Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 19.05.1994, Qupperneq 24

Eintak - 19.05.1994, Qupperneq 24
Fáir listamenn eru jafn umdeildir og bandaríski Ijósmyndarinn Joel-Peter Witkin. Hann sópar að sér verðlaunum jafnt sem fyrirlitningu hvert sem hann fer en myndir hans kosta allt að tveimur milljónum króna. I tilefni listahátíðar mun hann sýna forboðna sjónvexti á Mokka við Skólavörðustíg og hér bregður eintak Ijósi á þennan gest sem á örugglega eftir að vekja eftirtekt og umtal hér á landi sem annars staðar. Med augafyrr MNU PORBODNA Föstudaginn 3. júní opnar sýning á Mokka í tengslum við listahátið á verkum bandaríska ljósmyndarans Joel-Peter Witkin. Sýningin er skipulögð af Hannesi Sigurðssyni listfræðingi í samráði við ljósmynd- arann og Pace/McGill galleríið sem er eitt af virtustu galleríunum í New York. Witkin er 54 ára og með frægustu ljósmyndurum innan listageirans í dag og sópar að sér verðlaunum og fyrirlitningu hvert sem hann fer. Hann segir að ekki vaki fyrir sér að valda hneyksli heldur kýs hann frek- ar að líta á list sína „sem umhyggju fyrir hinum vanelskuðu, afbrigði- legu og útskúfuðu," eins og hann orðar það. Witkin telur að þessi umhyggja knýji sig til að sýna feg- urð þeirra, varnarleysi og angist og með því göfgi hann þjáningu þeirra og í framhaldi af því þjáningu okkar allra. Hannes segir í fréttatilkynn- ingu um sýninguna að vera megi að þetta hljómi hégómlega fýrir suma en skoðun hans sé sú að Witkin sé „ekki betri eða verri en hver annar tískuljósmyndari er gerir sér mat úr lappalöngum horkvendum með skurðhækkuð kinnbein," eins og hann orðar það. „Súperfyrirsætur hans hafa einfaldlega rammöfugt formerki,“ segir hann. Witkin hefur um árabil beint linsu sinni að mannlegum viðundr- um af öllum sortum og heldur sig yfirleitt langt fyrir utan þau velsæm- ismörk þar sem þjóðfélaginu þykir rétt að draga strikið. Hann hefúr ljósmyndað handleggjalaust og fót- leggjalaust fólk, og höfuð án líkama eða líkama án höfuðs. Fólk með bæði brjóst og typpi, og fólk með hvorugt þessara líffæra. Witkin hef- ur fengið menn til að sitja fyrir hjá sér með krossfestum öpum, að gefa ál á brjóst, að hamra átta tommu nagla í nefið á sér, og að fróa sér á hvítþvegnu gifslíkani af karlinum í tunglinu svo tekin séu dæmi úr list- sköpun hans. fiannes kveður Witkin vera eins konar gullgerðarmann er fæst við að breyta hryllingi í fegurð, ónáttúru í eðlileika og grimmum veruleika í súrrealíska gráglettu. „Joel-Peter Witkin vinnur á útjaðri ímyndunar- aflsins svo fjarri almennum þanka- gangi að fólk neitar oft að meðtaka eða trúa því sem það sér. Hann er ekki heimildaskrásetjari heldur ofsafenginn expressionisti,“ segir Hannes. Sem dæmi tekur Hannes verk sem sýnir andvana reifabarn á silfurbakka innan um rækjur, vín- ber, og granatepli og afskorna út- limi í andlíkingu við hollenskar kyrralífsmyndir frá 17. öld. „Slíkt er kannski ekki beinlínis til þess fallið að auka mönnum matarlystina, en slík er hin fráhrindandi fegurð Witkins að jafnvel þótt áhorfandinn segi nei í byrjun er meðhöndlun hans á viðfangsefninu svo tælandi að vera má að hann segi já að lok- um,“ bætir listfræðingurinn við. „Witkin skapar kynjaverum sín- um hárómantíska, nútímaseraða sviðsumgjörð í afbökuðum anda gömlu málarameistaranna og um- breytir þeim í blygðunarlausa, per- sónulega sýn af hinu