Fréttablaðið - 13.02.2006, Qupperneq 16
13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR16
fréttir og fróðleikur
Stjórn Alþjóðlegu kjarnorkueftirlitsstofn-
unarinnar, IAEA, komst í fréttirnar nýverið
þegar hún ákvað að vísa umræðu um kjar-
orkuáætlun Írans til Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna, en IAEA er eins konar varðhundur
kjarnorkumála jarðarinnar. Íranar brugðust
harkalega við, klipptu á alla samvinnu við IAEA
í kjölfarið og ákváðu að hefja auðgun úrans
af fullum krafti. Þó segjast þeir vera tilbúnir til
frekari viðræðna. Öryggisráðið getur lýst því yfir
að öryggi heimsins stafi hætta af Íran og sett
viðskiptabann á landið.
Hvaða lönd eru meðlimir IAEA?
Nú eru um 440 kjarnaklúfar í 31 landi, en alls eiga 139 lönd aðild að
IAEA. Ísland gerðist meðlimur árið 1957 og Íran árið 1958. Þrjátíu og
fimm lönd sitja í stjórn stofnunarinnar, en hvorki fulltrúar frá Íslandi né
Íran sitja í stjórn. Norður-Kórea og Kambódía voru eitt sinn meðlimir í
IAEA, en hafa sagt sig úr stofnuninni.
Hvaða ríki eiga kjarnorkuvopn?
Bandaríkin, Rússland, Bretland, Frakkland og Kína hafa
viðurkennt opinberlega að eiga kjarnorkuvopn og Indland og
Pakistan hafa gert tilraunir. Jafnframt leikur grunur á að Ísrael
hafi safnað sér kjarnorkuvopnum árum saman, þótt ríkisstjórn
landsins verjist enn öllum fréttum. Auk þess eru Vesturlönd
uggandi yfir Norður-Kóreu og Íran, þótt ekki sé vitað til þess
að löndin eigi vopn enn. Suður-Afríkumenn hafa eytt öllum
þeim kjarnorkuvopnum sem landið eitt sinn átti, og er eina
þjóðin sem vitað er til að hafi gert það af fúsum og frjálsum
vilja. Úkraína, Hvíta-Rússland og Kasakstan skiluðu sínum
vopnum til Rússlands eftir fall Sovétríkjanna.
Af hverju er Íran ekki treyst?
Íransstjórn hélt kjarnorkurannsóknum sínum leyndum í 18 ár og greindi
ekki frá þeim fyrr en árið 2002. Síðan þá hefur stjórnin starfað með IAEA.
Í byrjun þessa árs komust heimsyfirvöld í uppnám þegar Íranar rufu
innsigli á verksmiðju sinni í Natanz, sem hönnuð er til auðgunar úrans.
Íranar segja alla kjarnorkuvinnslu sína vera í friðsamlegum tilgangi.
FBL-GREINING: KJARNORKA OG ÍRAN
Héldu rannsóknum leyndum í 18 ár
Svona erum við
Hann er ævintýramað-
ur af bestu gerð. Hann
vinnur að uppbyggingu
inn- og útflutningsfyr-
irtækis í Litháen. Hann
ætlar að slást við Al-
þýðusamband Íslands
vegna litháískrar konu.
Ágúst Grétarsson er gamall
skíðakennari og knattspyrnum-
aður, Ólafsfirðingur að uppruna
og keppti lengi fyrir Leiftur í
Ólafsfirði og síðar Val í Reykja-
vík. Hann lærði nudd og íþrótta-
endurhæfingu, vann við það og
í tengslum við fótboltann og fór
svo að vinna við skíðakennslu
enda alinn upp á skíðum. Hann
ferðaðist hringinn í kringum land-
ið um tíma, fór í grunnskólana og
kenndi almenningi á skíði.
Hann lenti
í hjónaskiln-
aði fyrir fimm
árum og segist
hafa ákveðið
að stokka upp
í lífinu. Hann
flutti aftur
til Svíþjóðar
en áður hafði
hann búið
í Noregi og
unnið þar fyrir stoðtækjafyrir-
tæki. Í Svíþjóð vann hann hjá fyr-
irtæki sem varð gjaldþrota svo að
hann fór til Noregs að vinna og
dvaldist þar í tvær vikur. Hann
kom til Litháens fyrir tilviljun
og sá að þar var hægt að gera
margt.
