Eintak

Issue

Eintak - 19.05.1994, Page 2

Eintak - 19.05.1994, Page 2
LOF LAST VIKUNNAR PAÐ VÆRI TILQANQSLAVST... 0 Erfitt sambýli aldraðra og skemmtanasjúkra © Svanurinn Káriflúinn borgina © Rúnar sagður með eitt affimm bestu veitingahúsum á Norðurlöndum © Hjólabrettagengi fagna Ingólfstorgi I orið hefur á kþví í borginni *að skemmti- staðir séu í nágrenni við híbýli aldr- aðra. Bóhem við Vitastíg er gegnt nýju gulmáluðu elli- < heimili og Turnhús- ið við Tryggvagötu er skammt frá Hafnarbúðum. Það er ekki að sök- um að spyrja að báðir staðirnir standa í stappi við starfsmenn heimilanna sem og gamla fólkið sem kvartar yfir hávaðamengun... inn af þekktari borgurum Reykjavíkur hefur flúið höfuð- staðinn og sest að norður á Raufarhöfn. Hér er átt við svaninn Kára sem glatt hefur hug og hjörtu borgarbúa um 2ja ára skeið. 4lbúar á Raufarhöfn eru hins vegar e-ttxs hæstánægðir með að hafa fengið þennan mislynda fugl í bak- garðinn hjá sér... nýjasta tölublaði Scandinaivan Review er veitingahúsið Við Tjörnina talið í hópi fimm bestu veitingahúsa á Norðurlöndun- um. ( grein sem Melody Fa- vish skrifar um Við Tjörnina í blaðinu segir hún meðal annars að Rúnar Marvinsson búi til innblásna rétti úr einföldum hráefnum. Melody tekur einnig fram í grein sinni að enginn fari tómhentur af veitingastaðnum því allir matargestir fái í hendur brauðpoka við brottför svo þeir geti gefið öndunum... Ingólfstorg hefur verið nokkuð á milli tanna á fólki síðan þvi var breytt í núverandi mynd. Hefur sitt sýnst hverjum um hversu vel hefur til tekist með breytingarnar en einkum hafa stromparnir á „önd- vegissúlunum" vakið kátínu margra. Einn er sá hópur fólks sem er hæstánægður með torgið og það eru hjólbrettakappar sem dvelja þar við iðju sína öllum stund- um. Fyrir þá er staðurinn mjög heppilegur, einkum rennurnar sem liggja alls staðar niður á torgið og eru ætlaðar barnavögnum og fötl- uðum til umferðar... bara ...færDavíð Oddsson og allir hinir ráðherrarnir fyrir að virða ekki viðlits sendi- nefnd háttsettra embættis- manna og ráðherra norður- hjaralanda sem voru hér i reiðileysi um helgina. Þótt við eigum ef til vill meira sameiginlegt með þessum þjóðum en flestum öðrum fylgir nóg af fundahöldum, ráðstefnum, kvöldverðum og öðrum diplómatískum dægrastyttingum þeim al- þjóðafélögum sem við er- um í nú þegarþótt við för- um ekki að bæta þessum við. Tortrygginn, íbygginn, varkár og ekki tilbúinn aO gefa neitt upp að svo stöddu. Á varðbergi gagnvart umhverfinu, öðru fólki, þjóðfé- iaginu og sjálfsagt líka sjálfum sér. Cefur samt til aO kynna aö þetta sé ástand sem hann hefur sjálfur valið. Þess vegna situr hann á hækjum sér. Hann er ekki að fara neitt og þarf held- ur ekki aO vera tilbúinn til skjótra viðbragða. Gallinn við þessa stellingu er hversu sjaldan hægt er aO brúka hana. Hún er vonlaus í hléi í bíó þar sem maöur sér ekkert nema bíógestunum sem standa og fá sér reyk. Líklega afmælum en er þó einnig varasöm þar. ÞaO er ekki angast börn af yfirvegaðri og kaldri tortryggni. aö hengja haus ... fær Sigurður G. Tómas- son, dagskrárstjóri Rásar 2, fyrir að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við R- listann. Þrátt fyrirað fæstir hafi velkst i vafa um að Sigurður væri R-megin i pólitíkinni sýnirþað kjána- legt dómgreindarleysi að Ijá nafn sitt undir listann. Það er álíka og ef Bogi Ág- ústsson mætti í fréttaút- sendingu með áfram- Reykjavik-hnapp Sjálf- stæðisflokksins og færi að segja fréttir af kosninga- baráttunni. „Nei, nei, það verða