mikilfenglega," segir hann. Grípum niður í grein eftir Ri- chard B. Woodward úr banda- ríska tímaritinu Vanity Fair frá í apríl 1993 sem Hannes hefur þýtt og endursagt í tengslum við sýninguna. Að snerta eymd og dauða með augunum Witkin er einn yfirgengilegasti ljósmyndari fyrr og síðar, mun meira ögrandi en Robert Mapple- thorpe upp á sitt afbrigðilegasta, enda hefur honum gengið fádæma vel að ráða til sín draumafyrirsæt- urnar. Aðdáendur hans líkja honum við Hieronymous Bosch meðan níðl- ar hans ásaka hann um lágkúrulega æsimennsku. Krufningamaður nokkur við læknadeild háskóla Nýju-Mexíkó kallaði Witkin annan Jeffrey Dahmer (fjöldamorðing- inn sem át hluta fórnarlamba sinna) og néri honum um nasir að hafa lít- ilsvirt mannslífið með því að punta lík með sérhönnuðum skartgripum. Verðið á verkum Witkins er með því hæsta sem gerist í nútíma ljós- myndun. Eintak af einni alræmd- ustu mynd hans, Kossinum, seldist á uppboði hjá Sotheby’s árið 1990 fyrir tvær milljónir króna. Myndin sýnir höfuð gamalmennis sem meinafræðingur sagaði í tvennt og Witkin tyllti pörtunum saman vör við vör. Helstu ljósmyndasöfn í heimi eiga myndir eftir hann og margar dægurhetjur safna þeim af kappi, einkum og sér í lagi leikarinn Richard Gere. Ljósmyndir Witkins eru án efa á mörkum velsæmis og vansa. Hann getur virst sem örvæntingarfullur sjónvarpsspyrill í leit að sífellt furðulegri gestum til að auka vin- sældir sínar. Það sem bjargar hon- um hins vegar frá slíkum lúahætti er handverkið. Hann á sér fáa jafningja í prentun svart-hvítra ljósmynda. „Ljósmyndir hans einkennast af þessari barokkást á óhófi,“ segir Germano Clement, stjórnandi nú- tímalistadeildarGuggenheim-safns- ins. „Þær eru barmafullar af skír- skotunum til úrkynjunar og upp- tendrunar, til rotnandi líkama og þess að umbyltast á leikrænan hátt.“ Myndir Witkins, með sínu rugl- ingslega kynferði og dramatísku áherslum á holdsins pínu, skipa undarlegan sess í heimi listarinnar. Eins og ljósmyndarar á borð við Weegee, Arbus, og Mapple- thorpe, opinberar hann hið for- boðna og espar upp í okkur löng- unina til að gægjast inn fyrir tjald fílamannsins, að snerta eymd og dauða með augunum. Fyrirsætur hans, umkringdar íburðarmiklu baksviði, eru oft útbúnar sem goð- sagnarverur aftan úr grárri forn- eskju eða Hollywoodstjörnur frá fimmta áratugnum. Hann vill að þær líti út forvitnilegri og meira töfrandi en nokkur gæti ímyndað sér. Joel-Peter Witkin Listamaðurinn Joel-Peter Witk- in sem sýnir verk sín á Mokka í tilefni listahátíðar. Að baki þrásækni Witkins í hið skelfilega býr hrekklaus eldmóður. Eftirmálinn, þessi sjúklega ná- kvæmu tilmæli, er eins og bréf til jólasveinsins frá blíðu en vitstola barni. „Mér finnst myndir hans mjög átakanlegar en líka mein- fyndnar," segir Richard Gere sem á yfir 20 verk eftir hann í einkasafni sínu. „Það tók mig fimm eða sex ár að átta mig á að þær komu mér til að hlæja. Það var ekki fyrr en ég kom auga á hið kaldhæðnislega í þeim að ég treysti mér til að kaupa þær.