Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 70

Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 70
 16. janúar 2006 MÁNUDAGUR34 Glöggir vegfarendur á Laugaveg- inum og skemmtanafíklar í 101 hafa tekið eftir því að skemmti- staðurinn 22 hefur verið lokaður í dágóðan tíma. Þessi fornfrægi staður hefur verið mikið aðdrátt- arafl í skemmtanasögu borgarinn- ar síðust þrjátíu árin en nú hafa nýir eigendur ákveðið að gera gagngerar breytingar á honum. Nýr eigandi 22 er ekki ókunn- ur íslensku djammlífi en það er Gunnar Már Þráinsson. Hann var um tíma rekstrarstjóri Vegamóta og gerði þann stað að því sem hann er í dag. En svo söðlaði hann um og opnaði skemmtistaðinn Óli- ver síðastliðið sumar en hann er til húsa þar sem Kaffi List var á Laugaveginum. Um leið og Óliver opnaði varð hann einn af vinsæl- ustu skemmtistöðum borgarinnar. Gunnar hefur þó ekki bara starf- að á Íslandi því um tíma rak hann veitingahús á hóteli hjá vini sínum í Suður-Afríku. „Ég var með stað í Höfðaborg ásamt kærustunni minni,“ útskýrir Gunnar, sem er greinilega öllu vanur og ætti því að geta komið með enn eina til- breytnina í skemmtanalíf Reykja- víkur. 22 var lengi vel skemmti- staður fyrir samkynhneigða en hefur að undanförnu verið diskó- tek fyrir alla. Fólk hefur tekið eftir því að verið er að rífa allt út og segir Gunnar að nú eigi að laga gamla sál. „Við ætlum að fæla burtu vonda anda úr húsinu,“ segir hann léttur og bætir því við að yfir- leitt hafi enginn búist við neinu þegar breytingar hafa átt sér stað í rekstri staðarins. Því eigi nú að breyta. „Matur og tónlist verða í fyrirrúmi hjá okkur,“ segir Gunn- ar en 22 mun hafa fullbúið eld- hús enda vill Gunnar bjóða upp á góðan mat sem ekki á að vera dýr. „Þetta verður veitingastaður og kaffihús á daginn en á kvöldin mun skemmtanalífið taka öll völd,“ bætir hann við en hin þjóðfræga þriðja hæð mun þó ekki vera opin fyrst um sinn. „Það verður bara að koma í ljós síðar meir hvað verður þar,“ segir Gunnar leyndardóms- fullur. Hann áréttar ennfremur að staðurinn ætli sér ekki að höfða til eins ákveðins þjóðfélagshóps eins og svo oft vill verða þegar nýir staðir eru opnaðir. „Hann verð- ur fyrir alla og engar kröfur um klæðaburð verða gerðar.“ Rekstrarstjórinn segir að mikið verði lagt upp úr kokteilum og drykkjum og ábyrgist að eng- inn fái nokkuð vont að drekka. „Við ætlum að hafa þá flotta og bragðmikla,“ útskýrir hann en ætlunin er að tóna staðinn aðeins niður og hafa hann í ætt við klúbba stórborga Evrópu. „Það á að vera huggulegri stemning en hingað til hefur verið,“ segir hann og reiknar með að opna í byrjun febrúar. freyrgigja@frettabladid.is SKEMMTISTAÐURINN 22: FÆR LANGÞRÁÐA YFIRHALNINGU Ekki stílað inn á ákveðinn hóp Söngkonan og dagskrárgerðar- konan Guðrún Gunnarsdóttir byrjar með nýjan sjónvarpsþátt á Skjá einum í næsta mánuði sem ber heitið Fyrstu skrefin. „Þátturinn fjallar um börn upp að 4-5 ára aldri og foreldra þeirra. Við komum inn á meðgöngu, fæð- ingu og fyrstu skrefin, fyrstu mánuðina og árin,“ segir Guð- rún, sem sjálf á þrjár dætur, eina stjúpdóttur og tvö barnabörn. „Þetta er ekki beint vandamála- þáttur heldur er verið að miða við hvað er eðlilegt og gengur og ger- ist hjá flestum foreldrum. Hann fjallar eiginlega um reynsluheim íslenskra foreldra í dag.