Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 75

Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 75
FÓTBOLTI Snorri Steinn Guðjónsson og félagar hans í Minden unnu glæsilegan sigur á toppliði Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Snorri Steinn skoraði tvö mörk fyrir Minden sem vann með 32 mörkum gegn 30 og er sem stendur í 16. sæti deildarinnar en með sigrinum lyftu félagið sér upp úr fallsæti. Düsseldorf og Hamborg skildu jöfn, 27-27, í hinum sunnudags- leiknum en síðarnefnda liðið tryggði sér stig á ótrúlegan hátt með tveimur mörkum á síðustu 30 sekúndum leiksins. Kiel er í efsta sæti deildarinn- ar með 32 stig en Flensburg situr í 2. sæti með 31 stig. Gummers- bach er svo einu stigi þar á eftir í þriðja sætinu og er því hart barist á toppi þýsku deildarinnar. - hþh Óvænt úrslit í Þýskalandi: Minden lagði topplið Kiel SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON Skoraði tvö mörk í sigrinum á Kiel. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SKÍÐI Sindri Már Pálsson keppti í bruni á vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í gær og hafnaði hann í 48. sæti af 55 keppendum. Sindri er fyrstur íslensku skíðamannanna til að keppa á leikunum. Það var Antoine Deneriaz frá Frakklandi sem vann óvæntan sigur í brun- keppninni en Michael Walchhofer frá Austurríki varð annar. Sindri varð 8,89 sekúndum á eftir Deneriaz en 46 ár eru síðan íslenskur skíðamaður tók síðast þátt í brunkeppni karla á Ólympíuleikum. - egm Vetrarólympíuleikarnir á Ítalíu: Sindri keppti í bruni í gær FYRSTUR Sindri Már reið á vaðið á ólympíu- leikunum í gær.MYND/GUÐMUNDUR JAKOBSSON KÖRFUBOLTI Nú um helgina var dregið í riðla fyrir Evrópukeppn- ina í körfubolta. Drátturinn fór fram í Madríd og lenti karla- landslið Íslands í C-riðli ásamt Austurríki, Georgíu, Finnlandi og Lúxemborg. Sigurður Ingi- mundarson, landsliðsþjálfari karla, telur Ísland eiga ágæta möguleika á að vinna sér rétt til að keppa um sæti í A-deild. „Und- irbúningur hjá okkur hefst strax að lokinni úrslitakeppninni í Ice- land Express-deildinni og stendur fram eftir sumri. Norðurlanda- mótið í Finnlandi í byrjun ágúst er á góðum tíma til að undirbúa liðið fyrir þessa leiki haustsins,“ sagði Sigurður á vefsíðu KKÍ. Kvennalandsliðið lenti í erfið- um riðli en mótherjar þess verða Noregur, Holland og Írland. Guð- jón Skúlason, landsliðsþjálfari kvenna, metur möguleika liðsins ágæta. „Með góðri samstöðu og mikilli baráttu eigum við ágæta möguleika,“ sagði Guðjón. Fyrstu leikirnir verða háðir í haust. - egm Dregið í Evrópukeppnina: Ísland á ágætis möguleika Iceland-Express deild karla FJÖLNIR-SNÆFELL 75-73 Stig Fjölnis: Grady Reynolds 34, Nemanja Sovic 14, Hörður Vilhjálmsson 10, Aleksandar Ivanovic 4, Hjalti Vilhjálmsson 4, Guðni Valentínusarson 3, Magnús Pálsson 1. Stig Snæfells: Ingvaldur Hafstein 19, Nate Brown 18, Igor Bevanski 14, Jón Jónsson 14, Slobodan Subasic 4, Helgi Guðmundsson 2. HAUKAR-KEFLAVÍK 76-102 Stig Hauka: Jason Pryor 25, Sigurður Einarsson 12, Sævar Haraldsson 12, Kristinn Jónasson 11, Lúðvík Bjarnason 4, Þórður Gunnþórsson 4, Morten Þ. Szmiedowicz 3, Marel Ö. Guðlaugsson 2, Bojan