Fréttablaðið - 13.02.2006, Side 23
MÁNUDAGUR 13. febrúar 2006 5
Bjálkahús hafa risið hér á
landi á síðustu árum.
„Við erum bæði með bjálkahús og
einingahús. Þeir sem vilja ekta
náttúruvæn hús aðhyllast bjálka-
hús og taka þau fram yfir önnur.
Þeirra á meðal er ég. Ég er nátt-
úrlega alger bjálkafrík!“ segir
Hans Kristján Guðmundsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
Bjálkahúsa. Hann segir fyrir-
tækið hafa reist yfir 400 hús hér
á landi á þeim 14 árum sem það
hefur verið við lýði. Ívið meira sé
um að fólk byggi bjálkahúsin utan
þéttbýlis enda fari þau einkar vel
í náttúrunni en þau hafi líka verið
reist við steyptar götur í almenn-
um hverfum. Þó sé algengara að
fólk velji einingahús þar. „Bjálka-
húsin eru svo sérstök,“ segir hann
og á þar einkum við útlitið. Hægt
að hafa þau hvernig sem er að inn-
anverðu að sögn Hans Kristjáns.
„Það er enginn bundinn af því að
vera með bjálkaútlit inni en ef
maður er í þannig húsi á annað
borð þá er skemmtilegt að vera að
minnsta kosti með part af stofunni
með viðnum eins og hann kemur
fyrir. Maður rýrir karakterinn
með því að hylja bjálkana,“ segir
hann en hvað þá um einangrun?
„Ef maður er með nógu þykkan
og fínan bjálka þá þarf ekki að
einangra veggina en hins vegar er
nauðsynlegt að einangra bæði loft
og gólf. Bjálkahúsin hafa reynst
vel við íslenskar aðstæður og
kyndingarkostnaður er almennt
lægri í þeim en í öðrum húsum,“
tekur hann fram.
Mest flytur fyrirtækið inn frá
Finnlandi og Hans Kristján segir
bjálkann allan koma forsmíðaðan
auk þess sem búið sé að bora fyrir
öllum samsetningarteinum og raf-
lögnum. Fyrirtækið bjóði hús eftir
stöðluðum teikningum en einnig
sé hægt að fá þau sérsmíðuð. „Fólk
getur komið með eigin teikningar
ef það vill og það er mjög algengt,“
segir hann að lokum.
gun@frettabladid.is
Arnar njóta sín einkar vel innan um náttúrulegt byggingarefni.
Bitarnir í loftinu setja svip á stofuna.
Náttúruvæn hús
sem anda
Bjálkahús geta verið fínleg.
Nauðsynlegt er að foreldrar
kenni börnum sínum ákveðin
grunnatriði.
Nauðsynlegt er að börn kunni að
bjarga sér innan heimilisins séu
þau ein heima eða foreldrarnir
geti ekki komið þeim til hjálpar.
Sýnið þeim hvar hægt er að
komast út annars staðar en um
útidyrahurðina og kennið þeim
að skrúfa lausan glugga ef þau
lokast inni, til dæmis vegna elds.
Farið einnig yfir með börnunum
hvar best sé að vera innanhúss ef
jarðskjálfti verður. Brýnið fyrir
þeim að fara í skó til að stíga ekki
á glerbrot.
Börnin læra í skólum hvernig
bregðast eigi við eldi og nauðsyn-
legt er að foreldrar sýni barninu
hvar eldvarnarteppi og slökkvi-
tæki eru geymd. Hafi barnið
aldur til er gott að kenna þeim
réttu tökin og fara yfir með þeim
hvað best sé að gera.
Sýnið barninu einnig hvernig
á að bregðast við í rafmagnsleysi.
Geymið vasaljós á vísum stað
sem barnið getur auðveldlega náð
í. Sýnið þeim rafmagnstöfluna,
hvaða rofi er aðalrofinn og hvern-
ig á að koma rafmagni aftur á.
Merkið á töfluna með lím-
bandsmerkingum hvaða rofi er
fyrir hvaða herbergi og stuttar
leiðbeiningar sem hjálpa barninu
að bjarga sér sjálft.
Ræðið við börnin hvað best
sé að gera verði þau vör við inn-
brotsþjóf. Kennið þeim einnig
hvernig best sé að haga símtali
í neyðarlínuna svo að hjálp geti
borist eins hratt og auðið er í
neyðartilfellum.
Börnin verða að bjarga sér
Nauðsynlegt er að börn kunni að bjarga sér
á heimilinu.