Fréttablaðið - 27.02.2006, Qupperneq 19
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.43 13.40 18.40
Akureyri 8.32 13.25 18.20
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Fasteignamarkaðurinn er með
glæsilegt 175,8 fermetra endaraðhús í
suðurhlíðum Kópavogs til sölu.
Gengið er inn á miðhæð í flísalagða forstofu
með fatahengi og hillum. Hol er parkettlagt
með fataskápum. Gestasnyrting er með
glugga og vaskaskáp. Eldhús er flísalagt
með fallegum birkiinnréttingum og inn-
felldri uppþvottavél. Stofur eru samliggj-
andi og parkettlagðar með útgengi út á
suðursvalir og fallegu útsýni til vesturs út á
sjóinn og til suðurs að Reykjanesinu.
Af miðhæð liggur fallegur viðarstigi upp
í ris, þar sem er stórt parkettlagt rými með
stórum þakglugga og steyptur parkettlagð-
ur stigi niður á neðri hæð.
Á neðri hæð eru svefnherbergi og park-
ettlagt sjónvarpshol. Barnaherbergi eru tvö
og eru parkettlögð með fataskápum. Hjóna-
herbergi er parkettlagt með fataskáp sem
nær yfir heilan vegg. Baðherbergi er flísa-
lagt með innréttingu og baðkari með sturtu.
Þvottaherbergi er lakkað með vaski og
útgangi út á á baklóð.
Við húsið er 26,1 fermetra bílskúr með
hita, rafmagni, rennandi vatni og rafmagns-
opnara.
Ásett verð er 44,9 milljónir.
Endaraðhús með
útsýni yfir sjóinn
Gnitaheiði 8. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
27. febrúar, 58. dagur
ársins 2006.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
02
61
11
/2
00
5
Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans.
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina
sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og
fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að
eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma
410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is
Fasteignalán
Við hjálpum þér
að eignast
draumaheimilið
DÚKKUHÚS Í
HAFNARFIRÐI
Magný Jónsdóttir og
Reynir Sigurðsson
eru að endur-
byggja húsið
að Vörðustíg 2 í
Hafnarfirði.
HÚS 4
HUNDRAÐ OG EIN ÍBÚÐ ER
Í BYGGINGU Á REYÐARFIRÐI
AUK IÐNAÐARHÚSNÆÐIS OG
ÍÞRÓTTAHALLAR.
Byggingariðnaðurinn blómstr-
ar á Reyðarfirði. Að sögn
Steindórs Stefánssonar, starfs-
manns byggingafulltrúa, er eitt
hundrað og ein íbúð í bygg-
ingu í fjölbýlishúsum, raðhús-
um, parhúsum og einbýli. Þær
eru mismunandi langt á veg
komnar. Verktakar eru meðal
annarra Íslenskir aðalverktakar
og Akur. Iðnaðar- og verslunar-
húsnæði rís líka á Reyðarfirði.
Jóhann Rönning er með stór-
hýsi í smíðum og úti á svoköll-
uðu hrauni er iðnaðarhverfi í
uppbyggingu í tengslum við
væntanlegt álver, enda í næsta
nágrenni þess. Ekki má svo
gleyma íþróttamannvirkinu
mikla sem gengur undir nafn-
inu Fjarðabyggðarhöllin. Byrj-
að er að reisa stálvirki þess og
áformað að vígja það í vor.
Viðbygging við skólann er meðal nýframkvæmda á Reyðarfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Húsin rísa ört á Reyðarfirði
FASTEIGNASÖLUR
Atlas 37
Ás 16-18
Árborgir 33
Bifröst 9
Netla 32
Draumahús 21-24
Eignamiðlun Suðurn. 36
Eignastýring 14
Fasteignamarkaðurinn 13
Fasteignastofan 14
Fasteignam. Grafarv. 26
FMH fasteignasala 30
Foss 10
Hof 7
Húsið 28-29
Höfði 6
Húsalind 8 og 26
Húsanaust 35
Húseign 19
Lundur 12-13
Lyngvík 15
Nýtt 27
Remax Mjódd 33
Perla 36
Valhöll 34
Viðskiptahúsið 11
X-hús 31