Fréttablaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 2
2 27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Nánar á www.expressferdir.is Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express BORGARFERÐ TIL BERLÍNAR 59.900 kr. INNIFALI‹: BERLÍN 27. JÚLÍ – 1. ÁGÚST Njótið Berlínar undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar sem gjörþekkir borgina. Í þessari fimm daga ferð verður farið á alla markverðustu staði Berlínar. Boðið upp á skemmtilega siglingu í gegnum borgina, farið á djasstónleika, kabarett og spennandi veitingahús. Heilsdagsferð til Potsdam og Wannsee, staðir sem eiga sér langa sögu og merkilega. Gist á Park Inn hótelinu á Alexanderplatz í hjarta borgarinnar. Flug með sköttum, gisting í 5 nætur með morgunverði og íslensk fararstjórn. Fararstjóri Hjálmar Sveinsson, dagskrárgerðarmaður HEIMSBORGIN LÖGREGLA Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði í gærmorgun þrettán ára pilt sem hafði tekið bíl foreldra sinn ófrjálsri hendi. Pilturinn er búsettur í Grindavík og ók sem leið lá eftir Reykjanesbraut áleiðis til Hafnarfjarðar. Ökuferð piltsins fékk skjótan endi í Hafnarfirði þar sem hann keyrði utan í tvö umferðarskilti. Pilturinn slapp ómeiddur en bíllinn er skemmdur eftir áreksturinn. Lögreglan í Keflavík hyggst ekki aðhafast frekar í málinu og var pilt- inum komið til síns heima. - sha Keyrði á skilti í Hafnarfirði: Þrettán ára tekinn á bíl PRÓFKJÖR Sigmar Eðvarðsson, bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Grindavík og formaður bæjarráðs, hlaut afgerandi kosningu í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins sem fram fór á laugardag. Sigmar hlaut 125 atkvæði í fyrsta sætið og sagðist ánægður með úrslitin. Guðmundur Pálsson hreppti annað sæti, Guð- björg Eyjólfsdóttir það þriðja og Pétur Guðmundsson það fjórða. Sjálfstæðismönnum í Grinda- vík fjölgaði mikið fyrir prófkjörið, um sjötíu manns gengu í flokkinn á kjördag og alls kusu 156 í próf- kjörinu. Sjálfstæðismenn eru í meirihlutasamstarfi með Samfylk- ingunni. ■ Sjálfstæðismenn í Grindavík: Góð þátttaka í prófkjörinu JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, hefur verið í dái allt frá því hann hlaut alvar- legt heilablóð- fall 4. janúar síðastliðinn. Læknar segja að með hverj- um degi sem líði minnki lík- urnar á því að hann komist aftur til meðvitundar. Í gær varð Sharon 75 ára og í til- efni dagsins heimsóttu báðir synir hans og helstu ráðgjafar sjúkra- húsið þar sem hann liggur. Starfs- fólk sjúkrahússins sagði ástand Sharons stöðugt en alvarlegt. Ehud Olmert, sem tók við emb- ætti forsætisráðherra af Sharon, hóf ríkisstjórnarfund í gær með því að óska honum bata hið fyrsta. - gb Ariel Sharon 75 ára: Batalíkur fara minnkandi ARÍEL SHARON SLYS Tveir menn voru fluttir með þyrlu varnarliðsins eftir að bíll þeirra fór út af veginum við Hrafntinnusker í fyrrinótt. Bíll mannanna valt hátt í tuttugu metra. Að sögn lögreglunnar á Hvols- velli þykir mikil mildi að ekki fór verr í slysinu. Bíllinn er gjörónýt- ur eftir að hafa steypst niður þver- hnípi. Mennirnir náðu að koma sér út út bílnum og ganga að skála í grenndinni. Þaðan sendu þeir út neyðarkall og