Fréttablaðið - 27.02.2006, Síða 62
27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR44
Grandaskóli er við Keilu-
granda í Vesturbæ Reykja-
víkur. Skólinn var vígður
1986 og á því tuttugu ára
starfsafmæli í ár. Í skólanum
eru fimm samtengdar álmur
með átján almennum kennslustof-
um, sjö sérgreinastofum, námsveri,
sérkennsluaðstöðu, tveimur tölvu-
verum og skólasafni. Uppbygging
skólans hefur verið hröð því fyrir
tuttugu árum rúmaðist skólastarfið
innan veggja einnar álmu. Skólinn
er í dag einsetinn og stunda þar 340
6-12 ára nemendur nám í sautján
bekkjum. Mikil hefð hefur myndast
fyrir öflugri sérgreinakennslu en
meðal þeirra greina sem standa
nemendum til boða eru leiklist
og upplýsingatækni. Fyrirhugað
er að halda afmælishátíð í maí til
að fagna tuttugu ára afmæli og er
undirbúningur kennara og nemenda
í góðum farvegi. Skólastýra Granda-
skóla er Kristjana M. Kristjánsdóttir
en aðstoðarskólastýra hennar er
Inga Sigurðardóttir.
GRANDASKÓLI
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Tryggva Guðmundsson, knattspyrni með meiru, dreymir um að eiga hús sem gefur
honum og fjölskyldu hans nóg af plássi. ,,Draumahúsið þarf að vera með góðri verönd og
heitum potti og stóru eldhúsi með góðum innréttingum,“ segir Tryggvi. Hann þarf líka að
geta horft á enska boltann í almennilegum gæðum svo hann vill að í stofunni sé risastór
flatskjár. „Svo þarf auðvitað að vera nóg af herbergjum fyrir fjölskylduna,“ bætir Tryggvi við.
Tryggvi á glæstan feril að baki en hann hefur nú snúið heim úr atvinnumennsku og
leikið með FH við góðan orðstír. Hann hefur þó ekki alveg sagt skilið við drauminn um
atvinnumennskuna því hann ætlar sex ára syni sínum stóra hluti. „Það væri ekki vitlaust
að vera með fótboltavöll með tveimur litlum mörkum í bakgarðinum. Ég þarf að þjálfa
drenginn því ég ætla að setja hann í atvinnumennsku og græða á honum,“ segir Tryggvi
og hlær.
Að sögn Tryggva kemur aðeins ein staðsetning til greina að svo stöddu. „Ég er í
Vesturbænum núna þannig að þar yrði draumahúsið að vera.“
DRAUMAHÚSIÐ MITT TRYGGVI GUÐMUNDSSON KNATTSPYRNUMAÐUR
Þarf bara að vera nógu stórt
Góð verönd og heitur pottur er við draumahús Tryggva.
Dregið hefur mjög úr hækkun
fasteignaverðs hér á landi.
Nærri lætur að íbúðaverð hafi
staðið í stað undanfarna mánuði
og verðhækkanirnar sem ein-
kenndu markaðinn í upphafi síð-
asta árs hafa ótvírætt rénað. Þetta
kemur fram í nýlega útkomnu
vefriti fjármálaráðuneytisins.
Gerð er þar grein fyrir verð-
breytingum á fasteignamarkaði á
undanförnum misserum. Þegar
litið var til baka um tólf mánuði í
ágúst 2005 hafði verðið hækkað
um fjörutíu prósent á því tímabili
en í janúar 2006 var hækkunin
síðustu tólf mánuðina hins vegar
25 prósent þannig að ljóst er að
markaðurinn er mjög að róast.
Fjármálaráðuneytið telur að sú
þróun muni hafa áhrif til lækkun-
ar á verðbólgu, mældri með
neysluverðsvísitölunni.
Fasteigna-
markaðurinn
róast
Enn er byggt og byggt. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
6/1-
12/1
88
13/1-
19/1
93
20/1-
26/1
131
27/1-
2/2
180
3/2-
9/2
203
10/2-
16/2
185