Tíminn - 11.06.1977, Qupperneq 13
Laugardagur 11 júni 1977
13
förum viö inn á stofnanir og á
þriöja og fjóöa ári erum viö
samhliöa bóklega náminu ca.
2-3 daga inni á deildum sjúkra-
húsa og heilsugæzlustööva. A
sjúkrahúsum erum viö alltaf
undir leiösögn hjúkrunar-
kennara.
Kenna á námstimanum
— Hverjir annast kennsluna?
— Kennarar eru ýmsir hjúkr-
unarfræöingar, prófessorar og
dósentar viö háskólann, auk
stundakennara. Einn
hjúkrunarfræöinganna sem
kennir okkur hefur numiö
hjúkrunarfræöi viö háskólann i
Manchester, og hlaut til þess
styrk frá Alþjóöa Heilbrigöis-
málastofnuninni. Tveir aörir
hlutu sama styrk og munu
væntanlega kenna viö náms-
brautina. Einnig hafa erlendir
sérfræöingar leiöbeint okkur
um lengri eöa skemmri tima.
— Þiö hafiö einnig kennt á
námstimanum, er þaö ekki?
— Jú, æfingakennslan fer
þannig fram, aö viö kennum 1.
og 2. ári I námsbrautinni bæöi
bóklega og verklega hjúkrun, en
kennslufræöin er ein af aöal-
námsgreinunum á fjóröa ári. A
fyrra misseri hlýöum viö á sam-
eiginlega fyrirlestra meö upp-
eldisfræöinemum úr félags-
visindadeild og þá fariö i helztu
kenningar i sambandi viö náms-
markmiö og námskrárgerö. A
siöara misseri eru áframhald-
andi fyrirlestrar, kennslu-
æfingar, umræöutlmar og fl.
Hlutur stjórnunarfræði
— Þvi heyrist stundum fleygt,
aö stjórnun sé einn stærsti
þátturinn I ykkar námi? Hversu
stór er hlutur stjórnunar-
fræöinnar i raun og veru?
— Til þess aö gera betur grein
fyrir þvi, vil ég geta þess, aö til
þess aö öölast BS próf i hjúkr-
unarfræöi þarf 120 einingar á 4
árum, eöa 15 einingar á misseri,
sem eru tvö yfir áriö. Stjórn-
unarfræöin tekur yfir 4 einingar
á vormisseri fjóröa árs. A sama
tima eru einingar I kennslu-
fræöinni 8 og ná yfir bæöi miss-
erin.
— Forvitnin rekur mig til þess
aö spyrja þig nánar út i stjórn-
unarfræðina. i hverju er hún
fólgin?
— I stjórnunarfræöinni er
fjallaö m.a. um einstaklinginn i
hópi viö vinnu og sem þátttak-
anda "í ákvaröanatöku. Viö
lærum aö skipuleggja vinnu og
stuöla aö góöri samvinnu.
Einnig er fariö út I ýmsar
tegundir stjórnskipulags, kosti
þeirra og galla. Aö endingu var
fariö út I stjórnskipulag heil-
brigöisstofnana og yfirstjórn
þeirra.
— Hver annaðist þennan þátt i
kennslunni?
— Viö sem vorum á fjóröa ári
fengum sendikennara frá
Kanada, Margaret Hooton, pró-
fessor viö McGill University I
Mongreal. Hún kom bæöi I
desember og janúar. 1 siöara
skiptiö vorum viö eingöngu hjá
henni, þannig aö viö vorum I
fyrirlestrum á hverjum eftir-
miödegi og á spltulunum á
morgnana. Fræðilegar kenn-
ingar I stjórnun tengdust þannig
strax starfinu.
Einstaklingshæfð
hjúkrun
— Eru hjúkrunarfræðingar
BS langt frá hinum sjúka?