stuttu seinna, um klukkan tvö, komu félagar úr björgunarsveitinni Ársæli á vett- vang. Björgunarsveitin hafði verið við æfingar í nágrenni slysstaðar- ins og var því fljót á vettvang og gat hlúð að mönnunum. Þyrla varnarliðsins, sem stuttu áður hafði sinnt björgunarstörf- um við Hofsjökul, var síðan send á slysstað. Flutti þyrlan mennina á Landspítalann í Fossvogi og lenti um fimmleytið í gærmorgun. Þær upplýsingar fengust á Landspítala í gærkvöldi að menn- irnir væru komnir af gjörgæslu. Þeir munu ekki í lífshættu og er líðan þeirra stöðug. - sha Tveir slösuðust þegar bíll þeirra steyptist niður þverhnípt berg við Hrafntinnusker: Gátu sjálfir kallað á hjálp ÞYRLA VARNARLIÐSINS Hafði í nógu að snúast um helgina. HAFNARFJÖRÐUR Lögreglan í Hafn- arfirði handtók um helgina mann á þrítugsaldri við venjubundið umferðareftirlit. Reyndist hann hafa í fórum sínum um fjörutíu grömm af amfetamíni og hassi. Lögreglan fékk dómsúrskurð til húsleitar hjá manninum og þar fundust sex grömm af fíkniefnum til viðbótar. Maðurinn játaði ein- ungis að eiga hluta efnanna. Manninum var seinna sleppt og telst málið að mestu upplýst. Hann hefur áður komið við sögu lög- reglu. - sha Tekinn við umferðareftirlit: Fundu fíkni- efni við húsleit LÖGREGLAN Í HAFNARFIRÐI Lagði hald á um fjörutíu grömm af fíkniefnum við venjubundið umferðareftirlit um helgina. MENNTAMÁL Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra vonar að starfslok Ólínu Þorvarðardóttur, skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, leiði til þess að skólastarfið komist í eðli- legt horf. „Þetta er ákvörðun sem hún tekur í kjölfar atburða síðustu missera og það er ekkert við því að segja. Ég kann að meta að hún tekur þessa ákvörðun með hags- muni skólans í huga og það sem skiptir mestu máli er að skólastarf komist í góðan farveg og skólinn blási til sóknar.“ Aðspurð hvort menntamála- ráðuneytið hafi átt frumkvæði að starfslokum Ólínu segir Þorgerð- ur. „Ég ætla ekki að tjá mig um það. Hún er búin að lýsa því yfir að hún hafi sagt upp og ég móttek beiðni hennar.“ Í úttekt Félagsvísindastofnun- ar Háskóla Íslands, sem unnin var fyrir menntamálaráðuneytið og kom út í desember í fyrra, segir að báðum deiluaðilum sé um að kenna og ýmislegt bendi til að sumir kennarar hafi verið í „kerfisbund- inni andstöðu“ við Ólínu árum saman. Lagðar eru til sáttaleiðir en gangi þær ekki upp og leiði deilurnar til þess að skólameistari verði að hætta, þurfi að tryggja að næsti skólameistari mæti ekki sama vanda. „Slíkt verður ekki gert nema viðkomandi kennarar láti af störfum við skólann. Um er að ræða sex til sjö kennara og aðra starfsmenn sem verða að víkja,“ segir í úttektinni. Aðspurð hvort ráðuneytið muni fylgja þessum tillögum eftir segist Þorgerður ekki telja þær eiga við í þessu tilfelli, þótt Ólína segi að sér hafi ekki verið stætt á að starfa áfram innan skólans. „Ráðuneytið er ekki að segja henni upp og það er ekki verið að ýta henni burt, heldur tekur hún sjálfstæða ákvörðun. Það er ennþá unnið að skólaþróunarverkefninu, sem var grundvöllur sáttaferlis- ins, og samkvæmt mínum upplýs- ingum hafa allir skrifað undir það eða lýst yfir vilja til að vinna eftir því. Áfram verður unnið að mál- efnum skólans og greinilegt að eitt og annað þarf að laga. Við megum hins vegar ekki dvelja of mikið við fortíðina heldur eigum við að horfa fram á veginn.