Eintak

Eksemplar

Eintak - 19.05.1994, Side 16

Eintak - 19.05.1994, Side 16
í vor þreyttu yfir hundrað manns inntökupróf í Leiklistarskóla íslands. Átta komust inn. Þetta segir í raun allt sem segja þarf um leikaradrauma ungs fólks. Og Leiklistarskólann, sem eftir breytingar á útlánareglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna er næstum eina leið fólks inn í leikhúsin. Sigrún Sigurðardóttir ræddi við leikara, leiklistarnema og forráðamenn skólans til að átta sig á hvaða mælistikur væru notaðar þegar rúmlega níutíu manns væri vísað frá, hversu góður skólinn væri og hvort hann stæðist samanburð við leiklistarskóla erlendis. Hversu eóður skóli er Leildistarskólinn? Þú komst inn. Einn af átta. Þú ert dæmdur til að verða leikari. Þú hef- ur framtíðina í höndum þér. Eða hvað? Er eitthvað eftirsóknarvert að vera leikari? Sagt er að sannir leikarar lifi fyrir listina og þrífist hvergi annars stað- ar en innan veggja leikhússins. Af inntökuprófinu í Leiklistarskóla Is- lands að dæma, virðast margir vera haldnir þessari ástríðu og sjá heim leiklistarinnar í einhvers konar dýrðarljóma. Getur virkilega verið að á hverju ári sjái yfir hundrað ís- lendingar framtíð sína fyrir sér á sviðinu? Hundrað og ellefu manns töldu sig eiga heima í Leiklistar- skóla Islands í mars síðastliðnum og fóru í inntökuprófið. Fimm manna inntökunefnd vísaði mönn- um jafnt og þétt frá eftir að þeir höfðu sýnt hæfni sína á ýmsan hátt. Að lokum voru bara átta eftir. Átta einstaklingar sem eiga, ef að líkum lætur, eftir að útskrifast úr Leiklist- arskóla íslands eftir fjögur ár. Dómnefnd hafði ekki fýrr kveðið upp úrskurð sinn en ánægjuraddir hófu kappræður við óánægjuraddir á kaffihúsum bæjarins. Ótrúlegasta fólk hafði skoðun á málinu. „Hún getur ekkert leikið.“ „Hann er bú- inn að reyna þrisvar en kemst aldr- ei inn, samt er hann frábær leikari." „Hún er bara ekki týpan sem þeir eru að leita eftir.“ „Ætlar hann þá að fara út í skóla?“ „Hvað ætlarðu eiginlega að gera?“ Hver kannast ekki við þessar raddir? Ég var orðin leið á þeim og ákvað því að leita til fólksins sem veit hvað það er að segja. Mig lang- aði að vita hvort Leiklistarskóli fs- lands er eins eftirsóknarverður og fólk virðist halda. Hafa verður í huga að þessi skóli er einn sinnar tegundar á landinu og því er engin samkeppni sem krefur hann um að vera í stöðugum endurbótum og slaka aldrei á. Kannski er alveg eins gott að fara til útlanda í leiklistarskóla? Kannski eru þeir betri þar? Þetta gátu menn sagt fyrir einum þremur árum síð- an en þetta er ekki eins einfalt mál í dag. Þar sem Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur tekið upp þrengri úthlutunarreglur, er hann óbeint að stuðla að því að æska landsins fjölmenni í Háskóla fs- lands og leggi þar stund á mjög ein- hæft nám. I dag er næstum ómögu- legt fyrir venjulegan fslending að ætla að stunda sérnám erlendis. í reglum Lánasjóðsins stendur: „Ekki eru veitt almenn lán vegna skóla- gjalda í grunnháskólanámi og sér- námi erlendis.“ Sá sem er haldinn leiklistarástríðunni en hlaut ekki náð fyrir augum inntökunefndar er því dæmdur til að velja sér eitthvað annað ævistarf. Á þessu eru þó nokkrar undantekningar. Eigi við- komandi feita bankabók eða efnaða foreldra, er alltaf möguleiki að hann ráði við að borga skólagjöld sem eru að meðaltali á bilinu frá hálfri milljón upp í eina milljón á ári í enskumælandi landi. Hafi nemandi lagt ríka áherslu á dönsk- una á skólaárum sínum er mögu- leiki að hann komist inn í skóla í Danmörku þar sem skólagjöld eru engin. Það sama á við um þýskuna og frönskuna. Lánað er fyrir undir- búningsnámi í þýsku og frönsku í fjóra mánuði í viðkomandi landi. Ekki er hægt að fá lán til að stunda undirbúningsnám í ensku eða norðurlandamálum. Það er því ljóst að það er ekkert grín að kom- ast ekki inn í Leiklistarskólann hérna heima ef leikhúslífið er það eina