Bojovic 2, Gunnar B. Sandholt 1. Stig Keflavíkur: A.J. Moye 31, Gunnar Einarsson 15, Arnar F. Jónsson 13, Magnús Gunnarsson 13, Vlad Boeriu 5, Halldór Halldórsson 5, Elentín- us G. Margeirsson 4, Sverrir Sverrisson 4, Jón N. Hafsteinsson 4, Þröstur Jóhannsson 4, Gunnar H. Stefánsson 3, Jón Jónsson 2. NJARÐVÍK-ÍR 88-71 Stig Njarðvíkur: Jeb Ivey 29, Friðrik Stefánsson 20, Guðmundur Jónsson 17, Jóhann Á. Ólafsson 8, Brenton Birmingham 6, Egill Jónasson 4, Örvar Kristjánsson 2, Ragnar Ragnarsson 2. Stig ÍR: Theo Dixon 26, Fannar Helgason 11, Robert Sargeant 10, Sveinbjörn Claessen 8, Ómar Sævarsson 7, Eiríkur Önundarson 7, Ólafur Sig- urðsson 2. KR-ÞÓR 86-77 HÖTTUR-GRINDAVÍK 70-127 SKALLAGRÍMUR-HAMAR/SELFOSS 105-82 ÚRSLIT GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI Það var stórskemmti- legur leikur sem fór fram í Graf- arvogi í gærkvöld þegar Fjölnis- menn tóku á móti Snæfellingum. Það voru gestirnir sem voru yfir stærstan hluta leiksins en með góðri baráttu í fjórða leikhluta komust Fjölnismenn inn í leikinn. Þegar staðan var 54-69 skoruðu þeir ellefu stig í röð og skyndilega var feikilega mikil spenna komin í leikinn. Á lokamínútunni náði Magn- ús Pálsson að skora þriggja stiga körfu fyrir Fjölni og jafna 73-73 þegar örfáar sekúndur voru eftir. Snæfellingar brunuðu upp í sókn og um leið og flautan gall lak boltinn ofan í körfuna eftir skot frá Ingvaldi M. Hafstein og Snæ- fellingar fögnuðu gríðarlega eftir þennan dramatíska sigur. „Það kom bara ekkert annað til greina en að skjóta. Það hefði verið alveg gríðarlega svekkjandi ef við hefðum ekki náð að vinna leikinn eftir að hafa haft forystuna nánast allan tímann. Við vorum að spila ágætlega í fyrri hálfleiknum en í þriðja leikhluta dettum við algjörlega niður. Það er þó mikil- vægast að hafa náð að landa þessu á endanum,“ sagði Ingvaldur eftir leikinn. Fjölnismenn voru yfir 23-19 eftir fyrsta leikhluta en í þeim næsta skoruðu þeir aðeins tíu stig á móti 22 stigum Snæfellinga. Eftir þriðja leikhluta var stað- an 59-46 Snæfelli í vil en í þeim fjórða var allt annað að sjá til Fjölnismanna sem sýndu mikla baráttu sem ekki var til staðar hjá liðinu fram að því. „Við vorum nálægt því að stela þessu. Mér fannst vera kominn tími á það að við fengjum eitthvað út úr leik þar sem við erum lak- ara liðið. Við höfum oft lent í því að vera betra liðið en vinna samt ekki. Ég var alls ekki sáttur við leik okkar í kvöld. Tapaðir boltar eru að há okkur núna. Það vantaði neistann fyrstu þrjá leikhlutana og menn eru of fljótir að hengja haus. Í fjórða leikhluta fann ég síðan blöndu af mönnum sem voru tilbúnir að fórna sér fyrir málstaðinn,“ sagði Benedikt Guð- mundsson, þjálfari Fjölnis. - egm Ingvaldur hetja Snæfells Ingvaldur M. Hafstein var hetja Snæfells sem lagði Fjölni 75-73 í Iceland-Express deild karla í körfubolta í gærkvöld. Ingvaldur skoraði sigurkörfu leiksins um leið og lokaflautan gall og Snæfell er komið upp í sjötta sæti deildarinnar. NATE BROWN Nate Brown átti góðan leik fyrir Snæfell og skoraði 18 stig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MÁNUDAGUR 13. febrúar 2006 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.