrra en því er skipt upp
í tvo riðla. Í öðrum riðlinum
eru fimm lið en aðeins fjögur
í hinum þannig að öll liðin
fá ekki sama leikjafjölda.
Að þessu sinni verða ekki
undanúrslit á mótinu heldur
mætast efstu lið riðlanna beint
í úrslitaleik sem settur er á 2.
mars. Þess má geta að úrslita-
leikurinn í fyrra var 17. febrúar
svo mótið í ár er leikið á
lengra tímabili en i fyrra þó
að þátttökuliðin séu færri.
DEILDARBIKARINN FER AF STAÐ NÆSTA LAUGARDAG: MEISTARARNIR FÁ EKKI AÐ VERJA TITILINN
Íslandsmeisturunum ekki boðið í ár
HANDBOLTI Það var fullt hús og
frábær stemning í íþróttahúsinu
í Kristiansund þegar leikurinn fór
fram. Heimamenn byrjuðu leikinn
mikið mun betur en íslenska liðið
vann sig smám saman inn í leikinn
og komst yfir í fyrsta skipti þegar
22 mínútur voru liðnar af leiknum,
12-13. Ísland náði síðan þriggja
marka forystu í kjölfarið, 12-15,
en Norðmenn komu til baka og
liðin voru jöfn, 19-19, þegar flaut-
að var til leikhlés. Níu íslensk
mörk komu úr hraðaupphlaupum.
Síðari hálfleikur var spennu-
þrunginn og aldrei munaði meira
en tveim mörkum á liðunum.
Íslenska liðið var þó skrefi á
undan síðari hluta hálfleiksins
en inngrip danskra dómara, sem
drógu taum heimamanna, varð
til þess að Norðmenn héngu inn í
leiknum.
Í stöðunni 30-31 ráku dómar-
arnir Sigfús Sigurðsson af velli og
einum fleiri jöfnuðu heimamenn
leikinn. Einum færri með 30 sek-
úndur eftir örkuðu Íslendingar í
sókn. Arnór Atlason kórónaði frá-
bæran leik sinn með góðu marki
þegar 17 sekúndur voru eftir af
leiknum, 31-32. Heimamenn nýttu
sér liðsmuninn til hins ýtrasta og
jöfnuðu með góðu marki og þar
við sat.
Frammistaða íslenska liðsins
engu að síður frábær og sigur í
mótinu staðreynd þar sem Ísland
vann Katar með meiri mun en
Noregur. Ísland spilaði 5-1 vörn
með Guðjón Val fremstan nánast
allan leikinn með ágætum árangri
og fyrir aftan vörnina var Birkir
Ívar mjög stöðugur og varði vel
allan leikinn.
Guðjón Valur átti stórleik og þá
sérstaklega í fyrri hálfleik þegar
hann skoraði átta mörk. Átta af tíu
mörkum hans í leiknum komu úr
hraðaupphlaupi. Senuþjófur dags-
ins var þó Arnór Atlason. Hann
skoraði fimm frábær mörk, átti
góðar línusendingar og lék mjög
skynsamlega í sókninni.
Snorri Steinn spilaði einnig
mjög vel þótt hann væri nán-
ast klipptur út úr leiknum en
allt annað flot var á sóknarleik
íslenska liðsins með hann við
stjórnvölinn en Ólafur Stefáns-
son fann sig hvorki á miðjunni
né í skyttunni. Slíkt hið sama má
segja um Einar Hólmgeirsson og
munar um minna.
Þetta var sextándi landsleikur-
inn í röð undir stjórn Viggós Sig-
urðssonar sem tapast ekki. Slíkum
árangri hefur enginn íslenskur
landsliðsþjálfari náð áður.
„Ég er mjög kátur með að hafa
náð þessu meti,“ sagði Viggó eftir
leikinn en hann var sammála
blaðamanni í því að dómararnir
hefði dregið taum heimamanna.
„Þeir rændu okkur þrem til fjór-
um vítum í restina og brottrekstr-
arnir voru bara öðru megin. Þetta
var mjög góður leikur hjá okkur
og gott að brotna ekki við mótlæt-
ið í byrjun. Ég er sáttru við þessa
leiki hér úti og við erum á góðri
leið.” henry@frettabladid.is
Ísland sigraði Umbro Cup
Íslenska handboltalandsliðið tryggði sér sigur í Umbro Cup eftir jafntefli gegn
Noregi, 32-32, í frábærum leik. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari sló glæsilegt
met í leiðinni því liðið hefur nú leikið 16 leiki í röð án taps undir hans stjórn.
ENN EINN STÓRLEIKURINN Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum gegn Norðmönnum í
Kristiansund í gær og skoraði tíu mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Vináttulandsleikur:
NOREGUR-ÍSLAND 32-32 (19-19)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 10
(14), Arnór Atlason 5 (7), Sigfús Sigurðsson 4 (4),
Alexander Peterson 4 (6), Snorri Steinn Guðjóns-
son 3 (5), Róbert Gunnarsson 2 (3), Einar Hólm-
geirsson 2 (5), Ólafur Stefánsson 2/1 (6/2).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 20.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
NFL Undanúrslitaleikirnir í þjóðar-
og Ameríkudeild NFL-deildarinn-
ar fóru fram um helgina. Á laugar-
dag tryggðu Seattle og Denver sér
sæti í úrslitaleikjunum og í nótt
fóru fram síðari tveir leikirnir.
Seattle lagði Washington sann-
færandi, 20-10, í fyrri leik laugar-
dagsins en úrslitin í síðari leikn-
um komu á óvart þar sem Denver
lagði meistara síðustu tveggja
ára, New England, 27-13.
Seattle mætir annað hvort
Chicago eða Carolina um næstu
helgi en Denver fær annað hvort
Indianapolis eða Pittsburgh. - hbg
Óvænt úrslit í ameríska fótboltanum:
Meistararnir úr leik
> Þórarinn á leið heim
Sóknarmaðurinn Þórarinn Kristjánsson
er loksins búinn að finna
sér félag fyrir næsta
sumar en samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins
mun hann skrifa undir
samning við uppeld-
isfélag sitt Keflavík í
dag. Þórarinn hefur
verið án félags frá því
hann yfirgaf Þrótt og
samningaviðræður
hans við Keflavík
hafa tekið óheyrilega
langan tíma enda var
Þórarinn ekki viljugur til
að slaka á launakröfum
lengi framan af en hann
ku hafa verið með mjög
góðan samning hjá
Þrótti.
Þrír í úrvalsliðinu
Alexander Peterson, Arnór Atlason og
Guðjón Valur Sigurðsson voru valdir í
úrvalslið Umbro-mótsins. Norðmenn
áttu fjóra menn í liðinu - Kristian Kjell-
ing, Frank Löke, Borge Lund og Steinar
Ege.
„OFURFORSTJÓRARNIR“ MAKA KRÓKINN Á HLUTABRÉFUM
5 millur á
dag í 4
mánuði
ÞÓRÐUR MÁR HEFUR GRÆTT 650
MILLJÓNIR Á STRAUMI-BURÐARÁS
DV2x15-lesið 15.1.2006 21:05 Page 1