Fréttablaðið - 13.02.2006, Blaðsíða 78
13. febrúar 2006 MÁNUDAGUR34
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Skóbúðin sérstæða Trippen opn-
aði á Rauðarárstígnum á föstu-
dag. Hönnuðir og stofnendur
merkisins eru Angela Spieth og
Michael Oehler sem eru á móti
fjöldaframleiðslu og taka ekki
þátt í framleiðslu í Kína þrátt
fyrir mörg tilboð þess efnis.
Verksmiðjur Trippen eru stað-
settar í Austur-Berlín. Eru þær
litlar og er notast við gamaldags
handverk við framleiðslu og færi-
bönd sjást ekki.
„Þetta eru þýskir skór sem
koma frá Berlín. Þeir eru hand-
saumaðir úr elgsleðri, geitaskinni
og buffaló- og kálfaskinni,“ segir
Berglind Gestsdóttir, umboðs-
aðili Trippen hér á landi. „Það
er mikil hönnun á bak við hverja
tegund eða týpu af skóm. Hönnuð-
irnir styðjast oft við ævintýri eða
arkitektúr frá Afríku eða öðrum
heimsálfum. Þessum hönnuð-
um er mjög hugað um heilsu og
fóthirðu og maður finnur hvað
skórnir gæla við fæturna á manni
þegar maður fer ofan í þá,“ segir
hún og hljómar eins og sannur
sölumaður.
Að sögn Berglindar eru inn-
réttingarnar í versluninni jafn-
framt mjög sérstakar, enda sér-
hannaðar af Trippen. „Skáparnir
eru bogadregnir og allar hillurn-
ar í þeim eru skakkar,“ segir hún.
„Hugsunin á bak við bogann er sú
að bogaformið tælir augað til að
fylgja honum frá upphafi til enda,
ólíkt því sem gerist þegar horft er
á kassalaga hluti.“
Trippen-merkið er vinsælt á
meðal fræga fólksins úti í heimi að
sögn Berglindar. „Ef stórstjörn-
urnar koma til Berlínar fara þær
í Trippen. Það eru fjórar búðir í
Þýskalandi og fjórar í Japan og
Japanar eru mjög hrifnir af þess-
um búðum. Frægir tískuhönnuð-
ir sækjast líka eftir því að nota
þessa skó, þar á meðal Yamamoto
og Perry Ellis,“ segir hún. Nefnir
hún einnig kvikmyndastjörnur á
borð við Jude Law og söngvarana
Usher og Michael Stipe úr R.E.M.
sem trygga viðskiptavini.
Berglind segist fullviss um að
verslunin eigi eftir að festa sig í
sessi hér á landi. „Ég held að það
sé kominn tími á eitthvað annað
en þetta venjulega. Íslendingar
eru til í að vera öðruvísi því þeir
eru það mikið tískuþenkjandi.
Íslendingar vilja vera áberandi og
öðruvísi.“
Hvað varðar fjöldaframleiðslu
segir Berglind hönnuðina alger-
lega á móti henni. „Þeir eru á móti
misnotkun á fólki og þrældómi.
Kínverjar hafa margbeðið um
að fjöldaframleiða skóna en þeir
vilja ekki taka þátt í þeim bransa.
Þeir vilja frekar vera á færri stöð-
um og sinna sínum kúnnum vel.“
Auk skónna eru töskurnar sem
eru til sölu í versluninni óvenju-
legar í meira lagi. Þær eru hand-
saumaðar og hannaðar af ítölskum
arkitekt. Eru þær m.a. úr ýmsu
byggingarefni, latexi, loftsíum
úr loftræstikerfum, gólfteppum,
gúmmíi og dyramottum.