“ Gere var vanur að skella myndunum upp á vegg heima hjá sér til að reyna á þolrif kærastanna. Ef þær gátu setið með honum í sama herbergi og Witkin þá gátu þær umborið hann. I sambúð með tveimur konum Witkin flutti frá New York til Al- buquerque í Nýju-Mexíkó árið 1975 þar sem hann býr á ellefú hektara búgarði. Landareignin liggur að fyrrverandi athvarfi fyrir kaþólska presta, brandari sem hefur ekki far- ið framhjá heimilisfólki hans sem hefur guðlast að siðareglu. Meðlimir þessarar óvenjulegu fjölskyldu telja eiginkonu hans, Cynthíu Bency, sem er svarthærð- ur húðflúrari, 18 árum yngri en hann sjálfúr, ljósleitinn son þeirra 14 ára, Kersen, og fölleitu rauðkolL una Barböru Gilbert er bættist við heimilishaldið sem elskhugi Cynt- híu fýrir sex árurn. Þrátt fýrir reglu- leysi slíkra ástarþríhyrninga hefur þetta aukið mönnum svo fjörið að Joel, Cynthía og Barbara sofa öll í sama rúmi. Skylduliðið lætur Witkin eftir að stjórna sveita-útgerðinni, en bú- garðurinn er keyptur og rekinn fýrir sölu á verkum hans. Cynthía og Barbara sjá um bókhaldið og bréfa- skriftir, pakka ofan í töskurnar fyrir ferðalög Witkins og aðstoða við uppsetningu fýrir myndatökur sem geta tekið allt upp í tvær vikur. „Við reynum að styðja við bakið á hvert öðru eftir fremsta megni,“ bendir Cynthía á. „Líf okkar er samofið list Joels.“ Konurnar hjálpa Witkin einnig Viðundur óskast í eftirmála bókar sinnar frá 1985 fór Joel-Peter Witkin þess ein- læglega á leit að fólk hefði samband við sig upp á myndatökur. Fyrirsæturnar sem hann sóttist eftir voru ekki á samningi hjá Wil- helmina eða Elite. Auglýsingin hljómar eins og hlutverkaskipan fyrir drungalegt leikrit í samvinnu Dantes og John Waters: Ófullkominn listi yfir ákjósanleg módel: Mannleg furðuverk af öllum sortum, vatnshausar, dvergar, risar, krypplingar, óspjallaðir kynskiptingar, skeggjaðar konur, sirkusviðundur starfandi eða sest í helgan stein, snákmenni (erótísk), konur með eitt brjóst (í miðju), konur með svo stór brjóst að þær þurfa burðarstoðir fyrir þau. Fólk sem lifir eins og teiknimyndahetjur. Satýrar, tvíburar áfastir við enni, allir sem hafa sníkils tvíbura. Tvíburar með sam- eiginlegan handlegg eða fótlegg. Lifandi kýklópar. Fólk með hala, horn, vængi, ugga, klær, öfugsnúnar hendur eða fætur, tröllslega útlimi o.s.frv. Fólk með viðbótar handlegg, fótlegg, auga, brjóst, kynfæri, nef, eyra, vör. Fólk án handleggja, fótleggja, augna, brjósta, kynfæra, eyrna, nefs, vara. Allir með óvenju stór kynfæri. Kynlífsdrottningar og þrælbindingar. Konur með andlit þöktum hárum, eða hlaðnar kaunum, reiðubúnar að sitja fyrir í kvöldkjól- um. Fimm viðrini til að stilla sér upp sem „Ungfrúar frá Avignon". Anórexíu-sjúklingar (helst sköllóttir). Hauskúpur af mönnum og mennskir nálapúðar. Fólk með skápana fulla af togleðursflíkum. Kúkalabbar. Pyntingartól úr einkasöfnum. Kynferðislegir skó- og lífstykkjadýrkendur. Hinir glæpsamlega rómantísku og vitfirrtu (einungis naktir). Hvers konar sýnileg afskræming: stórframandi, mannlegir og dýrslegir líkamspartar. Tvíkynjungar og vanskapling- ar (lifandi og dauðir). Lagleg kona með starfhæfa stúfa í stað handleggja. Ljóshærð stúlka með tvö andlit. Verur frá öðrum plán- etum. Lifandi goðsögur. Hver sem ber þjáningarmerki Krists. Allir sem telja sig Guð. Guð. Væntanleg módel fá prent eftir Witkin með mynd af sjálfum sér sem greiðslu. Svör sendist til: Joel-Peter Witkin c/o Twelvetrees Press 2400 North Lake Avenue Altadena California 901001 Guðir himins og jarðar Joel-Peter Witkin leitar oft í smiðju endurreisnarmálaranna og hér erþað Fæðing Venusar eftir Botti- celli sem færð er í nýjan búning. 24 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.