“ Alls verður um tólf þætti að ræða og verður eins og áður segir fjallað um allt sem viðkemur því að vera foreldri ungra barna. Svefnröskun, næring og brjósta- gjöf munu einnig koma þar við sögu. Framleiðandi þáttarins og hugmyndasmiður er Hlynur Sig- urðsson, sem hefur getið sér gott orð fyrir fasteignaþáttinn Þak yfir höfuðið á Skjá einum. Einn- ig koma þeir Haukur Hauksson, sem hefur framleitt þáttinn Í brennidepli á Rúv, og Þorvarður Björgúlfsson að gerð þáttarins. „Mér fannst umfjöllunarefnið áhugavert,“ bætir Guðrún við. „Í gegnum mitt fjölmiðlastarf hef ég alltaf haft áhuga á málefnum fjölskyldunnar. Mér fannst það mjög áhugavert að forvitnast um það hvernig er að vera ungt foreldri í dag. Það er svo margt sem breytist í gegnum tíðina og margt sem ég vissi ekki áður en ég byrjaði í þessu. Maður er allt- af að læra sem foreldri og enginn er fullkominn. Mér finnst gott að upplifa að það eru til svo margir góðir foreldrar sem eru að reyna að vera góðir uppalendur og leggja sig mjög fram.“ freyr@frettabladid.is Sjónvarpsþáttur um reynsluheim íslenskra foreldra LÁRÉTT 2 þróunarstig skordýrs 6 löng og lág hæð 8 skarð 9 farfa 11 tveir eins 12 jakki og pils 14 langt op 16 í röð 17 hamfletta 18 fæða 20 tveir eins 21 rekald. LÓÐRÉTT 1 mylsna 3 klukka 4 lærisveinn 5 þak- brún 7 hringfari 10 mál 13 útdeildi 15 ómargir 16 sær 19 samtök. LAUSN LÁRÉTT: 2 púpu, 6 ás, 8 rof, 9 lit, 11 ss, 12 dragt, 14 klauf, 16 hi, 17 flá, 18 ala, 20 ii, 21 flak. LÓÐRÉTT: 1 sáld, 3 úr, 4 postuli, 5 ufs, 7 sirkill, 10 tal, 13 gaf, 15 fáir, 16 haf, 19 aa. AUGL†SINGASÍMI 550 5000 GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR Söngkonan og dagskrárgerðarkonan er að fara af stað með nýjan sjónvarpsþátt. GUNNAR MÁR ÞRÁINSSON Hefur tekið yfir rekstur hins landsþekkta veitingastaðar 22 og ætlar að gjörbreyta staðnum eins og sjá má. �������� �� �� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ��� ������ ��� ��� �� �� �� �� �� � �� �� �� �� � ��������� ����������������������� ������������� ������������������������������ � ��������� ����������� �������������� ���� ��������� ������������������������������ Þorri er fjórði mánuður vetrar; hefst á bóndadegi á föstudegi í 13. viku vetrar. Þorra lýkur á þorraþræl sem er laugardagurinn fyrir konudag og tekur þá við góa. Komu þorrans bíða margir með eftirvæntingu því þá hefst tími þorrablóta með tilheyrandi þorramat. Síðastliðna fjóra áratugi hefur Múlakaffi verið með stærstu framleiðendum á þorramat og fara vinsældir hans síst minnkandi. „Múlakaffi hefur aldrei klikkað á þorramatnum og verið með þorrahlaðborð auk þorramats um allan bæ og bæi landsins í yfir fjörtíu ár,“ segir yfirkokkurinn Jón Örn Jóhann- esson um leið og hann handfjatlar bringukolla í skál. „Það er engin spurning að minnst fer af bringukollum og neysla þeirra virðist smám saman vera að deyja út. Þetta er óskaplega feitur, súrsaður beinbiti úr framparti lambsins og ekki margir sem leggja í hann. Maður tekur eftir því í 500 manna veislum að nóg er að leggja á borðið eina skál og oftast er farið með