— Okkar menntun byggist á
félagslegum og sálrænum þætti
hjúkrunar, sem ætti frekar aö
færa okkur nær sjúklingnum en
fjarlægjast hann. Gengiö er út
frá þvi ,aö grundvöllurinn undir
hjúkrunarstarfiö sé þekking og.
skilningur á manninum meö til-
liti til samskipta hans viö um-
hverfiö. Þannig veröi maöurinn
ekki skilinn nema i ljósi um-
hverfis sins. Af þessu leiöir, aö
hjúkrunin verður þaö sem kall-
ast á erlendri tungu „person
oriented” eöa einstaklingshæfö
hjúkrun ekki slöur en „task
oriented” eöa verkhæfö
hjúkrun.
— Geturöu lýst einstaklings-
hæföri hjúkrun nánar?
— A námstlmanum erum viö
sérstaklega þjálfaöar I þvl aö
fara frá einum og upp I heildina.
Viö byrjum á þvi aö hugsa um
einn sjúkling á deild meö tilliti
til likamlegra, og sálfræöilegra
og félagslegra þarfa hans þrjá
daga i senn. Viö greinum hans
vandamál, gerum hjúkrunar-
áætlun og framkvæmum eftir
þvlsem tlmi vinnst til. A slðasta
námskeiöi erum viö svo komnar
út I þaö aö skipuleggja hjúkrun
fleiri sjúklinga, vinna meö
fleira fólki og skipuleggja
þeirra starf.
— Er námiö erfitt?
— Þaö er misjafnt, hvaö fólk
kallar erfitt. Staöreyndin er, aö
á fyrsta ári eru miklar kröfur
geröar á prófum og sumum
finnst fögin þung. Menn sækja
tlma innan verkfræöi- og raun-
visindadeildar, læknadeildar og
annarra deilda og taka sömu
próf. Timasókn er töluverö
samhliða verklegri kennslu á
deildum og er námiö þungt aö
þvi leyti, aö hér er um aö ræöa
jafna vinnu.
Stéttarfélag?
— Þekkja stúdentar almennt
vel þessa námsleið?
— A vegum menntamálaráöu-
neytisins eru alltaf starfs-
kynningar á hverju ári i
menntaskólum landsins og
höfum viö tekiö þátt i þeim. Auk
þess hafa mentskælingar I
Reykjavlk, Kópavogi og
Hafnarfirði tekiö þaö upp hjá
sér aö hafa kynningar á deildum
innan háskólans. Gagnkvæmur
kynningarfundur var haldinn
með Hjúkrunarskóla íslands, og
Nýja Hjúkrunarskólanum þar
sem þessar tvær námsleiöir
skiptust á fróöleik.
— Og hafiö þiö svör viö öllum
fyrirspurnum?
— Aö mestu leyti nema hvaö
varöar launin, enda erum viö
ekki i neinu stéttarfélagi ennþá.
Nefnd er starfandi innan náms-
brautarinnar, sem aflar upp-
lýsinga um möguleika varöandi
stéttarfélög. Persónulega vil ég
umfram allt aö gott samband sé
viö aöra hjúkrunarfræöinga,
sagöi Þórdis Kristinsdóttir aö
lokum.
Bændur — Athugið
SALTSTEINAR FYRIR BÚFÉ
Innihalda nauðsynleg steinefni. Auðveldir i notkun.
Fyrirliggjandi hjá:
Samband isl. samvinnufélaga
Kaupfélögin
UM autlSd innflutningsdeild
Auglýsið í Tímanum
Ertilvalinn sem ferðabíll fjölskyldunnar
á öllum árstimum.
Til afgreiðslu strax og meira að segja á
lækkuðu verði.
Til afgreiðslu strax... og meira að segja
á lækkuðu verði.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
SUBARL)
torfærubíllinn
\
torfærubíllinn með drifi á öllum hjólum sameinar
gæði fjölskyldubils og fjallabils
Á LÆKKUÐU VERÐI
Þetta glæsilega sófasett bjóðum við bæði leðurklætt
eða með vönduðu óklæði eftir eigin vali, í
Skeifuhúsinu við Smiðjuveg og í Kjörgarði
Verið velkomin
KJÖRGARÐI m smidjuvegi 6 sími 44544