Tíminn - 11.06.1977, Blaðsíða 26

Tíminn - 11.06.1977, Blaðsíða 26
26 Laugardagur 11 júni 1977 Nú-Tírninn ★ ★★★★★★★ Texti: Ásmundur Jónsson og Gunnar Gunnarsson Nú-tímamynd: G. E. N. Hvenær var stál-gitarinn fundinn upp? BJC. Hann var ekki beint fundinn upp. Þetta var miklu frekar þrtíun sem átti sér stað ó Hawaii. Þeir notuöu fyrst venjulegan kassagitar, sem þeir sátu með á hnjánum, hækkuðu strengina og notuðu hnif, sem þeir renndu eftir hálsinum, likt og slidegitar. Þetta var fyrir aldamót. Það var svo i byrjun aldarinn- ar að hann kom til Bandarikj- anna og Country tónlistarmenn þar fóru að nota hann. (Það varð meðal annars til þess að Dobroið var fundið upp i kring- um 1915, að mig minnir). Síðan hélt hann áfram að þróast og varð aðalbyltingin um 1940 þeg- ar farið var að hækka og lækka strengina og petalinn kom til sögunnar. Má þá segja að stál- gitarinn sem slikur hafi orðið til. N. Eins og þú minntist á áður, varst þú eini stálgitarleikarinn i Englandi i upphafi ferils þins. Siðan þá hefur margt breytzt og verður stál-gitarinn slöðugt vin- sælli. Hve stórt er hlutverk hans i ttínlistinni i dag? BJC. Alla vega ekki eins stór og ég vildi, en hann vinnur stöðugt á. Fyrir 10-15 árum var hann nær eingöngu notaður á Hawaii og i Country tónlist. En hann hefur þroskazt og vaxið, ef svo má að orði komast, með nýjum hljómsveitum og nýjum tónlistarstefnum. i dag heyrist hann i rokk-tónlist. Flestir stál- gitarleikarar byggja þó afkomu sina á Country tónlist og verð ég þar af leiðandi að treysta á sem flestar tegundir tónlistar. N. Já, vð heyrðum það I Hljóðrita, að þú áttir ekki i miklum erfiðleikum með að spila þungt rokk með tilheyr- andi „sándi”. BJC. Það er hægt að spila Brezki stálgitarleikarinn B.J. Cole, sem kom hingað til lands ekki alls fyrir löngu þeirra erinda að leika inn á aðra plötu Brimklóar, ræddi við blaða- menn Nútimans, þá Ásmund Jónsson og Gunnar Gunnarsson, meðan á dvöl hans stóð. Fyrri hluti viðtalsins birtist i þættinum fyrir hálfum mánuði, en hér kemur siðari hlutinn. Myndina tók G.E. B. J. Cole Síðari hluti það leynir sér ekki, aö hljóm- sveitin býr yfir miklum hæfi- leikum, mjög gott, þeir vita greinilega hvað þeir eru aö gera. N. Að lokum, hvað tekur nú við hjá þér? BJC. Samkvæmtklukkunnier efst á baugi að flýta sér út á flugvöll, þvi ég á að mæta i upp- töku hjá Joan Arnatrading i kvöld, og 1 1/2 timi er til brott- farar Þar með kvaddi B.J. Cole, tim- inn var orðinn naumur, en það leyndi sér ekki að hann var ánægður með dvölina hér og viðtökurnar. A.J./G.G. hvað sem er á stál-gitar, hann hefur yfir ótrúlegum möguleik- um að ráða. Maður finnur alltaf rétta „sándið”, sama hvað tón- listarstefnan heitir. N.Hvað finnst þér um ttínlist- ina i dag? Er hún betri nú en fyrir t.d. 5 árum? Eru gömlu stjörnurnar að brenna út? BJC. Ég hef mjög gaman af tónlistinni i dag. Það er mikill kraftur ihenni. Ég reyni ekki að bera saman tónlist nú eða fyrir 5 eða 10 árum. A öllum timum er gerð góð tónlist. Áttuð þið við ein- hvern sérstakan, þegar þið spurðuð ,,eru gömlu stjörnurnar að brenna út”? N. Ef þú berð t.d. saman fyrstu plötu Eagles og þá nýj- ustu, finnst þér eitthvað vanta? BJC. Nei, mér finnst sú nýja bezta platan þeirra. N. En ef þú berð hana saman við fyrstu plötu Flying Burrito