Tíminn - 11.06.1977, Síða 17

Tíminn - 11.06.1977, Síða 17
Laugardagur 11 júni 1977 17 tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Ilelgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindar- götu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö i lausasölu kr. 70.00. Askriftargjald kr. 1.300.00 á mánuði. Blaöaprent h.f. Er byggðastefnan óhagstæð þéttbýlinu? Af skrifum vissra blaða mætti ætla, að byggða- stefnan, sem fylgt hefur verið siðustu ár, hafi snúið fólksstraumnum til höfuðborgarsvæðisins svo við, að háski væri á ferðum. í tilefni af þvi er ekki úr vegi, að rifja upp nokkrar tölur um þetta efni. Samkvæmt siðustu ársskýrslu Framkvæmda- stofnunar rikisins, bjuggu á Vesturlandi 6,9% allra landsmanna árið 1960, en sú tala var komin niður i 6.4% árið 1974 og hefur haldizt óbreytt siðan. Hér hefur þvi tekizt að halda óbreyttu hlut- falli, en ekki meira. Á Vestfjörðum bjuggu 1960 5,9% allra landsmanna, en 1971 var þetta hlutfall komið niður i 4,8%, en er nú 4,6%. Hér hefur ekki tekizt að halda óbreyttu hlutfalli. Á Norðurlandi bjuggu 16,9% allra landsmanna árið 1960, en 1971 var þessi tala komin niður i 15,6%, lækkaði i 15,5% árin 1974 og 1975, en komst aftur i 15,6% á siðastl. ári. Á Austurlandi bjuggu 1960 5,9% allra landsmanna, en 1971 var þessi tala komin niður i 5,4%, en var á siðastl. ári komin upp i 5,6%. Hér hefurþvi lítillega tekizt að snúa vörn i sókn. Loks er svo Suðurland. Þar bjuggu 9% allra lands- manna 1960, en 1971 er sú tala komin niður i 8,8%, en var á siðastl. ári 8,6%. Þannig hefur á árunum 1971-1976 tekizt að halda nokkurn veginn óbreyttu hlutfalli milli höfuðborgarsvæðisins og byggð- arinnar utan þess, en þó hefur höfuðborgarsvæðið heldur unnið á, þar sem ibúar Reykjavikur og Reykjaneskjördæmis voru 58,9% allra lands- manna 1971, en 59,2% árið 1976. Þetta er hins veg- ar mun minni aukning en á áratugnum á undan, en 1960 bjuggu 55,6% allra landsmanna i Reykjavik og Reykjaneskjördæmi, en þessi tala var komin upp i 58,9% 1971, eins og áður segir. En hefði verið æskilegt, að sú þróun héldi áfram? Hefði það ekki orðið meira en hæpinn vinningur fyrir höfuðborgina? Það er mikill misskilningur að telja þá breyt- ingu, sem hér hefur orðið, háskalega, og reyna að nota hana til að æsa höfuðborgarbúa gegn byggðastefnunni. Þessi breyting er þeim ekki minna til hags en öðrum, þvi að það er ekki þeirra hagur, að höfuðborgarsvæðið þenjist út of hratt. Hallar á Reykjavik Þótt höfuðborgarsvæðið hafi vel haldið hlut sin- um að undanförnu, hvað fólksfjölda snertir, er það rétt, að sama gildir ekki um Reykjavik. Fólksfjölgunin á höfuðborgarsvæðinu hefur farið framhjá Reykjavik. Fólki hefur fjölgað i Hafnar- firði, Kópavogi, Garðabæ og Mosfellssveit og á Seltjarnarnesi, meðan Reykjavik hefur staðið i stað. Hver er skýringin? Er hún nokkur önnur en sú, að stjórnendur Reykjavikurborgar hafa orðið undir í samkeppninni.við stjórnendur nágranna- byggðanna? Þetta hlýtu r að verða Reykviking- um ærið