„Ég sá það sama og Íslending-
ar hafa verið að vakna upp við og
öll stóru fyrirtækin hafa verið að
gera,“ segir hann.
Þýsk vara á markað
Ágúst hefur nú búið í eitt og hálft
ár í Siauliai í Litháen og líkar
lífið svo vel að hann hefur stofn-
að inn- og útflutningsfyrirtæki.
Meðan hann bjó í Noregi kom
hann á tengingu milli stoðtækja-
fyrirtækis í Kaunas í Litháen
og stoðtækjafyrirtækisins sem
hann vann hjá í Noregi. Hann fór
að vinna við að finna góða vöru
á góðu verði og koma henni á
markað, annaðhvort á Íslandi eða
erlendis. Núna er hann að fara á
markað með hreinlætisvörur og
skammtara frá þýska fyrirtækinu
Ille og hefur leigt 500 fermetra
húsnæði undir sýningarsal, smá-
söludeild og lager.
„Við erum að setja þessar
vörur á markað í Eystrasalts-
löndunum en það er ekkert þessu
líkt fyrir hendi hér. Ég er að opna
lager til að koma þessu á lagg-
irnar. Ég mun líka halda áfram
að finna hluti fyrir fyrirtæki
heima,“ segir hann.
Starfsmenn Ágústs eru fjórir
í dag og í mars gerir hann ráð
fyrir að þeir verði sjö til átta.
Hann segir að stofnkostnaður-
inn við fyrirtækið sé einhver en
allt sé hlutfallslega mun ódýrara
í Eystrasaltslöndunum og því sé
þetta auðveldara. Hann kemur
til með að lifa af þeirri starfsemi
sem hann þegar hefur, viðskipt-
um sínum með innleggin og við-
skiptunum við Ísland. Starfsem-
ina með hreinlætisvörurnar mun
hann þróa hægt og rólega og gera
út á veitingastaði og framleiðslu-
staði á matvörum til að byrja
með.
„Við erum þegar komin með
samninga við þrjú fyrirtæki
þannig að ég er kominn af stað og
svo verður framtíðin að skera úr
um afganginn. Allir sem hafa séð
þetta eru mjög áhugasamir,“ segir
hann og bendir á að um þjónustu-
samninga verði að ræða þannig
að hann sendir umsjónarmann
reglulega á staðinn til að stilla
vélarnar og fylgjast með því hvort
sápan eða pappírinn sé nokkuð
uppurinn.
„Það felst í þessu mikill sparn-
aður og hagræðing fyrir fyrir-
tækin,“ segir hann.
ASÍ múti Rimu?
Ágúst vakti athygli nýlega vegna
baráttu ASÍ við BeBe Vöruhús í
Kópavogi en hann hélt því fram
að ASÍ mútaði litháísku konunni
Rimu Kasperavicience fyrir að
vera með uppsteyt og greiddi
henni 400 þúsund krónum eða
mismuninn á því sem hún þegar
fékk samkvæmt samningum við
Ágúst og því sem hún hefði átt að
fá samkvæmt kjarasamningum.
Ágúst hefur kvartað yfir því að
fá ekki að heyra í henni þó að hún
sé enn í vinnu hjá honum. Hann
segir að hún hafi haft 500 litur
hjá fyrirtækinu sem hún vann
hjá áður en það varð gjaldþrota.
Hann hafi boðið henni 750 litur
fyrir starf á Íslandi og hún fái
ekkert meira frá sér.
Eiginmaður Rimu býr fyrir
utan Sauliai í Litháen. Rima
tengist konu Ágústs í gegnum
vináttubönd. Hann hitti hana og
aðra litháíska starfsmenn BeBe
Vöruhúss á Íslandi um jólin
og fór meðal annars með þau
á Þingvelli, Gullfoss og Geysi.
Hann segir að þá hafi allt verið
í fínu lagi en nú hafi þetta komið
upp og enga skýringu sé að fá.
„Mér finnst eins og ASÍ sé að
bjóða þessu fólki peninga, borga
þeim fyrir að vera með vesen. VR
vill að við borgum henni auka-
lega en við borgum nú þegar 35
þúsund húsaleigu og þau hafa 67
þúsund krónur í peningum eftir
skatta. Við borgum líka ferðir
til og frá vinnu og við borgum
fyrir þau flugið til Íslands og
heim aftur. Þau eiga launin sín
ósnert en ef þau væru í Litháen
þá væru þau að nota þessi laun,“
segir hann og telur Rimu betur
komna með þetta fyrirkomulag
en það sem hún fengi samkvæmt
íslenskum kjarasamningum.
