Eintak

Útgáva

Eintak - 19.05.1994, Síða 25

Eintak - 19.05.1994, Síða 25
+ við að útvega fyrirsætur og hafa komið upp samskiptaneti „tísku- spæjara" í New York, París, og Los Angeles með augun opin íyrir áhugaverðum afbrigðum. Barbara rennir stundum línunni fyrir á bör- um, búin hvorugkynslegum klæðn- aði. Þeim gengur misjafnlega að landa aflanum. „Það er nógu erfitt að fá kynskiptinga til að sitja fyrir nakta,“ kvartar Cynt- hía. „Og það er sérstaklega erfitt ef þú vilt fá þá nakta saman. Sam- keppnin og eigingirnin er svo mik- il.“ Myndatökur hjá Witkin geta sýnst eins og siðspillt nestisferð þar sem vinir, klæddir og óklæddir, flat- maga á sviðinu innan um vínflöskur og fjölskylduhundar eru kembdir fyrir smárullu í næstu senu. Ljós- myndarinn stólar á konurnar að koma fyrirsætunum í réttar stelling- ar og kemur ekki nálægt þeim sjálf- ur. Hann gefur hraðar leiðbeining- ar, gusar út úr sér hnyttnum at- hugasemdum og hleypur fram og til baka á milli myndavélarinnar og sviðsins til að biðja fyrirsæturnar að halda sólhlífmni aðeins hærra, að láta skína örlítið meira í geirvört- una. Segja má að Witkin hafi hin mannlegu furðuverk, sem hann notar sem fyrirmyndir sínar, að fé- þúfu í þeim skilningi að hann veltir sér upp úr bágindum þeirra og hef- ur gott upp úr því. „Myndirnar hijóta að reiða eða móðga ein- hvern,“ segir listfræðingurinn Eug- enia Janis, „hann er á ská og skjön við allan pólitískan rétttrúnað.“ Margar fyrirsætur Witkins mæta hins vegar á opnanir hans og veisl- ur, eitt merki þess að þeim finnst meðhöndlunin ekki niðurlægjandi. Witkin vill meina að þessi þörf hans fyrir að festa þessar óvanalegu verur á filmu sé sprottin af persónulegri nauðsyn og svo knýjandi að hún virðist fríkaðri en nokkuð innan rammans. Hann segist alltaf vera að spyrja sjálfan sig hvað það sé sem laði sig að hryllilegum og fallegum hlutum. „Ég held það hafi eitthvað með ofbeldi og ótta að gera,“ segir hann. Ég vona að ég geti umsnúið þessu í afl sem er einkennandi fyrir okkar tíma. Ég hata fagurfræði heimsins og skapa þetta lokaða rými sem er heimurinn. Ég vona að líf mitt og list séu óaðskiljanleg," segir hann. Saklaus yfirlýsing ef hún kæmi af vörum einhvers annars listamanns. Skoppandi höfuð Witkin eyðir mestum tíma við framkallanir í myrkraherbergi stúd- íósins, stórri heyhlöðulegri skemmu spölkorn frá húsinu. Utan á bygg- Kona á borði / myndum Joel-Peter Witkin koma fyrir alls kyns vanskapn- ingar og furðuverur eins og konan á þessari mynd. ingunni er veggplatti merktur „Stúdíó Witkins: Chevalier des arts des lettres" (Riddari bókmennta og lista). En þessi heiður, sem franska ríkið sæmdi hann árið 1990, vekur hjá honum þvílíkt stolt að hann skartar barmmerkinu er fylgdi út- nefningunni, eiginkonunni til lúmskrar skemmtunar. Enda þótt Witkin njóti metorða sinna hefur hann einstakt lag á þeirri kúnst að slá um sig nöfnum. Hann getur lýst með næstum sann- færandi upphafningu hvernig súp- er-fyrirsætan Cindy Crawford kastaði upp í baðherbergi við opn- un einnar sýningar hans í Los Ange- les. „Þetta er einkenni fagurra kvenna,“ útskýrir hann með and- varpi. „Hún er meira að segja sæt þegar hún ælir.“ Witkin stendur aðskilinn frá samtíðarmönnum sínum án greini- legra fyrirrennara eða áhangenda. Þýski portrett-ljósmyndarinn Aug- ust Sander er sá eini sem hann fullyrðir að hafi haft sterk áhrif á sig, en umbúðalaus og óvægin verk hans höfðu einnig áhrif á Diane Ar- bus. Hvorugur þessara forvera er samt jafn afdráttarlaus og Witkin. Og þrátt fýrir að viðfangsefni hans eigi ýmislegt sameiginlegt með við- fangsefnum Mapplethorpes, er að- hylltist viðhafnarlausa smættar- hyggju að hætti klassíska skólans og átti það á hættu að ramba á barmi hins kalda og tískukennda, lætur Witkin ekki ótta við smekldeysu aftra sér þegar ímyndunaraflið tek- ur á flug. Allegóríur Witkins um sköpun og óeðli sýna hann oft upp á sitt slakasta, þær eru jafn þvældar og ofhlaðnar og hjá málurum Viktor- íutímans. Þegar hann einfaldar aftur á móti myndir sínar geta áhrifin verið yfir- þyrmandi og hvorki litskyggnur eða eftirprentanir ná að miðla áhrifum sjálfra verkanna. Þau eru rispuð, út- slett með seleníum lausnum og öðr- um efnavökvum og ljósbrotin í gegnum pappírsþurrkur eða hand- unnin gler. Utkoman minnir á fág- að en étið yfirbragð Daguerre ljós- mynda. Ef sum verkanna virðast til- gerðarleg og