Fréttablaðið - 27.02.2006, Síða 25

Fréttablaðið - 27.02.2006, Síða 25
MÁNUDAGUR 27. febrúar 2006 7 Lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu á fyrstu hæð. Inn af forstofu er gestasnyrting með glugga. Rúmgott hol er með stigum upp á efri hæð og niður á jarðhæð. Eldhús er nýlega stækkað og uppgert með borðkrók. Stofa er rúmgóð með góðum gluggum og útgengi á suðvestursvalir. Á efri hæð eru fjögur góð svefnherbergi. Hjónaherbergi er með útgengi út á suðvestursvalir og góðum skápum meðfram vegg. Baðherbergi er nýuppgert með hvítri innréttingu, upphengdu salerni með mósaíkflísalögðum kassa og baðkari með sturtu. Þvottaherbergi er með glugga og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Á jarðhæð er stórt herbergi með útgangi í garð. Herbergið nýtist vel sem unglingaherbergi eða skrifstofa og hægt er að útbúa baðhergergi í herberginu en þar er tengi fyrir sturtu og klósett. Beykiparkett er á flestum gólfum eignarinnar. Úti: Steypt verönd, þrjátíu fermetra bílageymsla og mjög gott leiksvæði. Annað: Útsýni er mjög gott en hægt er að horfa yfir Reykjavík, Esjuna og Snæfellsjökul. Eignin er nettengd alls staðar með adsl tengi og breiðbandi. Fermetrar: 200 Verð: Tilboð óskast Fasteignasala: Húseign 109 Reykjavík: Útsýni yfir Esjuna Dalsel 27: þriggja hæða endaraðhús. Lýsing: Flísalagt anddyri með fataskáp sem nær upp í loft. Þaðan er gengið inn í hol sem nú nýtist sem sjónvarpsrými. Flísalagt rúmgott baðherbergi með hornbaðkari, sturtuaðstöðu og innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingunni. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og er stærra herbergið með fataskáp. Herberg- ið er um 24 fermetrar en í því er einnig geymsla. Eldhúsið er með nýrri innréttingu og tækjum. Borðstofa fyrir framan eldhús. Lítil stofa inn af eldhúsi með útgengi á sólpall sem snýr í suður. Annað: Íbúðin er á jarðhæð með sér inn- gangi. Stærra svefnherbergið var uppruna- lega útbúið sem bílskúr. Verð: 26,3 Stærð: 117,6 fermetrar Fasteignasala: Fasteignamiðlun. 108 Reykjavík: Sólpallur og hornbaðkar Ásgarður 22-24: Fasteignamiðlun er með til sölu 117,6 fermetra íbúð í fjöleignarhúsi á eftirsóttasta stað í bænum. Sóleyjarimi - Nýtt - Grafavogi Glæsileg 208 fm raðhús á tveimur hæðum á þessum frábæra stað. Lýsing. Á neðri hæð er bílskúr, forstofa, salerni, eldhús, stofa og borðstofa. Á efri hæð hol, baðherbergi, þvottaherbergi og 4 herbergi. Húsin skilast fullbúin að utan með steinuðum útveggjum og að innan tilbúin til spörslunar án milliveggja. Lóð verður frágengin þ.e. bílastæði hellulagðar með hitalögnum en að öðruleiti tyrfð. Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu. Álftatjörn - Ytri Njarðvík Glæsilegt 194 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið sem er í byggingu afhendist fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð og búið verður að skipta um jarðveg undir bílastæði. Að innan afhendist húsið rúmlega fokhelt. Maghoní gluggar og hurðir. Húsið er teiknað af Pálmari Kristmundssyni. Afhending til áframhaldandi vinnu kaupanda er 15.03 n.k. Verð 33,8 millj. Smárarimi - Einb. á einni hæð Fallegt 184,3 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum 31,1 fm bílskúr í botnlangagötu. Húsið skiptist í rúmgóða forstofu, hol, rúmgott eldhús, stóra borðstofu og stofu, fjögur rúmgóð svefnherbergi, gestasnyrtingu og stórt baðherbergi með glugga. Sjá nánari skilalýsingu á www.hofid.is. Verð 39,9 millj. Valsheiði - Glæsihús - Hverag. Glæsilegt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Sjónvarpsherbergi og fjögur svefnherbergi eitt með fataherbergi og baðherbergi inn af. Björt stofa og borðstofa með mikilli lofthæð. Húsið er til afhendingar í vor tilbúið undir tréverk að innan og fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð. Verð 37 millj. Akurvellir - Nýtt - Hf. Glæsilegar nýjar 155 fm íbúðir í litlu fjölbýlishúsi á þremum hæðum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna og með glæsilegum innréttingum og gæða tækjum. Stórar og góðar svalir með íbúðum á 2 og 3. hæð og sér lóð með íbúðá jarðhæð. Teikingar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Verð frá 29,4 millj. Fr u m Akurhvarf - Útsýni Vorum að fá í sölu glæsileg raðhús á tveim hæðum með innbyggðum bílskúr. Húsið er staðsteypt og afhendist fullbúið að utan, en tilbúið til spörlunar og málunar að innan. Búið verður að hlaða og múra alla milliveggi og hiti tengdur. Lóð verður grófjöfnuð. Verð 39,5 millj. Guðmundur Björn Steinþórsson löggiltur fasteignasali Jón Guðmundsson sölustjóri Geir Þorsteinsson sölumaður Bráðvantar fyrir ákveðinn kaupanda 2ja til 3ja þús. fm atvinnuhúsn. Kaup eða leiga.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.