Tíminn - 11.06.1977, Síða 29

Tíminn - 11.06.1977, Síða 29
29 Laugardagur 11 júnl 1977 fræðingurinn hafði sjálf- ur ,spurzt fyrir um þetta hjá dómsforsetanum og hann hafði fullvissað hann um að hér væru engin mistök. Er lög- fræðingrinn spurði um ástæðuna, var honum sagt að þetta væri gert vegna þess, að Árni væri útlendingur. Dómararnir vildu með þessu sýna þessum út- lendu byltingaseggjum, að þeim væri hollast að blanda sér ekki inn i málefni Rússlands. Ákvörðun þessi var tek- in með samhljóða at- kvæðum og henni var ekki hægt að breyta. Hér var ekki umþok- að. Lögmaðurinn talaði enn alvarlega við Berit. Hann sagði henni, að Werchojansk væri ömurlegasti staður i allri Síberiu og væri þvi mikill ábyrgðarhluti að leyfa ungri stúlku að fylgja nokkrum manni i slika útlegð. Hún væri lika nýstaðin upp af sjúkrasæng. Hann sagði henni lika þegar hún loks væri komin þarna norður, þá gæti hún ekki snúið aftur, þótt hún vildi. ,,Þér megið eiga það fullvist að yðar biður þarna mikill skortur og margir erfiðleikar”, hélt lögfræðingurinn áfram máli sinu. Kuld- inn einn veldur hræði- legum vandræðum, sem enginn getur gert sér hugmynd um fyrir fram.Haldið þér, Berit að þér þolið slikar þjáningar? Þér megið ekki gleyma því að lif fanganna er álitið hræðilega erfitt og þér mynduð búa við sömu kjör. Ég álit að þér ætt- uð nú strax að breyta ákvörðun yðar, meðan það er hægt. Ég veit að allir telja þetta hið eina rétta fyrir yður, erþeir hafa frétt, hvar Árni skal dvelja útlegðar- árin. Sjálfur vill Árni sizt af öllu að þér leggið út i þetta, og hann hefur lika þegar bannað það”. En öll rök hans höfðu engin áhrif á Berit. Hún var enn ákveðnari en fyrr að láta ekki Árna fara einan i þetta „kuldaviti”. Það gat alltaf verið að hún gæti eitthvað hlynnt að hon- um og að minnsta kosti fengju þau að sjást öðru hverju. ,,Já, ég sé það”, sagði lögmaðurinn, ,,að yður er ekki hægt að snúa en þá verð ég og konan min að hjálpa yður til að búa yður út eins vel og mögulegt er. Við ættum að vita betur en þér hvað þarf að hafa með sér i slika útlegð”. Berit lét i ljós að hún væri innilega þakklát, ef þau vildu leiðbeina henni og hjálpa við út- búnaðinn. Burtfarardagurinn var ákveðinn 18. apríl. Þangað til voru niu dag- ar. Lögmaðurinn kynnti sér, hvaða reglur hefðu verið gefnar um konur sem fara vildu að eigin vali i útlegðina. Reglurnar voru límdar upp i anddyri lögreglu- stöðvarinnar. Þar stóð meðal annars, að allar konur sem vildu fylgja mönnum sinum, bræðrum og unnustum i útlegðina, skyldu koma til viðtals næsta föstu- dag, hinn 12. sama mánaðar, klukkan tiu fyrir hádegi. Þeim yrði leyft að hafa með sér allt að 100 kg af farangri en ef þær hefðu meira með sér, þá yrðu þær að borga visst gjald undir hvert kiló. Annars greiddi rikið allan kostnað við ferðina. 16. Berit skalf af eftir- væntingu er hún nálgaðist lögreglu- stöðina á tilsettum tíma. Hvernig skyldu þessar konur lita út, sem yrðu ferðafélagar hennar og nánustu samstarfs- menn, ef til vill i fjögur ár? Skyldi henni geðjast þær? Hvernig ætli þeim litist á hana? Mikið valt á þessu. Það fór hrollur um hana ef þær yrðu óásjálegar og hryssings- legar. En hún varð strax vongóð er hún kom inn i biðstofuna. Þar sátu þá þegar fjórar konur og komu heldur ekki fleiri. Þær tóku strax tal saman þvi að hver og ein vildi kynnast þess- um væntanlegu félags systrum. Áður en stundarfjórðungur var liðinn höfðu þær allar sagt til nafns sins og voru farnar að