Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.02.2006, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 27.02.2006, Qupperneq 72
28 27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FEBRÚAR 24 25 26 27 28 1 2 Mánudagur ■ ■ LEIKIR  19.00 ÍS og Grindavík mætast í Iceland Express-deild kvenna í körfu- bolta. ■ ■ SJÓNVARP  16.20 Spænski boltinn á Sýn. Endursýndur leikur frá því í gær.  18.30 Enski deildabikarinn á Sýn. Leikur Man. Utd. og Wigan endur- sýndur.  20.30 Ítölsku mörkin á Sýn.  21.00 Ensku mörkin á Sýn.  21.30 Spænsku mörkin á Sýn.  22.30 HM 2002 á Sýn. Magnaður leikur endursýndur.  00.10 Ítalski boltinn á Sýn. Greta Mjöll Samúelsdóttir, knattspyrnu- kona úr Breiðabliki og efnilegasti leik- maður Landsbankadeildar kvenna á síðasta tímabili, sýndi og sannaði í síðustu viku að hún er liðtæk í fleiru en fótboltanum. Þá gerði hún sér lítið fyrir og bar sigur úr býtum í söngvakeppni Mennta- skólans í Kópavogi, en þar stundar hún sitt nám. „Ég er nú engin söngkona og þetta hefur aldrei verið neitt meira en bara áhugamál hjá mér. En það eru til spólur heima sem ég hef sungið inn á frá því að ég var fjögurra ára,“ sagði Greta Mjöll við Fréttablaðið og bætti því við að sigurinn í keppninni hefði komið henni mjög á óvart. „Ég hef aldrei lært söng og aldrei lært á hljóð- færi. Ég sé mikið eftir því en þetta er samt alveg að koma – ég er búin að læra fjögur grip á gítarinn!“ Greta Mjöll hefur tekið þátt í hinum ýmsu söngvakeppnum í gegnum tíðina og býr því yfir nokkurri reynslu af þeim. Með sigrinum í MK öðlast Greta Mjöll sjálfkrafa rétt í söngva- keppni framhaldsskól- anna sem framundan er, en sigurlag Gretu Mjallar í keppninni var dægurlagið kunna „Ó, María“, þó með nokkuð breyttu sniði. „Þetta er lag sem allir þekkja úr útilegunum en fáir hafa líklega pælt í textanum, sem er í raun mjög sorglegur. Systir mín og kærastinn hennar sömdu því nýtt lag við þennan texta sem kemur líka svona miklu betur út,“ segir Greta Mjöll. Spurð um hvað yrði á undan, fót- boltinn eða söngurinn, yrði hún neydd til að velja, sagði Greta Mjöll að sá samanburður væri heldur ósann- gjarn. „Fyrir mér er fótboltinn orð- inn miklu meira en bara áhugamál en það er söngurinn að minnsta kosti enn sem komið er. Þannig að ég held nú að fótboltinn hafi miklu meira fram að færa fyrir mig eins og er.“ GRETA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR HJÁ BREIÐABLIK: SIGRAÐI Í SÖNGVAKEPPNI MK Í SÍÐUSTU VIKU Tæki sennilega boltann fram yfir sönginn > Kári úr leik Kári Árnason hefur dregið sig út úr íslenska landsliðshópn- um í knattspyrnu fyrir leikinn gegn Trinidad og Tobago vegna meiðsla sem hann hlaut í leik með Djurgården á dögunum. Enginn hefur verið kallaður í hópinn í hans stað. Þá hefur KR-mark- vörðurinn Atli Jón- asson verið kallaður í U-21 árs hópinn í stað Eyjapeyjans Hrafns Davíðssonar sem er meiddur. U-21 árs liðið mætir Skotum á þriðjudag. Nýr formaður Hörður J. Oddfríðarson var kjörinn formaður Sundsambands Íslands á ársþingi sambandsins um helgina. Hann tekur við af Benedikt Sigurðarsyni, sem gaf ekki kost á sér ti endurkjörs. FÓTBOLTI Uppi varð fótur og fit í leik Real Zaragoza og Barcelona á laugardagskvöldið þegar kamer- únski framherjinn Samuel Eto´o hótaði að yfirgefa völlinn þar sem honum ofbauð kynþáttahatrið sem hann mátti þola frá stuðnings- mönnum Real Zaragoza. Frank Rijkaard, þjálfari Barce- lona, og nokkrir leikmenn ræddu við Eto´o og fengu hann ofan af því að fara út af. Dómari leiksins lét stöðva leikinn og í kjölfarið kom tilkynning í hátalarakerfi vallarins þar sem stuðningsmenn- irnir voru beðnir um að láta af þessari hegðun. