Fréttablaðið - 13.02.2006, Page 73
MÁNUDAGUR 13. febrúar 2006 29
KÖRFUBOLTI Alda Leif Jónsdótt-
ir, landsliðskona í körfubolta, er
að gera góða hluti með hollenska
liðinu Den Helder sem er í efsta
sæti úrvalsdeildarinnar um þess-
ar mundir. Alda er fastur byrj-
unarliðsleikmaður hjá liðinu og
hefur skorað 10,5 stig að meðaltali
í vetur auk þess að taka 4,1 frá-
kast og senda 2,6 stoðsendingar að
meðaltali í leik. Hún var verðlaun-
uð fyrir góða frammistöðu með
því að vera valin í Stjörnuleik hol-
lensku deildarinnar sem fram fer
í lok febrúar.
„Mér hefur gengið mjög vel í
vetur og þetta hefur verið virki-
lega skemmtilegur tími. Aðstæð-
urnar eru mjög góðar, að minnsta
kosti í liðinu mínu þrátt fyrir að
hollenskan sé virkilega erfitt mál
en ég viðurkenni að hafa ekki reynt
ýkja mikið að læra hana. Ég hef
þó lært nokkur orð en þau notar
maður aðallega til samskipta inni
á körfuboltavellinum. Við tölum
yfirleitt ensku, enda tala hvorki
ég né bandaríska stúlkan í liðinu
hollensku og því slepp ég vel frá
því,“ sagði Alda Leif við Frétta-
blaðið í gær en hún segir deildina
ekki vera mjög frábrugðna þeirri
íslensku.
„Hér eru fleiri lið og þaraf-
leiðandi fleiri leikir. Auk þess eru
fleiri góðir leikmenn hér en það
er ekki nokkur spurning að marg-
ar stúlkur á Íslandi gætu gert
góða hluti í þessari deild. Hér eru
bandarískir leikmenn í hverju liði
og meira að segja tvær í sumum,
aðallega í verri liðunum sem er
svipað því sem gengur og gerist
heima,“ sagði Alda Leif en liðið
hennar hefur sex stiga forystu á
toppi deildarinnar.
„Okkur gengur mjög vel, við
erum enn ósigraðar í deildinni en
hér er spiluð tvöföld umferð í tíu
liða deild. Svo spila fimm efstu
liðin heima og heiman, sem og
fimm neðstu liðin, og eftir það er
úrslitakeppnin. Þetta er því mun
lengra tímabil en heima,“ segir
Alda en aðeins fjórir leikir eru
eftir af deildarkeppninni.
Alda Leif býr með unnusta
sínum Sigurði Þorvaldssyni sem
spilar ásamt Hlyni Bæringssyni
með liðinu Woonaris. „Við höfum
það mjög fínt hérna. Það hefur ekki
gengið nógu vel hjá þeim. Þeir eru
með ágætis lið en hafa verið ótrú-
lega óheppnir og herslumuninn
hefur vantað í mörgum leikjum,“
sagði Alda en hún fór út til Hol-
lands í september síðastliðnum og
gerði eins árs samning við sitt lið.
„Það á eftir að koma í ljós hvað
ég geri en ég mun íhuga það vel að
vera hér áfram ef mér yrði boðinn
nýr samningur,“ sagði Alda Leif
að lokum. - hþh
Alda Leif Jónsdóttir hefur verið að spila vel í hollensku úrvalsdeildinni:
Ljúft líf að vera í Hollandi
ALDA LEIF JÓNSDÓTTIR Hefur staðið sig mjög vel með Den Helder og var meðal annars
valin í stjörnuleik hollenska boltans.
FÓTBOLTI Tveir leikir voru í ensku
úrvalsdeildinni í gær og voru
þeir báðir mjög spennandi. Botn-
lið Sunderland gerði 1-1 jafntefli
gegn Tottenham sem er í baráttu
um sæti í Meistaradeild Evrópu.
Varamaðurinn Daryl Murphy
skoraði sitt fyrsta mark í úrvals-
deildinni og jafnaði fyrir Sund-
erland þegar tvær mínútur voru
eftir en Paul Stalteri gerði slæm
mistök í vörn Tottenham.
„Ég tel að þetta séu sanngjörn
úrslit. Þegar venjulegum leiktíma
var lokið fékk Jenas dauðafæri
til að tryggja þeim sigurinn. Það
hefði orðið hrikalegt, líklega sein-
asti naglinn í kistuna mína,“ sagði
Mick McCarthy, knattspyrnustjóri
Sunderland.
Í hinum leik gærdagsins vann
Manchester City 3-2 sigur á Charl-
ton í stórskemmtilegum leik þar
sem glæsimark Joey Barton var
lykillinn að sigri. Georgios Sam-
aras skoraði eitt af mörkum liðs-
ins. Hermann Hreiðarsson lék
allan leikinn í vörn Charlton.
Tveir leikir voru í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Sunderland náði stigi
KLÚÐUR Jermaine Jenas klúðraði gullnu
tækifæri til að tryggja Tottenham sigurinn.
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
RÚV keypti
sýningar-
réttinn
SÍÐASTI BÆRINN
Sýnd kvöldið fyrir Óskarinn
2x10 12.2.2006 21:33 Page 1