umhugsunarefni. ERLENT YFIRLIT Kona Sadats lætur mjög til sín taka Einkum ber hún kvenréttindamál fyrir brjósti Frú Jihan Sadat YFIRLEITT ber litiö á kon- um opinberlega I arabiska heiminum eöa löndum Mú- hameöstrúarmanna. Þær taka sáralltinn þátt I félagslifi eöa stjórnmálum. Þó eru til nokkrar undantekningar. Þannig mæta t.d. fagrar prin- sessur frá Marokkó og Iran ööru hverju sem fulltrúar á al- þjóölegum ráöstefnum og vekja veröskuldaöa athygli. En sjaldan hafa þær mikiö til mála aö leggja. Ein undan- tekning frá þessari reglu hefur þó vakiö sérstaka athygli siö- ustu árin og er þar um aö ræöa konu Sadats Egyptalandsfor- seta, Jihan Safwat Raouf Sad- at. Hún hefur mætt á alþjóö- legum ráöstefnum um kven- réttindamál og mannúöarmál og látiö þar verulega aö sér kveöa. Þó hefur hún veriö mun virkari heima fyrir, þar sem hún hefur látiö þessi málefni mikiö til sin taka og haft for- ustu á ýmsum sviöum. Eink- um hefur hún þó snúiö sér aö sérmálum kvenna. Hún vill vinna aö þvi, aö egypzkar kon- ur hljóti svipaöan rétt og kon- ur I vestrænum löndum. Þótt konur I Egyptalandi hafi aö ýmsu leyti unniö sér meiri rétt en i öörum löndum Araba, er enn langt I land aö þær nái vestrænum kynsystrum sinum iþessum efnum. Fyrir atbeina frú Sadats hefur aö ýmsu leyti þokazt enn meira I þá átt siö- ustu árin. MÖÐERNI Jihans Sadats á sennilega aö einhverju leyti þátt I þvi, aö hún hefur látiö sig félagsmál varöa og tekiö aösér forustu á þvi sviöi. Móö- ir hennar var ensk, en faöir hennar egypzkur. Faöir henn- ar stundaöi um skeiö læknis- fræöilegt nám I Bretlandi og kynntist konu sinni þar. Hún fylgdist meö honum til Egyptalands, en þar lagöi hann ekki fyrir sig læknis- störf, heldur geröist dómari. Tilviljun hagaöi þvi þannig, þegar Jihan var fimmtán ára gömul, aö hún heimsótti frænku sina, sem bjó í Súez. A heimili hennar kynntist hún ungum liösforingja, sem var þá þritugur eöa rétt helmingi eldrien hún, og var sveipaður vissum ævintýraljóma sökum þess, aö hann haföi nýlokiö rúmlega þrjátiu mánaöa fangavist hjá Bretum, en þeir höföu dæmt hann á þeirri for- sendu, aö hann heföi hjálpaö Þjóöverjum á heims- styrjaldarárunum. Það mun hafa verið rétt, en ástæðan var sú, að hann haföi ungur gerzt eldheitur þjóöernissinni og þvi andstæðingur Breta. Maöur þessi, sem var Sadat, féll Ji- han vel i geö og honum geðjaö- ist ekki siöur aö henni. Þau giftust tæpu ári siðar. Sadat var þá þegar oröinn hand- genginn Nasser og átti djúgan þátt i byltingunni 1962, þegar Nasser brauzt til valda. Nass- er var mótfallinn þvi, aö konur létu mikiö á sér bera opinber- lega og kom t.d. kona hans nær aldrei fram meö honum á opinbérum vettvangi. Þegar Nasser lézt óvænt 1970, haföi Sadat nýlega veriö skipaöur varaforseti, og varö þannig eftirmaöur Nassers. Margir spáöu þvi þá, aö hann myndi ekki skipa þann sess lengi, þvi að ýmsir samstarfsmenn Nassers töldu sig sjálfsagöari til þess og voru lika álitnir þaö þá, enda taliö, aö Nasser hafi skipaö Sadat I