Fréttablaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 8
8 27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR BANDARÍKIN, AP Eigandi líftækni- fyrirtækis í New Jersey hefur ásamt útfararstjóra í New York og tveimur öðrum mönnum verið ákærður fyrir að stela líffærum og selja þau ólöglega. Mennirnir, sem allir hafa lýst sig saklausa, eru ákærðir fyrir hundrað brot á lögum sem banna ólögleg við- skipti með líffæri. Eigandi líftæknifyrirtækisins heitir Michael Mastromarino og er skurðlæknir. Hann er talinn höfuðpaurinn í málinu en helsti samstarfsmaður hans var útfar- arstjórinn Joseph Nicelli, sem rekur útfararstofu í Brooklyn- hverfi í New York. Þeir félagar greiddu öðrum útfararstjórum sjötíu þúsund krónur fyrir lík. Síðan skar Mastromarino líkin upp og tók úr þeim bein, hjarta- lokur og önnur líffæri og líkams- vefi. Mastromarino falsaði meðal annars gögn sem þurfa að vera fyrir hendi til að líffæragjafi geti talist lögmætur sem slíkur. Einnig falsaði hann gögn um aldur og dánarorsök líffæragjafans. Talið er víst að í nokkrum tilvikum hafi hann skrifað á þar til gerð skjöl að viðkomandi líffæragjafi, sem lést úr krabbameini, hafi látist vegna hjartaáfalls. Þegar Mastromarino var búinn að falsa öll gögn seldi hann líffærin síðan til líffæra- banka sem keyptu þau í góðri trú. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur lokað fyrir- tæki Mastromari- no og beðið fimm líffærabanka sem vitað er að áttu í viðskiptum við hann að afhenda öll líffæri sem þeir fengu frá honum. Eftirlitsstofnunin hefur óskað eftir því að allir líffæraþegar sem hafi fengið líf- færi frá fyrirtæki Mastromarin- os verði prófaðir fyrir HIV-, lifr- arbólgu- og sárasóttarsmiti. Þegar hafa nokkrir líffæraþegar höfðað mál. Ekki er vitað hversu margir fengu líffæri frá fyrirtæki Mastr- omarinos en þegar hafa nokkrir þeirra höfðað mál á hendur því. Jeffrey Lisabet, lögmaður eins líffæraþegans, segir málið vera bæði ótrúlegt og viðbjóðslegt. Skjólstæðingur hennar óttist verulega um heilsu sína. trausti@frettabladid.is Keypti lík og seldi líffærin úr þeim Allsérstakt dómsmál er í uppsiglingu í New York. Fjórir menn hafa verið ákærð- ir fyrir ólögleg viðskipti með líffæri. Skurðlæknir og útfararstjóri keyptu lík á sjötíu þúsund krónur. Líffærin voru seld til líffærabanka. MICHAEL MASTROMARINO TILKYNNT UM ÁKÆRURNAR Josh Hanshaft aðstoðarríkissaksóknari tilkynnir á blaðamanna- fyndi í New York að fjórir menn hafi verið ákærðir fyrir að stela líffærum. Á röntgenmynd- inni má sjá pípur sem Mastromarino setti í lík eftir að hann var búinn að fjarlægja úr því bein. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEISTU SVARIÐ 1 Hvar vill Yoko Ono reisa friðarsúlu? 2 Hvað heitir fráfarandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði? 3 Hverjir eru bikarmeistarar í handknattleik kvenna? SVÖR Á BLS. 34 FATLAÐIR Blindrafélagið og Hafn- arfjarðarbær hafa gert með sér samning um ferðaþjónustu blindra í Hafnarfirði. Samningurinn var undirritaður af Lúðvík Geirssyni bæjarstjóra og Halldóri S. Guðbergssyni, for- manni Blindrafélagsins. Samkomu- lagið tryggir lögblindum í Hafnar- firði fjörutíu ferðir á mánuði með leigubílum á milli staða á höfuð- borgarsvæðinu á sama verði og kostar að ferðast með strætó. - shá Nýr samningur undirritaður: Þjónusta við blinda bætt UMFERÐARÖRYGGI Vorið 2005 sam- þykkti Alþingi þingsályktun um sérstaka umferðaröryggisáætlun fyrir árin 2005-2008. Markmiðið var að reyna að fækka banaslys- um og fjölda alvarlega slasaðra í umferðinni. Hluti þessarar öryggisáætlunar var samningur á milli Umferðarstofu og Ríkislög- reglustjóra um sérstakt