Brothers frá 1969, „Gilded Palace Of Sin”, finnst þér þá eitthvað vanta? BJC. Nú skil ég hvað þið eruð að fara. Báðar eru þær mjög góðar,en plata Burrito Brothers hefur þó yfirburði, miklu þróaðri. N. Ef við vikjum nú aðeins að starfi þinu hér. Hvernig finnst þér að vinna með Brimkltí? BJC. Ég er stórhrifinn af öllu þessu og mér finnst mjög gam- an að taka þátt i þessu. Ég er undrandi yfir þessum mikla áhuga, sem allir sýna hér, sem vinna við plötuna, en það er ekki alltaf það sama upp á teningn- um iEnglandi. Lögin á plötunni eru vel valin og góö, mikil breidd. Frumsömdu lögin komu hérmjögáóvart.sérstaklega eitt lag Björgvins („Hún”). Þetta lag er eitt af þessum lögum sem manni finnst að maður hafi heynt áður, þó svo sé ekki, — einstaklega fallegt lag. Ég stakk upp á þvi við Björg- vin að hann sendi Eagles lagið. Ég meina það, mér er fúlasta alvara. Þetta er ákkúrat lag fyrir þá. N. Hvað fannst þér um hljtíð- færaleik og vinnu Brimkltíar þegar þú kom'st? BJC. Ég var mjög ánægður með það sem þeir höfðu gert, B.J. Cole — fremsti stálgitarleikari Breta. ★ ★ ★ David Bowie sýnir á sér nýjarhiiðará plötunni Low sem kom út ekki alls fyrir löngu. Eflaust geta menn deilt um það hvort þetta eru betri eða verri hliðar — en min skoðun er sú/ að þær séu verri og að David Bowie eigi nú fá tromp eftir á hendinni. Bowie er gefinn fyrir breyting- ar, og þróun i tónlist hans er örari en hjá flestum öðrum tónlistar- mönnum. Fyrstu plötur hans tvær voru nokkuö llkar. The Man Who Sold The World og Space Oddity, þá komu aðrar tvær sem voru ólikar þessum fyrstu, Hunky Dory og Ziggi Stardust And The Spiders From Marz. Þá kom rokkplatan Alladine Saine, svo soulplatan Young Americans, siðan Station To Station, ,,soul”kennd, en einnig gætti þar áhrifa frá þýzkri rokktónlist — og nú Low, sem sver sig mjög i ætt við þýzkt rokk, eins og t.d. það sem hljómsveitin Can flytur. Mér finnst þetta ekki skemmti- leg tónlist, en þó ekki leiöinleg. Svona einhvers staðar mitt á milli. Fyrri hlið plötunnar eru öllu hressari, og þar er m.a. að finna „hit” lagið „Sound And Vision” — en siðari hliðin er eins og eitt samfellt tónverk, sem mest minnir á munkasögur. Bowie hefur þróað með sér ákaflega sérstakan söngstil, sem þó nýtur sin ekki vel i þessari tegund tónlistar. Á þessu sviði er toppurinn platan Young Ameri- cans, en vart er umdeilanlegt að bezta platan frá hans hendi er Ziggi Stardust. Aðstoðarmaður Bowies á Low er hljómborðsleikarinn Eno (Roxy Music),og leika þeir svo til eingöngu tveir á B-hlið plötunnar. Sex Pistols heiðra drottninguna „God Save The Queen” heitir nýjasta lag punk-hljómáveitarinnar Sex Pistols og er myndin hér að ofan af auglýsingu þeirra fyrir lagið. Það er ekki amalegt fyrir drottninguna aö fá svona afmælisgjöf. Komin aftur FYRSTA plata Megasar, sem ófáanleg hefur veriö um nokkurt skeið, hefur nú verið gefin út að nýju og er þetta þriöja útgáfa plötunnar, sem bar heiti höfundarins, „Megas”. Platan var fyrst gefin út árið 1972, en önnur útgáfa kom út 1975. A plötunni eru 15 lög -öll eftir Megas, en flytjendur auk hanseru Tore Tambs-Lynche, Oivid Ekman Jenssen, sem einnig sá um útsetningu -og Inge Rollan. Það er hljóm- plötufyrirtækið Hrlm hf. sem gefur út plötuna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.