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem stuðningsmenn Zaragoza verða uppvísir að slíkri hegðun en félag- ið hefur áður verið sektað vegna kynþáttahaturs stuðningsmann- anna og nú virðist önnur sekt vera á leiðinni. - hbg Samuel Eto´o fékk nóg gegn Real Zaragoza: Hótaði að yfirgefa leikvöllinn SAMUEL ETO´O Búinn að fá upp í kok af kynþáttahöturum á knattspyrnuvöllum heimsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES HANDBOLTI Upprunalegi tíminn sem Guðmundur Ingvarsson og félagar í stjórn HSÍ ætluðu sér til að leysa landsliðsþjálfaramálin er brátt á enda og enn er málið fast á fyrstu hindrun. Eins og Frétta- blaðið greindi frá fyrir nokkru síðan er Alfreð Gíslason að reyna að fá sig lausan frá Magdeburg og takist það er líklegt að hann taki við landsliðinu enda er hann sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins eini þjálfarinn sem HSÍ hefur rætt við um þjálfarastöðuna. Það er járn í járn í viðræðum Alfreðs og Magdeburgar um starfslokasamning en Alfreð stað- festi við Fréttablaðið í gær að hann hefði ætlað að gefa sér fram að helginni til að leysa málið. Hann hefur framlengt þann tíma örlítið en ljóst er samkvæmt heimildum Fréttablaðsins að hann getur ekki dregið málið mikið lengra enda er stjórn HSÍ farið að lengja veru- lega eftir niðurstöðu í máli Alfreðs. Alfreð vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið rétt eins og Guð- mundur Ingvarsson, formaður HSÍ. „Ég vil ekkert tjá mig fyrr en eftir svona tvo til þrjá daga. Þá verðum við vonandi búnir að klára málið og þá getum við upplýst allan sannleikann,“ sagði Guð- mundur. Geir Sveinsson er samkvæmt heimildum Fréttablaðsins næstur á lista HSÍ verði ekkert úr því að Alfreð fái sig lausan. Hann sagði við Fréttablaðið í gær að HSÍ hefði ekki haft samband við sig og finnst honum ekkert að því þar sem hann styður það að HSÍ sé að reyna að fá Alfreð til starfa. „Miðað við það sem ég sé í fjöl- miðlum er verið að bíða eftir niðurstöðu hjá Alfreð. Meira veit ég ekki. Ef svo er þá er það hið besta mál því ég er hlynntur því að HSÍ ræði við Alfreð enda er hann mjög öflugur kostur fyrir Íslands hönd og HSÍ á klárlega að athuga með hans stöðu,“ sagði Geir, sem bíður rólegur en hans afstaða í málinu hefur ekkert breyst. „Ef hlutirnir ganga ekki upp með Alfreð og HSÍ vill hitta mig mun ég fara á fund með þeim en ég veit ekkert hvað myndi koma út úr þeim fundi.“ henry@frettabladid.is Landsliðsþjálfaramálin í hnút Enn er pattstaða í þjálfaramálum íslenska handboltalandsliðsins. Alfreð Gíslason hefur enn ekki fengið úrlausn sinna mála hjá Magdeburg og Geir Sveinsson bíður þolinmóður á hlíðarlínunni. Á EKKERT AÐ LÁTA MANN LAUSAN? Alfreð Gíslason er í miklum vandræðum með að fá sig lausan frá Magdeburg og er að falla á tíma ef hann vill taka við íslenska landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/BONGARTS Foreldrar athugið! Við viljum ekki missa fleiri ungmenni í neyslu fíkniefna. Því viljum við minna ykkur á foreldrafundi í eftirtöldum skólum á vegum Maritafræðslunnar: Grunnskóli Snæfellsbæjar Ólafsvík Lækjarskóli Hafnarfirði Þri. 28. feb. kl 18:00 Fim. 2. mars. kl 20:00 Markmiðið er að samhæfa aðgerðir foreldra í því að styðja unglinga til að taka afstöðu gegn neyslu vímuefna. Reynsla undanfarinna ára sýnir að það ber árangur þegar foreldrar standa saman og setja sameiginlegar reglur og markmið. Nýlega var árangur starfsins metin og benda niðurstöður til þess að þessi fræðsla hafi áhrif á viðhorf unglinga. Að félaginu standa Lögreglan í Reykjavík, Reykjavíkurborg og Marita, forvarnarsvið Samhjálpar. kostaði auglýsinguna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.