umferðar- eftirlit á þjóðvegum landsins en tvö af hverjum þremur banaslys- um í umferðinni á Íslandi verða þar og yfirleitt er hraðakstri um að kenna. Niðurstöður þessa átaks fyrir árið 2005 voru kynntar í gær og tölur frá Umferðarstofu sýna að á því tímabili sem eftirlitið var aukið urðu töluvert færri slys borið saman við fimm ár þar á undan. Samningur fyrir árið 2006 var undirritaður og verður heild- arkostnaður um 87 milljónir króna. Hvert banaslys í umferðinni kost- ar samfélagið sjötíu milljónir króna að meðaltali og slys þar sem einhver slasast alvarlega tuttugu milljónir að meðaltali. Megináherslur lögreglunnar í fyrra voru eftirlit með hraðakstri, bílbeltanotkun og ölvunarakstri. Svo verður einnig nú. Keyptar verða myndavélar sem notaðar verða við eftirlit með hraðakstri og gerðir verða út sérstakir bílar til eftirlits með ölvunarakstri. - shá Nýr umferðaröryggissamningur undirritaður: Aukið eftirlit fækkar slysum FRÁ UNDIRRITUN SAMNINGSINS Sturla Böðvarsson samgönguráðherra Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og Ragn- hildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEL VAR MÆTT Bæði blindir og þeirra þörfustu þjónar verða á faraldsfæti á næstunni. MENNTUN Stóriðjuskólinn, sem rekin er í álveri Alcan í Straums- vík fyrir starfsmenn þar, mun í dag útskrifa ellefu nemendur í framhaldsnámi skólans. „Ég er mjög þakklát fyrir að fá tækifæri til að mennta mig að kostnaðar- lausu á meðan ég er að vinna,“ segir Anna Jóna Ármannsdóttir en hún er eina konan í þessum ell- efu manna hópi. Stóriðjuskólinn býður einnig upp á grunnnám og hafa 160 starfsmenn lokið slíku námi. Einnig hefur Alcan á Íslandi hleypt af stokkunum verkefni undir yfirskriftinni Stærðfræði- snillingarnir. Ellefu þúsund krakkar sem fæddir eru á árun- um 1997 til 1999 geta tekið þátt í verkefninu með því að leysa stærðfræðiþrautir sem finna má á heimasíðu fyrirtækisins. - jse Stóriðjuskóli í Straumsvík: Alcan útskrifar nemendur ANNA JÓNA ÁRMANNSDÓTTIR STÓRIÐJUNEMI PEKING, AP Í þessari viku mæta Xu Shuangfu og 16 aðrir leiðtogar kristi- legs trúfélags í Kína fyrir dómstól þar í landi. Þeir eru sakaðir um að hafa átt þátt í dauða tuttugu leiðtoga annars kristilegs trúfélags í Kína. Áður hafa borist fréttir af ofbeldi milli kristilegra trúfélaga í Kína, en ekkert þeirra nýtur þar opinberrar viðurkenningar. Fréttir hafa borist af því að hinir handteknu leiðtogar hafi verið pynt- aðir við yfirheyrslur. Xu Shuangfu, hinn ákærði trúar- leiðtogi, hefur áður setið í fangels- um og vinnubúðum samtals í tíu ár frá því árið 1976, sakaður um „ólög- legt trúboð“. - gb Trúarleiðtogar í Kína: Sakaðir um tuttugu morð Endurkjörinn Yoweri Musaveni var um helgina endurkjörinn forseti Úganda í þriðja sinn eftir að tölur úr kosningum sýndu að hann hefði hlotið 59 prósent greiddra atkvæða. ÚGANDA Ungmenni sluppu vel Bíll valt rétt fyrir utan Dalvík á laugardagsnótt eftir að ökumaður hafði misst stjórn á bif- reiðinni. Fjögur ungmenni voru í bílnum og að sögn lögreglu á Dalvík sluppu þau öll mjög vel og án meiðsla. Talið er að belti hafi komið í veg fyrir meiriháttar meiðsli. Bíllinn er töluvert skemmdur. LÖGREGLUFRÉTT Hundur til aðstoðar Fyrirtækið Relay Recruitment í Bradford á Englandi hefur komið með heldur frumlega lausn til að hjálpa starfsfólki sínu við að hætta að reykja. Eiga þeir starfsmenn sem ætla út að reykja að viðra hund, sem fyrirtækið hefur ráðið til sín, í staðinn. Vonast fyrirtækið til þess að þetta verði einnig til þess að draga úr streitu starfs- fólksins en breska blaðið Daily Mirror greindi frá. REYKINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.