það að sjálf- sögðu ekki. Við höfum náð mjög góðum árangrí og átt tvo verðlauna- hafa á Ólympíuleikunum. Það er frá- bær árangur hjá smáþjóð sem telur 250.000 manns. Við myndum vilja senda sem flesta en þó ekki fólk sem hefur ekki þá getu sem þarf til að eiga erindi á leikana. Þess vegna er ekki sendur maður sem kastar kúlunni 13 m heldur 20 m því við eigum þannig mann. “ Hvaða iþróttagreinum verðum við með í? „Grunngreinarnar á Ólympíuleikun- um eru frjálsar íþróttir og sund og við vonumst til að vera með iþeim sem og að handboltaliðið vinni sér rétt til að vera með. Júdómennirnir okkar virðast líka vera íþeirrí stöðu að þeir eigi erindi. Ólympíuleikarnir eru mál allrar þjóðarinnar og yfirvötd eiga að láta til sín taka. Við eigum að setja okkur þau markmið að koma alltaf með verðlaunapeninga heim. “ Höfum við almennt séð eitthvað að gera á þessa leika ef tilgang- urinn á að vera að koma heim með verðlaun? „Það er eina raunhæfa markmiðið og ekkert annað markmið á að vera til staðar. En það gerist ekki á nokkrum vikum heldur er það lang- tímamarkmið. Það er líka geysilega góð auglýsing fyrir land og þjóð að keppa á leikunum og við eigum að notfæra okkurþað. Það sem þarf til að senda fólk á Ólympíuleikana eru smáaurar miðað við annað sem gert í þjóðfélaginu. Undirbúninginn þarf að hefja nógu snemma og menn þurfa að bjóða upp á fjárhagsstuðn- ing fyrirfam en ekki eftirá. Eg finn fyrir góðum stuðningi hjá mennta- málaráðherra og stend i viðræðum við hann núna. “ Hafði íslensku Ólympiunefndinni aldrei dottið i hug að senda færra fólk á leikana? „Ég vil ekki tjá mig um það enda er ég nýbúinn að taka við stöðu for- manns nefndarinnar. Ég beitti mér fyrir þvíþegar valið vará Vetrar- ólympíuleikana í Lillehammer að við settum okkur strangari reglur en al- þjóðlega Ólympíunefndin í vali okkar á þvi hverjir kæmust með og eftir á reyndistþað hafa verið hárrétt ákvörðun. Eina vandamál okkar við það að settur verði kvóti er það að við eigum gott handboltalið sem þarfað komast út. Ég verð að ræða það sérstaklega við alþjóðlegu Ólympiunefndina. “___________ Sú ákvörðun hefur verið tekin að tak- marka keppendur á Ólympíuleikunum í framtíðinni. íslensku keppendurnir í ein- staklingsgreinum gætu því orðið aðeins á milli 4-6 manns. Júlíus Hafstein er for- maður Ólympíunefndar íslands. yiöglaum borgarbua Ógeðfelldasta frétt vikunnar birtist á baksíðu DV á laugardaginn var. Fyrirsögnin var svo hljóðandi: Nauteyrarhreppur Flugelda- skothríð kærð Síðan kom fréttin: „“Það var skotið fólskulega að okkur flugeldum. Ég vissi ekkert af því að til stæði að gera þetta. Við erum tvær hérna; móðir mín, 96 ára, og ég. Ég gerði mér ekki grein fyrir því fyrst hvað var að gerast en fór inn til móður minnar sem var skjálfandi af hræðslu því þetta gerðist næst herbergi hennar,“ sagði Guðrún Heiðrós Þórðardótt- ir, bóndi á Laugarholti í Nauteyrar- hreppi. Guðrún segir fólk í sumarbústað í næsta nágrenni hafi skotið flug- eldunum. Hún hafi kallað til lög- reglu og kært þetta til að koma í veg fyrir að svona gerðist aftur." Þannig er það. Ekki er auðvelt að sjá hver hlið þessarar ógeðfelldu fréttar er ógeðfelldust. Til að byrja með hlýtur það að hafa verið ógeð- felld reynsla fyrir konuna og aldr- aða móður hennar að vera næstum dánar úr hræðslu. Það er líka ógeð- fellt fyrir fólkið í sumarbústaðnum að vera truflað í miðjum gleðskap við að löggan færir þeim þær fréttir að gleði þeirra hafl gengið svo fram úr hófi að legið hafi við mann- skaða. Það er líka eitthvað ógeðfellt sem liggur í orðum Guðrúnar í lok fréttarinnar, að atburðir sem þessir geti hugsanlega komið fyrir afiur. Og enn ógeðfelldara er að hugsa til þess að það sé vænlegri leið til að hindra slíkt að kalla á lögguna og kæra nábúa sína en að biðja þá að skjóta ekki flugeldum án fyrirvara í framtíðinni. © Glsu „HvejS vegna erú störfin ekki höfö viðokky ÆNhæfi fyrst verið er að búa þau til handa lokkur?