meirihlutann til baka. Hins vegar verða bringukollar alltaf á boðstólum, enda órjúfanlegur hluti af þorramatnum,“ segir Jón Örn, en alls eru 25 mismunandi réttir í þorrahlaðborði Múlakaffis. „Þetta er alltaf það sama, allt í föstum skorðum, en öllu skiptir hvernig maturinn er meðhöndlaður frá byrjun og ekki síst vegna þess góða árangurs að hróður Múlakaffis fer víða. Vinsælastir eru hrútspungarnir og sviðasulta, hákarl og sviða- kjammar, en einnig nýmetið hangikjöt og harðfiskur, sem var upphaflega bætt við til að gera þorramatinn aðgengilegri svo allir færu saddir heim,“ segir Jón Örn sem skömmu eftir þorrann fer að huga að þorravertíð næsta árs. „Höndlun þorramatar skiptir höfuðmáli og tekur upp undir ár í vinnslu. Það þarf að fylgjast mjög grannt með matnum, en súrmaturinn fer jafnan fyrst í gang,“ segir Jón Örn sem hvorki skynjar kynja- né aldursmun þegar kemur að vinsældum þorramatar. „Karlar eru reyndar aðeins kaldari að prófa bringukolla og það sem minna fer af, en við könnumst ekki við að Íslend- ingar séu hættir að kunna að meta eða borða þorramat því vinsældir aukast ár frá ári. Unga fólkið fær sér duglega á diskana og líkar vel, enda verið að minnast þess hvernig forfeður okkar lifðu af veturinn í gamla daga og fagna þorr- anum. Þetta er góður matur og að kalla hann skemmdan er algjör fásinna. Þetta er mestmegnis bráðhollt, soðið lamba- kjöt sett í mysu til að varðveita og geyma lengur. Sem sagt bráðhollur matur í einn mánuð á ári.“ SÉRFRÆÐINGURINN JÓN ÖRN JÓHANNESSON, YFIRKOKKUR Á MÚLAKAFFI Bráðhollur matur í mánuð á ári HRÓSIÐ ...fá Gunnar Sigurðsson og Atli Þór Albertsson fyrir að ganga til liðs við Strákana, enda hafa þeir báðir sannað að ekki hafa þeir síðri húmor en Sveppi, Auddi og Pétur Jóhann. FRÉTTIR AF FÓLKI Björn Ingi Hrafnsson virðist hafa dregið einhvern lærdóm af úrslit- um prófkjörs sjálfstæðismanna því hann hefur lagt málstað skákmanna lið. Margir ættu að vera minnugir þess að Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði einnig mikið úr áhuga sínum á skákinni og bar sigur úr býtum á sínum tíma. Á heimasíðu Björns Inga ljær hann máls á þeirri baráttu sem skákfélagið Hrókurinn hefur lagt út í og vill sjá Ísland sem skákland. Þá finnst frambjóð- andanum einnig að Reykjavík ætti að gera meira úr þætti sínum í skáksögunni og vill sjá skákhús rísa í borginni. Nú bíða menn spenntir eftir því hver frambjóðend- anna hjá Samfylkingunni gerir málstað skákarinnar að sínum, en tæpur mánuður er þangað til að prófkjör hennar hefst. Kiefer Sutherland hlakkar til að sjá hvernig heimildarmyndin um ferðalag rokkhljómsveitarinnar Rocco and the Burden er. Hún fjallar um það hvernig Sutherland tekst að halda hljómsveitinni frá freistingum rokks og rólsins en það gekk víst misvel. Hljómsveitin kom sem kunnugt er hingað til lands og spilaði, en ekki fór miklum sögum af djammlíferni þeirra. Að sögn leikarans geðþekka er það víst teiti í London sem hann hlakkar til að sjá því þar hljóp hann niður himinhátt jólatré útúr- drukkinn. „Ég virðist gera eitthvað heimskulegt á hverju ári,“ sagði Suther- land og virtist hafa gaman af eigin stráka- pörum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.