sem heillar. Pétur Einarsson, leikstjóri og fyrrverandi skólastjóri Leiklistar- skólans, segist sjá mikinn mun á krökkum sem læra í Leiklistarskóla íslands og þeim sem læra erlendis. Það er miklu meiri einstakiingskennsla í skólanum hér heima en í flestum skólum eriendis. Hann segir að þau sem komi að utan geti lent í vandræðum með íslenskuna. Hann bendir einnig á að það kosti þau einnig aukaátak að koma sér inn í leikhúslífið hér þar sem leikstjórar og aðrir sem hafa með leikhúsmál að gera fýlgist með nemendum í Leiklistarskólanum allan þeirra námsferil. Stefán Jónsson er einstakt dæmi. Hann komst Ínn í Leiklistarskólann hér en hafnaði plássinu og ákvað að fara tii London og stunda þar leiklistarnám. Hann segir að þótt margir hafi orðið hissa á þess- ari ákvörðun hans hafi enginn móðgast. Hann viðurkennir að það hafi verið mjög erfitt fyrir hann að stunda leiklistarnám á ensku til að byrja með. Skólinn hafi hins vegar verið mjög góður og að hin „klass- íska grýla“ sem oft hafi verið kennd við enska skóla hafi síður en svo verið ráðandi. Það hefur oft verið sagt að leikar- ar sem hafi stundað nám sitt er- lendis eigi erfiðara uppdráttar en þeir sem útskrifast úr Leiklistar- skóla Islands. Stefán þvertekur fyrir það og segist ekki hafa átt í vand- ræðum með að fá vinnu, enda hafði hann oft sést á fjölum leikhúsanna áður en hann fór utan í nám og var því nokkuð þekkt stærð. Þannig að þótt margir leiti út eft- ir að hafa reynt árangurslaust við inntökuprófið hér heima er það ekki algild ástæða og Stefán segir að ástæðan hafi fyrst og fremst verið sú að hann langaði til útlanda. Hræðileg lífsreynsla! Svo eru aðrir sem komust inn í Leiklistarskólann en hefðu ábyggi- lega betur farið út. Þar hefðu þeir fengið að njóta sín betur. Ingibjörg Gréta Gísladóttir segir að árin í Leiklistarskólanum þafi verið hræðileg lífsreynsla. ,,Eg tÓk mér frí frá (eiklist- inni eftir ad ég útskrifaðist. Eg þurfti einfaldlega smá tíma til að jafna mig eftir skolann. Fyrir mig var hann rosalega erfiður og mjög osanngjarn að mörgu leyti. Ég sé samt ekki eftir að hafa farið í hann frekar en að fara út í skóla því öll reynsla er góð reynsla og ég velti mér ekkert upp úr því sem gerðist þar. Krakkarnir sem voru með mér í bekk voru mjög ólíkir einstaklingar og við náðum ekki vel saman. Auð- vitað koma alltaf upp erfið tímabil og óánægja hjá öllum bekkjum, annað er óhjákvæmilegt þegar sam- vinnan er eins náin og raun ber vitni.“ Ari Matthíasson var í sama bekk sem útskrifaðist 1991. „Kerl- ingaskóli,“ segir hann þegar ég spyr hann um álit. „Líkamsræktin sem er mjög mikilvæg fyrir leikara var til dæmis of einhæf. Það var of mik- ið af einhvers konar afró-dansi í stað þess að vera með þrekæfingar og almennilega líkamsþjálfun. Fólk hefur komist í gegnum skólann án þess að vera í góðu líkamlegu formi og það er náttúrlega alveg fárán- legt.“ Ari kvartar einnig undan álaginu sem var á nemendum skólans. Al- gengt er að nemendur í yngri bekkjum séu í skólanum frá 9 á . morgnana til sjö á kvöldin. Flest kvöld og helgar fara svo í að að- stoða eldri nemendur við að koma upp sýningum. „Allðvitað er pessi vinna stundum réttlætanleg en þegar maður er kominn með fjölskyldu fer þetta út í tóma vitleysu." Sigrún Ólafsdóttir sem var í hópnum sem útskrifaðist nú í vor er á öðru máli og segir álagið vera síst of mikið. „Það á að vera mikið álag í leiklistarskóla. Stundum mætti það jafnvel vera meira.“ Ekki eru teknir inn nemendur í skólann íjórða hvert ár og eru því aldrei fleiri en tuttugu og fjórir nemendur í skólanum í einu. Leik- listarnám er mjög dýrt og kostnað- ur við hvern nemanda er um ein og hálf milljón króna. Gísli Alfreðs- son, skólastjóri, segir að vegna fjölda umsækjenda og þrátt fyrir kostnaðinn sé verið að ræða um að fjölga nemendum sem teknir eru inn á hverju ári um tvo, jafnvel fjóra. „I mörgum fögum, svo sem listasögu, skiptir ekki máli hvort nemendur eru átta eða tíu upp á kostnað að gera. Þannig að kostn- aður á hvern nemanda yrði minni þó heildarkostnaður ykist eitt- hvað.