Berglind segir að stofnendur
Trippen, þau Angela og Michael
hafi ætlað að koma hingað til
lands í tilefni af opnuninni en
ekkert hafi orðið af því. Í stað-
inn munu þau kíkja í heimsókn í
sumar og kynna um leið nýja bók
um Trippen sem fjallar um sögu
þessa óvenjulega framleiðanda.
freyr@frettabladid.is
SÉRSTÆÐ SKÓBÚÐ OPNAR: ENGIN FJÖLDAFRAMLEIÐSLA
Ævintýri og afrískur arkitektúr
BERGLIND GESTSDÓTTIR Berglind er umboðsaðili Trippen hér á landi og hefur mikla trú á merkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Valentínusardagurinn er á morgun, en daginn þann ger-
ast íbúar heimsins rómantískir og færa ástvinum blóm,
gjafir og fagrar kveðjur. Siðurinn hefur fest sig í sessi
meðal Íslendinga síðustu tvo áratugina, en var upphaf-
lega tilnefndur til heiðurs munknum Valentínusi sem
gifti fólk að kristnum sið í Rómaveldi forðum. Á þeim
tímum hafði kristin trú ekki náð fótfestu meðal Róm-
verja og var Valentínus því hálshöggvinn og í kjölfarið
tekinn í dýrlingatölu.
„Það var seint á níunda áratugnum að ég var búsett
í Bandaríkjunum þar sem fyrrverandi maðurinn minn
var við nám. Áður hafði ég oftsinnis komið vestur í starfi
mínu sem flugfreyja en aldrei verið í Bandaríkjunum á
þeim árstíma sem Valentínusardaginn ber upp á,“ segir
útvarpskonan Valdís Gunnarsdóttir sem í útvarpinu
kynnti daginn fyrir landsmönnum.
„Ég hafði þá aldrei gefið þessum degi sérstakan
gaum en féll fyrir því hvernig Bandaríkjamenn gáfu sig
alla í þetta og fannst tilvalið að hrinda af stað vitund-
arvakningu hérlendis þar sem sagan á bak við daginn
er falleg og hugmyndin hressandi í skammdeginu,
enda tilvalin eftir allan víkinginn; hrútspungana og súra
slátrið,“ segir Valdís hláturmild, en margir hafa hnýtt út
í siðinn sökum þess að hann sé bandarískur og til þess
eins gerður að hygla kaupmönnum.
„Ég bjóst nú aldrei við að verða ævinlega kennd við
Valentínusardaginn en ókunnugt fólk hefur látið eftir sér
að hringja í mig og spyrja hvort ég sé ekki örugglega
Valdís Valentínusardóttir. Ég hef vitaskuld bæði elst og
þroskast síðan 1988 og þætti gaman ef fólk mæti mig
að verðleikum og tæki eftir öðrum verkum mínum líka,“
segir Valdís alvarleg í bragði.
„Íslendingar hafa fett fingur út í Valentínusardag-
inn sem Kanahefð, en reyndar er hún jafn evrópsk
og hvað annað. Við megum ekki vera eins og hertir
handavinnupokar gagnvart nýjungum, þótt vissulega
sé ég sjálf hlynnt því
að halda í séríslenskar
hefðir eins og konu-
daginn, bóndadag og
þorrann. Ég borða ekki
þorramat sjálf en held
hann ávallt hátíðlegan
fyrir drenginn minn,“
segir Valdís sem einnig
heldur Valentínusardag
heilagan á sinn hátt.
„Mér þykir vænt um
þennan dag en það er
langt síðan ég hef upplifað hann sem ástfangin kona.
Þetta er góður dagur til að gera eitthvað fyrir þá sem
manni þykir vænt um og á morgun tileinka ég daginn
elskulegri móður minni sem á í ströngum og erfiðum
veikindum.“
SÉRFRÆÐINGURINN VALDÍS GUNNARSDÓTTIR HEFUR LENGI VERIÐ KENND VIÐ VALENTÍNUSARDAG
Tileinkar Valentínusardaginn mömmu
LÁRÉTT
2 tónlistarstefna 6 persónufornafn 8 kletta-
sprunga 9 veiðarfæri 11 belti 12 endurtekning
14 laust bit 16 þegar 17 rúmábreiður 18 pota
20 drykkur 21 lokka.