Ekki með starfsmannaleigu
Ágúst segist ekki reka neina
starfsmannaleigu í Litháen. Hann
segist hafa verið beðinn um að
útvega fólk og hann hafi ákveðið
að prófa það. Um jólin hafi hann
boðið Litháunum hjá BeBe Vöru-
húsi að fara á íslensk laun en þau
hafi ekki viljað það þá því þegar
dæmið hafi verið reiknað til enda
hafi komið í ljós að þau fengju
minna í hendurnar. Ágúst segist
ekki munu útvega fleira fólk frá
Litháen, hvorki fyrir BeBe Vöru-
hús né aðra. „Ég hef ekki hugsað
mér að vera í þessu,“ segir hann.
„Mér finnst ofboðslega leiðin-
legt hvernig þetta hefur farið. Ef
fólk er óánægt er best að það segi
frá því og þá er hægt að ræða
hlutina. Í þessu tilfelli hefur ASÍ
bara komið og talað í gegnum
blöðin en ekki við okkur. Þetta
fólk er í vinnu hjá mér. Ég borga
skatta og skyldur af þeim hér.
Ef Íslendingar halda að þeir geti
látið aðra borga skatta og skyld-
ur á Íslandi en gert svo öðruvísi
þegar þeir sjálfir eru erlendis þá
verða þeir að hugsa það aðeins
betur. Það bendir allt til þess að
ég muni slást við ASÍ í réttarsal út
af þessu máli. Það verður útkljáð
þar því að við munum fara með
það þangað. Við erum ekki hrædd
við eitt eða neitt,“ segir hann.
Ætlar að slást við ASÍ
RIMA KASPERAVICIENCE Við Öxarárfoss á
Þingvöllum.
ÁGÚST GRÉTARSSON Á SKRIFSTOFU SINNI Í LITHÁEN „Þetta fólk er í vinnu hjá mér. Ég borga skatta og skyldur af þeim hér,“ segir hann.
FRÉTTABLAÐIÐ
Í LITHÁEN
GUÐRÚN HELGA
SIGURÐARDÓTTIR
ghs@frettabladid.is
> Fjöldi skráðra afbrota
Heimild: Hagstofa Íslands
90.629
2001 2002 2003 2004
86.967
99.070
89.121
SPURT OG SVARAÐ
STÓRIÐJA
Álver eru ekki
frumstæð
Mikil umræða hefur
átt sér stað um álver
að undanförnu enda
er verið að reisa eitt
slíkt á Reyðarfirði og
einnig er fyrirhugað
að stækkun við
álverið á Grundar-
tanga verði lokið
á næstu vikum og
umræður um slíkt eru nú í gangi í
Straumsvík. Þykir sumum nóg um og
þykja stjórnvöld setja eggin öll i sömu
körfuna. Hrannar Pétursson er upplýs-
ingafulltrúi Alcan.
Er umræðan um álver neikvæð?
Umræðan um álver er að miklu leyti
borin uppi af mönnum sem aldrei
hafa í álver komið.
Eins og hvað?
Oftast er tónninn á þá leið þegar
vinnustaður eins og okkar kemur til
umræðu að þetta sé allt svo frum-
stætt. Menn virðast ekki átta sig á því
að fyrirtækið byggir sinn góða árangur
á því meðal annars að það er hátt
þekkingarstig í fyrirtækinu og tæknin
er mikil. Þetta er mun nútímalegra og
hátæknivæddara en margir halda.
Munu Íslendingar vinna þessi störf?
Ég get bara miðað við það sem snýr
að okkur en þar vantar aldrei menn
í vinnu og alltaf koma inn umsóknir
þó að ástandið í þjóðfélaginu sé gott
fyrir fólk í atvinnuleit. Svo er starfs-
mannaveltan lítil og launin eru yfir
meðallaunum.
LAGÐI RÁNDÝRUM LÚXUSJEPPA Í STÆÐI FATLAÐRA
ER FLUGKÓNGURINN
FATLAÐUR?
HANNES SMÁRASON VIRÐIR EKKI LÖG OG REGLUR
2x15 12.2.2006 21:35 Page 1