“ „Atvinnubótavinnan er eins og hegningarbúðir. Okkur er refsað fyrir að vera atvinnulausir," segja þeir Gísli Þór Gunnarsson og Guðlaugur Kristján Júlíusson sem hófu störf í atvinnubótavinnu hjá borginni í upphafi mánaðarins og eru síður en svo ánægðir með hana. Guðlaugur hafði verið á atvinnu- leysisbótum meira og minna síðan árið 1990 en Gísli hefur ekki notið þeirra því hann er skráður eigandi Trúbadorforlagsins. Hann vildi ekki leggja útgáfuna niður því þá er útséð um að hann komi bókinni, sem komið hefur út á hennar veg- um, á markað síðar meir. Hann þáði því styrk frá Félagsmálastofn- un í desember síðastliðnum. „Vinnan sem við vorum settir í fólst til dæmis í því að hreinsa til á leikskólalóðum, tína upp sígarettu- stubba og sortera rusl,“ segir Guð- laugur. „Okkur var stillt upp við vegg og við gátum ekki neitað að mæta til vinnu. Mér var sagt að vinnan tæki um 2-6 mánuði. Við fáum um það bil 65.000 krónur í mánaðarkaup fyrir átta tíma vinnu og okkur var ekki gefinn kostur á að ræða kaup okkar og kjör.“ Gísli hefur lokið mastersnámi í sálfræði og meðal annars starfað við þýðingar, ritstörf og stundað tónlistarflutning í Bandaríkjunum undir nafninu G.G. Gunn. Hann segist vera með slæmt ofnæmi fyrir grasi og ryki og fékk því framgengt að þeir fengju að vinna með ryk- grímur. Guðlaugur er aftur á móti rafvirki að mennt og býr að auki að talsverðri tölvuþekkingu eftir að hafa sótt námskeið í þeim fræðum. „Hvers vegna eru störfin ekki höfð við okkar hæfi fyrst verið er að búa þau til handa okkur?“ spyr Gísli. Þeim Guðlaugi finnst að þeir sem eru í atvinnubótavinnunni njóti ekki neinna réttinda. „Við störfum á skjön við löggjöf um að öllum íslendingum beri að vera í stéttarfélagi. Ég ympraði á kaupauka við verkstjórann og hann dró fram samning sem Guðmund- ur Jaki hafði gert. Þar stóð skrifað að við fengjum ekki kaupauka. Þar að auki er kaupið okkar tekið úr sjóðum vinnandi fólks; atvinnu- leysistryggingasjóði og lífeyrissjóði sem ætlað er í atvinnuleysisbætur," segir Guðlaugur. Gísli bætir því við að atvinnu- bótavinnan sé ekki í fjárlögum. „Þegar er komið til umræðu að taka erlend lán til að fjármagna slíka vinnu. Fólk heldur að verið sé að skapa einhver verðmæti með því að láta tína upp sígarettur og annað rusl við hraðbrautir. Það heldur að atvinnulausir séu á góðri leið með að fremja sjálfsmorð því þeir þoli ekki iðjuleysið. Þess vegna finnst þeim betra að við vinnum við tilbú- in og þarflaus verkefni. Litið er á þetta sem greiða og við eiguni að vera þakklátir." Þeir félagar eru farnir að velta því alvarlega fyrir sér að flytja úr landi. „Ég hef heyrt að það vanti raf- virkja í Noregi," segir Guðlaugur. Gísli hefur meiri áhuga á Evrópu. „Ég sé ekki fram á neitt annað hér en fangabúðalíf," segir hann. 0 OQEÐFELLDASTA FRÉTT VIKUNNAR Atvinnubóta WKttRin w «. m * <5 1 %# J* _Gísli Þc hegningar- buðir - Gjslj_Þór og Guðlaugur Kristján segja að þeim hafi verið refsað fyrir að vera atvinnulausir. 2 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994 Q IÓN ÓSKAR

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.