Fréttablaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 67
MÁNUDAGUR 27. febrúar 2006 ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ���������������������������������������� ������������������� ������������ ��������������� ����������������� �������������������������������� ������������� ����������������� ������������������������������� ����������������������� ������������ �������������� �� ����������� ����������������������� ������������������������������������������������ ���������������������������� ��������������������������������� ���������� �������������������� Fös. 3. mars. kl. 20 örfá sæti laus Fös. 10. mars. kl. 20 Lau. 18. mars. kl. 20 SÝNINGUM LÝKUR Í MARS! Ef eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson Þri. 28. feb. kl. 09.00 UPPSELT Mán. 6 mars. kl.09.00 UPPSELT Þri. 7. mars. kl.09.00 UPPSELT Mið. 8.Mars. kl.09.00 UPPSELT www.performer.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI „Ég hef verið að fást við konur og kvenverur undanfarin tuttugu ár,“ segir Magdalena Margrét Kjart- ansdóttir, sem opnaði sýningu á verkum sínum á föstudagskvöld- ið. Sýningin var opnuð í Grafíksafni Íslands, sal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu. Sýningunni fylgir langur listi af orðum sem til eru í íslensku máli um konur og kvenpersónur af ýmsu tagi. „Þetta er dálítið skemmtilegur listi,“ segir Magdalena. „Þarna eru bæði falleg orð og ofsalega ljót.“ Meyjar, stúlkur, stelpur og yng- ismeyjar eru í fallegri kantinum, en meðal þeirra ljótari má nefna tæfur, forynjur, skækjur og kven- sviftar. Þarna má einnig sjá pissu- dúkkur og prinsipissur, hækjur og langbrækur, fjallkonur, mömmur og konur. Og er þá langt í frá allt saman upptalið því alls eru kven- heitin vel á annað hundrað. „Ég settist bara niður við tölv- una og hugsaði,“ segir Magdalena þegar hún er spurð hvernig hún hafi safnað orðum í þennan langa lista. Fyrirmyndir að svona lista er meðal annars að sækja í Snorra- Eddu, sem Magdalena mynd- skreytti reyndar á sínum tíma. Myndirnar á sýningunni eru allar grafíkverk sem sérstaklega eru unnin fyrir sal Íslenskrar grafíkur í tilefni Vetrarhátíðar- innar, sem lauk í gær. „Þetta eru allt saman stórar myndir og eiginlega allar í hvítum lit,“ segir Magdalena. Sýningin verður opin áfram um næstu helgi, en hún stendur aðeins til 5. mars og er aðeins opin föstu- daga, laugardaga og sunnudaga. Magdalena Margrét er lista- maður ársins 2006 hjá Grafíkfélagi Íslands. Grafíkvinafélagið gefur út eina mynd á hverju ári og í ár varð mynd eftir Magdalenu fyrir valinu. Grafíksafn Íslands er til húsa hafnarmegin í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. ■ Konur og aðrar kvenverur Á föstudaginn var opnaði Lilja Bragadóttir sína fyrstu einkasýn- ingu í versluninni Gullkúnst Helgu að Laugavegi 13. Lilja hefur komið víða við á lífs- leiðinni, rak meðal annars blóma- búð í Garðabænum í þrjú ár. Fyrir nokkrum árum lét Lilja svo verða af því að láta gamlan draum ræt- ast og hélt til Danmerkur í mynd- listarnám. „Annars hef ég verið viðloðandi málun alla mína tíð, meðal annars sótt ýmis námskeið hérna heima.“ Á sýningunni í Gullkúnst Helgu sýnir Lilja bæði akrýlmálverk og olíumálverk. „Það má segja að þetta sé yfir- litssýning á því sem ég hef verið að gera undanfarin ár. Ég hef málað mikið fígúratívt en er að fara út í meira abstrakt myndir. Kannski svipað og Danir eru með. Þeir eru mikið með abstraktmynd- ir og mér finnst það mjög spenn- andi sem þeir eru að gera.“ Fátt verður um svör þegar hún er spurð hvað hafi dregið hana að myndlistinni. „Ég veit það nú ekki, en ég er mikill fagurkeri. Mér finnst gaman að öllu sem hefur fagurfræðilegt gildi.“ Hún segir áhugann alltaf hafa verið fyrir hendi, allar götur frá því hún var krakki og fylgdist með móður sinni læra teikningu hjá Hring Jóhannessyni. „Ég fór stundum með henni í tíma og sat þá og fylgdist með. Stundum sat ég fyrir hjá henni sem barn. Svo sat ég líka löngum stund- um úti í náttúrunni og gerði mynd- ir sjálf þegar ég var yngri.“ ■ Lét ung heillast af myndlistinni LILJA BRAGADÓTTIR MYNDLISTARMAÐUR Sýnir olíumálverk og akrýlverk í Gullkúnst Helgu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MAGÐALENA MARGRÉT KJARTANSDÓTTIR Um síðustu helgi opnaði hún sýningu í Grafík- safni Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Þjóðminjasafnið hefur verið valið í undanúrslit til samkeppni um safn Evrópu 2006. Í janúar á síðasta ári tilnefndi íslenska Safnaráðið Þjóðminja- safn Íslands til þátttöku í sam- keppni Evrópuráðs safna um Safn Evrópu árið 2006. Í framhaldi af tilnefningunni heimsóttu fulltrúar Evrópuráðsins safnið og gerðu úttekt á því í september síðast- liðnum. Skilyrði tilnefningar og þátt- töku safns í samkeppninni er að safnið hafi lokið umfangsmikl- um breytingum eða endurskipu- lagningu á einhverjum þætti starfseminnar á síðastliðnum tveimur árum, eða að safnið sé nýtt, stofnað á síðastliðnum tveimur árum. Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt í maí á aðalfundi EMF í Lissabon í Portúgal. Síldarminjasafnið á Siglufirði var fyrst íslenskra safna tilnefnt til samkeppninnar árið 2004 og hlaut safnið Micheletti-verðlaunin það ár. ■ Komið í fremstu röð Á ÞJÓÐMINJASAFNINU Breytingarnar á Þjóðminjasafninu mælast vel fyrir í alþjóð- legum safnaheimi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.