“ Halldóra Björnsdóttir, leik- kona, vill láta bæta við fleiri lesfög- um sem auka ekki kostnað gífur- lega, svo sem heimspeki. Hún segir að það sé sérstaklega mikilvægt ef eigi að koma skólanum á háskóla- stig. Stefnt er að því að sameina Leiklistarskólann, Myndlista- og handíðaskólann og Tónlistarskóla Reykjavíkur undir sama þak í Lista- háskóla Islands áður en langt um líður. Gísli segir að Leiklistarskóli Islands standi fyllilega jafnfætis leiklistarskólum á Norðurlöndum sem eru á háskólastigi. LJndir það taka nemendur skólans. Sigrún Ól- afsdóttir segist hafa fundið á heim- sóknum í leiklistarskóla víða um Evrópu að hún og hennar bekkjar- félagar standi fullkomlega jafnfætis nemendum í erlendum skólum. Hilmir Snær Guðnason, bekkjar- bróðir hennar, tekur undir þessi orð og segir að skólar erlendis séu oft fastmótaðri. „Við fáum meiri alhliða þjálfun en margir erlendir leiklistarnemendur og fáum að kynnast ólíkum formum leiklistar- innar en til að mynda er í leiklistar- skólanum í Malmö sem við höfum mjög mikið samband við aðeins einblínt á eina tegund leiklistar." Benedikt Erlingsson, sem einnig er í útskriftarhópnum, segir að þetta hafi einnig nokkra ókosti í för með sér. „Við fáum að smakka á svo mörgu og það neyðir mann til að velja úr sjálfur. Það er erfitt og það er ekki alltaf sem maður nær nógu mikilli dýpt í ákveðnum hlut- um. Þar sem það er engin ákveðin námskrá fær í raun enginn bekkur sömu kennslu og það er mjög gott. Þó væri betra ef ráðnir væru nokkr- ir fastir kennarar við skólann sem gætu myndáð einhverja ákveðna stefnu tii að styðjast við.“ Þröstur Leó Gunnarssson tekur í sama streng og segir að það hafi stundum skapað vandamál þegar skoðanir kennara stönguðust á. Leiklistarnemar í draumaheimi Kennarar við skólann eru auðvit- að misjafnir eins og gengur og ger- ist. Sumir njóta vinsælda, aðrir ekki. Kennarar eru aðeins ráðnir frá ári til árs og því ríkir mikið óör- yggi í þeirra starfsstétt. Einn þeirra sem kennt hefur leiktúlkun við skólann er Kári Halldór Þórsson. Hann er mjög umdeildur kennari og frægur fyrir að brjóta menn nið- ur. Hann hefur í rauninni tekið að sér þetta niðurbrots- hlutverk sem er nauðsynlegt til að gera menn meðvitaða um stöðu sína en það virðist oft vera sem nemendur lifi í hálfgerðum draumaheimi þegar þeir fá úrskurð um að þeir séu einn af átta. Benedikt orðar þetta þannig. „Það er orðið svo mikið ego-púst að komast inn í skólann að það tek- ur krakkana alveg tvö ár að lenda og gera sér grein fyrir að þau eru engir leiksnillingar.“ Gísli segir að það sé mikið um að kennarar við skólann fari til út- landa til að kynna sér aðferðir og fýlgjast með því sem er að gerast í leiklistarheiminum. Erlendir gesta- kennarar hafa einnig komið hingað og kennt ýmis tækniatriði. Hall- dóra Björnsdóttir segir að meira hafi mátt vera um þannig gesta- kennara og starfandi leikurum sem komi og kenni tímabundið við skólann. Ari Matthíasson er á sama máli og segist hafa lært mest af starfandi listamönnum sem unnu með nemendum á meðan náminu stóð og hrósar hann Kristbjörgu Kjeld, Kjartani Ragnarssyni og Pétri Einarssyni sérstaklega í þessu tilliti. „Ég lærði mest um listina af utanaðkomandi kennurum.“ Yfir hverju er svo að kvarta, Ari? „Það vildi oft gleymast að nem- endur hafa ólíkar þarfir. Það var allt njörvað niður.“ Var þá verið að sníða alla í sama form? „Nei, það er bara einhver vitleysa sem fólk úti í bæ heldur.“ Þröstur Leó Gunnarsson kvartar einnig undan því að einstaklingun- um hafi ekki verið veitt nógu mikil athygli og ekki nógu vel fylgst með nemendum. „Þaö V3F til dæmis einn með mér í skóianum sem var góður fyrstu tvö árin en svo staðnaði 16 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.