embætti vara- forseta til aö koma i veg fyrir, að einhver annar, sem gæti HanMMHBaBMHMHMH reynzt honum haröari keppi- nautur, hlyti stööuna, en Nasser geröi sér vel ljóst, aö ekki voru allir nánustu sam- herjar hans honum hollir. Hann áleit hins vegar, aö hon- um stafaöi ekki hætta frá Sad- at, og þaö álitu einnig þeir, sem helzt vildu erfa sæti Nass- ers. Sadat komst þannig óvænt til valda og án þess aö hafa unnið til þess aö flestra dómi. Þess vegna var þvi spáö, aö hann yrði aöeins forseti til bráðabirgða. En þetta hefur orðiö á annan veg. Sadat treysti hægt og hægt stööu sina og vék keppinautum sinum til hliðar. Siðastl. haust var hann endurkosinn forseti til næstu sex ára, en þá var hann búinn aö gegna forsetaembættinu I sex ár. FRAM að þeim tima, aö Sadat varð forseti, bar litiö opinberlega á konu hans. Hún ól honum þrjár dætur og eru tvær þeirra nú giftar, og einn son, sem er yngstur barna þeirra, en hann er nú sautján ára. Sjálf er Jihan ekki nema 44 ára en hún giftist ung, eins Frú Sadat kom i opinbera hcimsókn meö manni sínum til Washington i forsetatið Fords og áður segir. Þremur árum áður en Sadat varö forseti, haföi hún vakiö á sér nokkra athygli, en þá beitti hún sér fyrir pvi, aö konur stofnuöu saumafélög, sem rekin voru á samvinnugrundvelli og höföu það hlutverk aö koma upp saumastofum meö tilheyrandi vélakosti og gátu konur fengið þar aðstöðu til aö sauma föt I eigin þágu eöa til sölu. Þessi saumafélög uröu brátt vinsæl og hafa nú breiðzt um allt Egyptaland. A vissan hátt eru þau fyrsta stóra sporiö I þá átt aö egypzkar konur vinni utan heimilisins. Eftir aö Jihan varö forsetafrú lét hún brátt fleiri mál kvenna til sin taka og hóf vaxandi þátttöku I ýmissi félagslegri starfsemi. Til þess að vera betur undir þetta búin, hóf hún háskóla- nám fyrir nokkrum árum og náði meistaraprófi meö góö- um vitnisburöi. Nú er hún aö vinna aö doktorsritgerö. Viö- fangsefni hennar hafa veriö arabiskar bókmenntir, en þó einkum ljóöagerö, en hún telur að þekking á þessu sviöi sé félagslegu starfi hennar mikilvæg, auk þess, sem hún hefur haft áhuga á skáldskap. Námiö hefur þó ekki hindraö þátttöku hennar I félagsmál- um eöa komiö I veg fyrir, aö hún byrjaöi daginn meö þvi aö iöka iþróttir, einkum tennis. Óþarft er aö taka fram, aö hún er- i bindindi bæöi á vin og tó- bak og sækir lltið opinberar veizlur. Þó fylgir hún manni sinum oftast þegar hann fer I opinberar heimsóknir til ann- arra landa, og þykir hún koma vel fyrir. Frú Sadat gerir sér ljóst, aö hún veröur I kvenréttindabar- áttu sinni aö sýna gætni, þvi aö karlmenn halda fast i gömul forréttindi sin. Meöal þess, sem hún beitir sér nú fyrir, er aö fá fjölkvæni bannaö og aö karlmönnum verði gerður hjónaskilnaður örðugri. en konum hins vegar heimilaður skiinaður undir vissum kringumstæðum. En þessu verður vart komið f'rarri nema i áföngum, ef áhrifin eiga ekki að verða öfug við tilganginn. Þ.Þ. ■MMMNMMMMMMWMái Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.