of unnin tekst honum í öðrum listUega að kanna rýmið á milli póst-módernismans og hins löngu liðna. Að fara í læknaskóla og líkhús í leit að módelum er viðleitni til að endurheimta hið gullna tíma- bil þegar listamaðurinn og líffæra- fræðingurinn voru eitt og hið sama. Skírskotanir Witkins til gamalla meistara eins og Bosch, Botticelli, Titians, Rubens, og módernista á borð við Picasso og IVIíró má líta á sem tilraun einangraðs póst-mó- dernista til að skapa sjálfum sér og olnbogabörnum sínum listræna fjölskyldu. Witkin notar oft söguna um hvernig hann varð vitni að hörmu- legu slysi, þá sex ára að aldri, sem sjálfsævisögulegan stökkpall fyrir blóðugar tilhneigingar sínar. Það átti sér stað í Brooklyn þegar hann var að ganga niður tröppurnar á leiguíbúð fjölskyldunnar með móð- ur sinni og bróður. Frá götunni barst gjallandi málmískur þriggja bifreiða er lent höfðu í hörðum árekstri. í ringulreiðinni losnaði hann úr höndum móður sinnar og segir í einni útgáfunni á sögunni; „þar sem ég stóð á gangstéttarbrún- inni gat ég séð eitthvað rúlla í átt til mín úr einum bílanna. Ég mændi hokinn á götuna. Fyrir neðan var höfuð lítillar stelpu. Ég mændi mig niður til að snerta andlitið og spyrja það...en áður en ég gat það bar mig einhver í burtu.“ (1 öðrum frásögum tók hann upp höfuð- ið og hélt því við aug- að „eins og myndavél,“ - blóðstokk- in fæðing listrænna ör- laga hans.) inn skoppandi Gorgónshaus útbú- inn Kodak- filmu.“ „Ég held að Joel hafi trúað þessari sögu lengi vel,“ segir Jerome Witkin, bróðir hans. „Maður veltir því fyrir sér hvort raunveruleikinn nægi honum ekki.“ Raunveruleikinn í tilviki Witkin fjölskyldunnar var napur en óvana- legur. Joel og Jerome eru eineggja tvíburar og væru þríburar hefði móðir þeirra ekki misst stúlkufóstur snemma á meðgöngunni. „Ég segi alltaf að Joel hafi sparkað henni út,“ læðist spaugilega upp úr henni. Á meðan Jerome blómstraði sem hinn efnilegi listamaður innan fjölskyld- unnar gerðist Joel heittrúaður og plumaði sig ljómandi vel í sóknar- skólanum. Átta ár af kristinfræðslu skildi eftir sitt far á tvíburunum. Jerome, sem styðst við harðbrjósta þemu úr kristni og gyðingdómi í málverkum sínum, heldur því fram að ásæknar ígræðsluhugmyndir um erfðasyndina hafi haft djúpstæð áhrif á list þeirra beggja. Hann við- urkennir engu að síður að bróðir hans sé í flokki út af fyrir sig. „Sem Sparkaði fóstrinu út Mikil sorgarsaga, segir íjölskylda hans, sent aldrei gerðist. „Hann var með ímyndunaraflið í góðu lagi frá unga aldri,“ segir móðir hans. „- Þetta var slæmt slys, já. Lítil stúlka dó. En guð hjálpi mér, það var eng- PORTRETT AF NAN Hér hefur Joel-Peter Witkin tekið mynd bandaríska málarans Grant Wood og útfært hana á sinn persónulega hátt. tvíburar höfúm við ansi skuggalegar sýnir en ég bendi fólki á að ég sé í hreinsunareldinum og að Joel sé í víti.“ Joel fékk fyrstu myndavélina sína þegar hann var 15 ára eftir að hafa farið á námskeið í verksmiðju ntóð- ur sinnar. Á ferðalagi um Coney Is- land með Jerome, sem var að leita að vanskapningum fyrir málverk sín, tók hann mynd af tvíkynjungi. Witkin fúllyrðir að hafa átt sínar fyrstu samfarir með henni/honum en ekki er hægt að staðfesta að fótur sé fyrir því. Lengst framan af átti Joel-Peter Witkin lítilli velgengni að fagna og sá fyrir fjölskyldu sinni allt fram til ársins 1983 með því að vinna sem yf- irkokkur á ítölskum veitingastað. Eftir að hafa sýnt á samsýningum snemma á áttunda áratugnum komu áhrifamiklir safnarar loksins auga á hann. Auglýsingamógúllinn Charles Saatchi sem er leiðandi afl í söfnun samtímalista keypti hverja einustu mynd á fyrstu sýn- ingu hans í Pace/McGill galleríinu árið 1984. Árið eft ir var honum boð- ið að taka þátt í tvíæringi Whitney- safnsins og Nútímalistasafhið í San Francisco heiðraði hann með einka- sýningu. Witkin kallar sig „hinn full- komna rannsóknarmann“ og reynir sífellt að vera vakandi fyrir frávikum í mannlegri hegðun og sköpulagi enda þótt aðrir kunni að mistúlka tilganginn. „Annað hvort er ég sið- blindingi með ofurnæmt fagur- fræðilegt skynbragð eða algjörlega heilbrigður, segir hann og ypptir kæruleysislega öxlum. „Hvort held- ur sem er, þá veit ég að ég ræð ekki við mig. Þetta er það sem ég fæddist til að gera.“ © FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1994 25

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.