“ bergsteinn@frettabladid.is Sjö kennarar verða hugsanlega að víkja Menntamálaráðherra vonar að starfslok Ólínu Þorvarðardóttur leiði til þess að ró komist á í Menntaskólanum á Ísafirði. Í úttekt Félagsvísindastofnunar segir að náist ekki sættir í deilunni verði fleiri starfsmenn en skólameistari að víkja. MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands telur bæði skólameist- ara og kennara eiga sök á deilunum og lagði til sáttaleið. STJÓRNMÁL Starfshópur sem hefur skoðað reynslu af mismunandi löggjöf um vændi, klámiðnað og mansal og hefur skilað skýrslu klofnaði í afstöðu sinni til sænsku leiðarinnar, sem snýst um að gera vændiskaup refsiverð. Fulltrúar Samfylkingar, Fram- sóknarflokks og Vinstri grænna vilja fara sænsku leiðina hérlend- is og segja margt benda til þess að vændi sé vaxandi vandamál. Þau telja reynslu Svía sýna að varnað- aráhrif þess að gera vændiskaup refsiverð séu líkleg til að fæla væntanlega vændiskaupendur frá áformum sínum. Fram kemur að verulega hafi dregið úr sýnilegu vændi í Svíþjóð í kjölfar lagasetn- ingarinnar en erfitt sé að meta umfang neðanjarðarstarfseminn- ar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og dóms- og kirkjumálaráðuneytis telja ekki ráðlegt að fara sænsku leiðina og meginrökin eru þau að erfiðara sé að fylgjast með vænd- inu við að það hverfi af yfirborð- inu. Einnig verði sönnunarbyrði þyngri gagnvart vændismiðlurum þar sem kaupendur verði saka- menn með því að játa vændiskaup. Jafnframt er bent á að engin heild- arúttekt hafi verið gerð á vegum sænskra stjórnvalda á áhrifum laganna. - sdg REFSIVERT ER AÐ STUNDA VÆNDI TIL FRAMFÆRSLU Á ÍSLANDI Engin ákvæði eru í íslenskri löggjöf um að það sé refsivert að kaupa kynlíf af fullorðnum einstaklingi. Skýrsla starfshóps um reynslu af löggjöf um vændi, mansal og klámiðnað kynnt: Sænska leiðin afar umdeild SPURNING DAGSINS Harpa, ertu Haukur í horni? „Nei, ég er skytta.“ Harpa Melsteð er fyrirliði Hauka, sem urðu bikarmeistarar í handbolta á laugardag. ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR MOSKVA, AP Vitalí Sadovnikov, yfir- maður stærstu kjarnorkuendur- vinnslustöðvar Rússlands, hefur verið ákærður fyrir brot á öryggis- reglum þegar hann heimilaði að tugir milljóna rúmmetra af fljót- andi geislavirkum kjarnorkuúr- gangi væri veitt út í ána Techa á árunum 2001 til 2004. Endurvinnslustöðin hafði yfir nægu fé að ráða til þess að koma í veg fyrir þetta umhverfistjón, en yfirmaðurinn kaus að verja því fé heldur í skrifstofukostnað og greiðslur til sjálfs sín, að því er segir í yfirlýsingu rússneska sak- sóknarans. - gb Reglur brotnar í Rússlandi: Veitti úrgangi út í næsta fljót Slys í sumarbústað Kalla þurfti út sjúkrabíl í sumarbústað í Svignaskarð rétt fyrir miðnætti á laugardagskvöldið. Þar hafði maður dottið og skorið sig illa á hálsi. Var maðurinn fluttur með hraði á gjörgæslu í Reykjavík þar sem hann var fljótlega útskrifaður. LÖGREGLUFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.