þúast. Sú sem sat næst Berit var falleg ung stúlka aðeins 19 ára gömui. Hún hét Tatjana og var frá Moskvu. Þar yar faðir hennar prófessor við háskóla og kenndi sögu. Fyrir fjórum mánuðum síðan hafði hún gifzt ungum lög- fræðingi frá Tashkent. Af sérstökum óhöppum hafði hann flækzt inn i þetta ógeðslega morð- mál og var dæmdur i út- legð og hegningarvinnu. Hún sagðist elska hann meira en allt annað á þessari jörð, og hefði þvi ákveðið að fylgja honum i útlegðina, þrátt fyrir það að henni væri það ljóst að margir og miklir erfiðleikar yrðu á vegi hennar. Enginn skyldi geta aðskiliðþau hér á jörðu. Berit fannst hún aldrei hafa séð eða kynnzt jafn hrifandi og fallegri stúlku, og það var eins og hún spriklaði af fjöri og lifsgleði, þótt framtiðin virtist dapur- leg. Rauðbrúnir, hrokknir lokkarnir hrundu stöðugt niður á ennið, en var sam- stundis fleygt til baka með léttri hreyfingu. Já, Tatjana eða Tania eins og hún var nefnd af vin- um sinum, hlaut að verða öllum gleðigjafi i hinni löngu útlegð. Það sá Berit i hendi sér. SNOGH0J Nordisk folkehojskole ved Lillebæltsbroen - ogsa elever fra de andre nordiske lande. 6 mdr. fra nov. 4 mdr. fra jan. Send bud efter skoleplan. DK-7000 Fredericia tlf. 05-9422 19 Jacob Krogholt. ÞAÐ SEM KOMA SKAL. ——; ■*■-, —..— ■■ I I stað þess að múra húsið að utan, bera á það þéttiefni og mála það síðan 2-3 sinnum, getur húsbyggjandi unnið sjálfur, eða fengið aðra til að kústa, sprauta eða rúlla THOROSEAL á veggina, utan sem innan, ofan jarðar sem neðan. Og er hann þá í senn, búinn að vatnsþétta, múrhúða og lita. THOROSEAL endist eins lengi og steinninn, sem það er sett á, þaö flagnar ekki, er áferðarfallegt og ..andar" án þess að hleypa vatni í gegn, sem sagt varanlegt efni. Og það sem er ekki minna um vert, það stórlækkar byggingakostnað. Leitiö nánari upplýsinga. K steinprýði DUGGUVOGI 2 SIMI 83340 s; 0 Fóstrur - Kennarar Óskum eftir góðum starfskrafti (fóstru- eða kennara- menntuðum) sem fyrst. Gefur tilefni til að vinna á hug- myndarfkan og markvissan hátt með blandaðan aldurhóp (2ja-7 ára, 20 alls), i samstarfi við 3 aðra starfsmenn og foreldra. Laun samkvæmt viðkomandi stéttarfélagi að viöbættu 15% álagi. Nánari upplýsingar i sima 21182 (Anna) á dag- inn og i síma 17338 eftir kl. 18. Krógasel — Hábæ 28 — Reykjavik (foreldraheimili Jórnsmíðavélar fró Spdni Frá gamalkunnum verksmiðjum á Mm Norður-Spáni útvegum við með stuttum fyrirvara. Fræsivélar Rennibekki Vélsagir o.fl. 1 Jff Verð- og myndalistar fyrir hendi. ÉéÉ % Fjalar h.f. ■ FRÆSIVÉL Ægisgötu 7 — Simi 1-79-75/76 Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli óskar að benda viðskiptavinum sinum á eftirfarandi atriði i nýrri reglugerð um inn- og útflutning peninga, er tók gildi 10. þ.m. Samkvæmt henni má hver farþegi verzla fyrir 7 þúsund isl. kr. við brottför og aðrar 7 þúsund krónur við komu til landsins. Óski farþegi eftir að verzla fyrir hærri upphæð verður að greiða mismuninn i erlendum gjaldeyri. 2. Notkun ávisana i islenzkum krónum er óheimil. Vegna stutts fyrirvara hefur frihöfninþó fengið undanþágufrá Seðlabanka íslands, til þess að taka við slikum ávisunum til 15. júni n.k. við brottför ogtil 10. júli, við komu. Að lokum vill fríhöfnin beina þeim tilmælum til allra brottfararfar- þega, er óska eftir að verzla fyrir islenzkar krónur, að hafa við hendina brottfararspjald (Boarding-Card) til þess að flýta fyrir afgreiðslu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.