Fréttablaðið - 16.01.2006, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
�������������������
DEKKJABRÆÐUR
DEKKJAÞJÓNUSTA . LÁGMÚLA 9
Sala 533-3998 / 896-0578
Verkstæði 533-3997 / 899-2855
Á Vesturlöndum segja margir að hin pólitíska skipting til hægri
eða vinstri sé búin að syngja sitt
síðasta. Líka hér á landi. Það sem
greinir milli stjórnmálaflokka rétt
dugir til að krydda stefnuskrárnar
svo að þjálfaðir fíkniefnahundar og
fréttamenn geti þekkt þær sund-
ur. Það er meiri munur á kjötætu
og grænmetisætu en Sjálfstæð-
ismanni og Samfylkingarfélaga.
Í pólitík eru menn ekki lengur til
hægri eða vinstri heldur uppi eða
niðri. Uppinn er í þingsæti, niðrinn
án þingsætis.
STJÓRNMÁLAFLOKKAR hafa í
kyrrþey þjóðnýtt sjálfa sig meðan
ríkisfyrirtæki hafa verið á útsölu.
Stjórnmálaflokkar lifa ekki leng-
ur á framlögum meðlima sinna
heldur á föstum ríkisframlögum
og svörtum vasapeningum sem
þeir geta sviðið út úr fyrirtækj-
um þegar kosningar nálgast. Til-
gangur stjórnmálaflokka er að
viðhalda sjálfum sér með einokun
á nýliðun í stjórnmálum. Flokks-
maskínur klóna nýliða í samræmi
við sínar eigin þarfir og fram-
tíðaráætlanir - ekki almennings.
Þingmenn hugsa fyrst um sjálfa
sig, (sbr. embætti og eftirlaun),
svo um flokkinn sinn og síðast um
kjósendur.
STJÓRNMÁLAFLOKKAR heilla
fólk ekki lengur. Vöruframboðið
er of einhæft. Klónin ekki nógu
mannleg. Slagorðin komin fram
yfir síðasta neysludag. Engar
glitrandi hugsjónir í hillunum.
Þjónustan stirð.
ALÞINGI er verndaður vinnu-
staður. Þeir sem þaðan hverfa
leggjast eins og mara á ríkisstofn-
anir sem eru misnotaðar og breytt
í hjúkrunarheimili fyrir langveika
sjúklinga. Hinir pólitísku uppar
hafa afhent peninga-uppum hin
raunverulegu völd yfir þróun
samfélags okkar. Svo þykjast
hinir valdalausu uppar úr pólitík-
inni ætla að hafa eftirlit með pen-
inga-uppunum – sem felst í því að
krækja í sömu launahækkanir og
þeir. Uppinn er sjálftökumaður,
ekki þjónn þjóðfélagsins. Bilið
milli hægri og vinstri hefur verið
afmáð. Nú stýra menn ekki lengur
eftir áttavita heldur hæðarmæli.
Niðrarnir í niðaþoku, en upparnir
skýjum ofar í sjöunda himni. Lýð-
ræðið stendur áttavillt á jörðinni
og sést varla á bestu gervitungla-
myndum frekar en almenningur
og spillingin.
Uppar
og niðrar