LÓÐRÉTT
1 stjórnarumdæmis 3 einnig 4 karlmanna-
spariföt 5 matjurt 7 tilgáta 10 mál 13 hlaup
15 klettur 16 úthald 19 til.
LAUSN
Íbúar í 101 hafa getað gengið að
því vísu síðustu áratugina að geta
keypt sér Levi‘s gallabuxur á
Laugaveginum. Nú hefur Levi‘s-
búðinni hins vegar verið lokað
og á hvítu blaði stendur að opnað
verði í Kringlunni innan skamms.
501 er því ekki lengur í 101.
Pétur Arason seldi Levi‘s-búð-
ina fyrir þremur árum og byrjaði
með safn í húsakynnum gömlu
búðarinnar. Pétur er annálaður
Laugavegsmaður og hefur verið
með rekstur á verslunargötunni
í 45 ár. Byrjaði með FACO þar
sem nú er Sautján en það er eina
verslunin sem selur Levi‘s buxur
á Laugaveginum. Sagan fer því
hálfpartinn í hring. Pétur við-
urkenndi að honum hefði verið
brugðið þegar hann frétti af
lokun búðarinnar. Hann sagði að
sennilega hefði hann hugsað sig
tvisvar um á sínum tíma hefði
hann vitað að þetta yrðu örlög
hennar. „Ég var með Levi‘s horn
í FACO frá 1976 og opnaði síðan
Levi‘s Original Store í lok níunda
áratugarins. Gallabuxurnar tóku
mikinn kipp á þessum tíma eftir
að hafa verið í smálægð,“ segir
Pétur og tekur undir þau orð að
Laugavegurinn hafi með brott-
hvarfi búðarinnar glatað smá-
vegis af sjarma sínum.
Pétur segist ekki alveg gera
sér grein fyrir „stemningunni“ á
Laugaveginum um þessar mundir
en alltaf sé eitthvað um að búðir
loki á þessum tíma þegar kalt er
í veðri. „Ég hef heyrt að öll pláss
séu tekin þegar þau losna,“ segir
hann. „Það er verið að byggja
stór gólfrými um þessar mund-
ir en skortur á slíku hefur staðið
mörgum búðum fyrir þrifum,“
segir Pétur og er bjartsýnn fyrir
hönd þessarar götu sem er honum
svo hjartfólgin. „Þetta kemur allt,
bara spurning um nokkur ár,“
segir Pétur og er ekki lengi að
svara spurningunni hvort hann
fari í annað póstnúmer til að
kaupa sér gallabuxur. „Ekki að
ræða það. Ég sendi einhvern eftir
þeim með réttu númerin.“
Levi‘s kveður Laugaveginn
PÉTUR ARASON Sér eftir gömlu Levi‘s-búðinni sem nú hefur hætt starfsemi á Laugavegin-
um og flytur í Kringluna á næstunni.FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8:
1 Tórínó á Ítalíu
2 Boris Spassky og Friðrik Ólafsson
3 Tvö mörk
LÁRÉTT: 2 rokk, 6 ég, 8 gjá, 9 net, 11 ól, 12
stagl, 14 glefs, 16 þá, 17 lök, 18 ota, 20 te, 21
laða.
LÓÐRÉTT: 1 léns, 3 og, 4 kjólföt, 5 kál, 7
getgáta, 10 tal, 13 gel, 15 sker, 16 þol, 19 að.
��������
��� ��� ��� ��� ���
��� ��� ��� ��� ������
��� ��� ��
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
��������
�����������������������
�������������
������������������������������
��
���������
�����������
��������������
���� ���������
������������������������������
HRÓSIÐ
...fær Ólafur Jóhannesson fyrir að
draga karate-goðsögnina Mike
Stone fram í dagsljósið á ný og
kynna fyrir okkur ótrúlegt ævi-
hlaup hans.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI