Fréttablaðið - 27.02.2006, Síða 74
27. febrúar 2006 MÁNUDAGUR30
FÓTBOLTI Liverpool vann þriðja
leikinn í röð með markatölunni 1-0
gegn Manchester City í gær. Þrátt
fyrir góðan sigur var stjóri liðs-
ins, Rafael Benitez, ekki alveg
nógu sáttur því hann vill sjá liðið
skora fleiri mörk en það er að gera
þessa dagana.
„Ég er ekki sáttur við niður-
stöðuna því enn og aftur vinnum
við 1-0. Vissulega mjög mikilvæg
stig en ég vil sjá liðið skora fleiri
mörk. Það er hættulegt að vera
alltaf 1-0 yfir og við þurfum að
læra að ganga frá leikjum, sér-
staklega þegar við erum manni
fleiri eins og gerðist í dag,“ sagði
Benitez en Joey Barton fékk að
líta rauða spjaldið í leiknum og
það ekki í fyrsta skipti á ferlin-
um.
„Við fengum samt færin en ein-
hverra hluta vegna eru leikmenn-
irnir ekki að nýta færin sín. Svo
urðu leikmennirnir stressaðir og
þá fékk City færi, sem er ekki
nógu gott. Við verðum að læra að
gera okkur lífið auðveldara því
það er óþarfi að bjóða alltaf upp á
svona spennu,“ sagði Benitez. - hbg
Liverpool vann enn og aftur með einu marki:
Benitez vill sjá fleiri
mörk frá Liverpool
KEWELL AÐ KOMA TIL Harry Kewell er farinn að spila sífellt betur og hann skoraði markið
mikilvæga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
Heiðar Helguson hafi verið allt í
öllu þegar Bolton og Fulham mætt-
ust í ensku deildinni í gær. Heiðar
skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
Fulham en varð síðan fyrir því
óláni að jafna leikinn fyrir Bolton
er hann skoraði sjálfsmark. Kevin
Nolan skoraði svo sigurmarkið
fyrir Bolton.
Fyrir utan mörkin tvö átti Heið-
ar skot í þverslána og svo vildi
hann fá víti í leiknum en fékk ekki.
„Heiðar gat ekkert gert við sjálfs-
markinu en ég var ekki ánægður
með varnarleikinn í síðara mark-
inu,“ sagði Chris Coleman, stjóri
Fulham, svekktur en kollegi hans
hjá Bolton, Sam Allardyce, var
aftur á móti í skýjunum. Stóri Sam
vill sjá Nolan í enska landsliðinu
en hann var ekki valinn í hópinn
fyrir leikinn gegn Úrúgvæ.
„Það kom mér ekki á óvart en
ég var samt svekktur að sjá hann
ekki í hópnum. Strákurinn getur
ekki spilað mikið betur en hann er
að gera í vetur en það eru menn
eins og Lampard og Gerrard fyrir
í hópnum þannig að hann verður
að vera þolinmóður og halda áfram
að spila vel. Hans tími mun koma,“
sagði Allardyce.
- hbg
Bolton lagði Fulham í skrautlegum leik:
Heiðar skoraði bæði
fyrir Fulham og Bolton
ÚPPS Heiðar Helguson skorar hér sjálfsmark rétt fyrir hlé og jafnar þar með leikinn fyrir
Bolton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Það var aðeins eitt lið á
Þúsaldarvellinum í Cardiff í gær
þegar úrslitaleikur deildabikar-
keppninnar fór fram. Stórlið
Manchester United er vant því að
spila slíka leiki en slíkt hið sama
verður ekki sagt um mótherjana í
Wigan, sem voru að spila sinn
fyrsta úrslitaleik og reynsluleysið
var augljóst á löngum köflum.
United þakkaði pent fyrir sig og
rúllaði andstæðingnum upp með
fjórum laglegum mörkum. Tvö
komu frá Wayne Rooney og þeir
Louis Saha og Cristiano Ronaldo
skoruðu hin tvö. Eftir leikinn fóru
leikmenn United í boli með skila-
boðum til Alans Smith um að sig-
urinn hefði verið fyrir hann en
Smith fótbrotnaði mjög illa um
síðustu helgi.
„Það voru allir í molum yfir
þessum hræðilegu meiðslum hjá
Smith. Hann gat ekki verið með
okkur hér í dag og þess vegna til-
einkuðum við honum sigurinn,“
sagði Gary Neville, fyrirliði Man.
Utd., en hann var að taka við sínum
fyrsta bikar sem fyrirliði liðsins.
Athygli vakti að hollenski
markahrókurinn Ruud van Nistel-
rooy mátti gera sér að góðu að
verma tréverkið í leiknum en í
hans stað var Frakkinn Louis
Saha.
„Saha átti skilið að spila þar
sem hann var búinn að skora fimm
mörk í síðustu leikjum og tíu mörk
í síðustu þrettán leikjum,“ sagði
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd. „Ruud virtist vera í lagi í bún-
ingsherberginu fyrir leikinn og
spjallaði við strákana. Auðvitað er
hann vonsvikinn samt með að spila
ekki og hann á að vera það. Ég var
líka svekktur þegar ég var settur
á bekkinn fyrir úrslitaleikinn
1965. Svona kemur fyrir en það er
eðli leiksins að menn fara inn og
út úr byrjunarliðum,“ sagði Sir
Alex, sem vildi ekki meina að það
hefði verið léttir að vinna leikinn.
„Mér er alls ekki létt en það er
gott að vita að við getum enn unnið
bikara. Það hefur verið sagt að við
höfum kallað þennan bikar
„einskis verða bikarinn“ en það er
ekki satt. Bikar er bikar og það
var mjög ljúft að fagna sigri hér í
dag.“
Louis Saha sýndi enn og aftur
að hann á sætið í byrjunarliðinu
vel skilið, skoraði mark og lék
mjög vel. „Við vildum vinna bikar
í vetur og það er mjög gott að hafa
náð því takmarki,“ sagði Saha en
maður leiksins, Wayne Rooney,
var einnig í skýjunum með árang-
urinn. „Þetta er alveg magnað og
ég er mjög sáttur við mörkin tvö
þar sem ég hef ekki verið að skora
mikið upp á síðkastið.“
Paul Jewell, stjóri Wigan, var
stoltur í leikslok. „Ég er mjög
stoltur af mínu liði og ekki bara í
dag. Það voru fjölmargir búnir að
afskrifa okkur fyrir tímabilið en
við komumst í bikarúrslit og erum
með fjörutíu stig í deildinni, sem
er ekki ónýtt.“ henry@frettabladid.is
Tileinkuðu Alan Smith sigurinn
Manchester United vann enska deildabikarinn í annað sinn í gær. Mótherjinn Wigan var lítil fyrirstaða og
Man. Utd. vann öruggan og mjög sannfærandi stórsigur, 4-0. Tímabilinu er því bjargað hjá liðinu.
KAFMASSAÐUR Portúgalinn Ronaldo fagn-
aði marki sínu með því að fara úr að ofan
og sýna vöðvana. Hann fékk gult spjald
fyrir athæfið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
LÉTTIR Þjálfarateyminu Ferguson og Quei-
ros var greinilega mikið létt í leikslok.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
KAMPAVÍN OG GLEÐI Gleðin réð ríkjum hjá leikmönnum Man. Utd. eftir leikinn í gær. Á
bolum leikmanna stendur: “For you, Smudge” eða fyrir þig, Smudge en það er gælunafn
Alans Smith, leikmanns liðsins, sem fótbrotnaði illa um síðustu helgi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Lærisveinar Teits Þórð-
arsonar í KR sóttu ekki gull í
greipar Víkinga í Egilshöllinni í
gær þegar liðin mættust í deildar-
bikarnum.
Leikurinn var dramatískur í
meira lagi en Víkingur fór með
sigur að lokum, 4-3, eftir að KR
hafði leitt í leikhléi, 2-1.
KR var yfir, 3-1, þegar tólf mín-
útur voru eftir af leiknum en tvö
mörk Davíðs Þórs Rúnarssonar
undir lokin tryggðu sigur Víkinga.
Björgólfur Takefusa, Sigmundur
Kristjánsson og Bjarnólfur Lárus-
son skoruðu mörk KR.
Viktor Bjarki Arnarsson og
Stefán Sveinbjörnsson skoruðu
hin mörk Víkinga. - hbg
Deildabikarinn:
KR tapaði
fyrir Víkingi
BARÁTTA Víkingurinn og fyrrum KR-ingur-
inn Björgvin Vilhjálmsson sést hér í barátt-
unni við tvo KR-inga í Egilshöllinni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÓL Í TÓRÍNÓ Vetrarólympíuleikun-
um í Tórínó lauk formlega í gær-
kvöldi með glæsilegri lokahátið.
Flestir eru sammála um að leik-
arnir hafi tekist vel og var almenn
ánægja meðal skipuleggjenda í
gærkvöldi.
Þjóðverjar gerðu sér lítið fyrir
og hirtu flest gullverðlaun á leik-
unum, 13 talsins. Þeir unnu einnig
til flestra verðlauna, samtals 29.
Bandaríkjamenn komu næstir
með 25 verðlaun, þar af níu gull.
Austurríkismenn voru með 23
verðlaun og einnig níu gull en
Rússar urðu að sætta sig við átta
gullverðlaun að þessu sinni.
Mestu vonbrigðin voru í her-
búðum Noregs, sem lenti í þrett-
ánda sæti á verðlaunalistanum
með nítján verðlaun og þar af
aðeins tvö gull en Norðmenn ætl-
uðu sér stóra hluti á leikunum eins
og Bandaríkjamaðurinn Boide
Miller sem fór tómhentur heim.
- hbg
ÓL í Tórínó:
Þjóðverjar
unnu flest gull
SKRAUTSÝNING Það var mikið um dýrðir á
lokaathöfn ÓL í gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Spænska stórliðið Real
Madrid fékk enn eitt kjaftshöggið
í gærkvöldi þegar það tapaði fyrir
Real Mallorca sem er í botnbar-
áttu í deildinni.
Eftir leikinn er Madrid í þriðja
sæti deildarinnar, heilum tíu stig-
um á eftir toppliðinu Barcelona
sem á sigurinn í deildinni vísan
enda níu stig í liðið í öðru sæti,
Valencia.
Real Mallorca eygir að sama
skapi góða von um að forðast fall-
ið eftir sigurinn þótt liðið sé enn í
fallsæti. Það er nefnilega jafnt
fjórum öðrum liðum að stigum og
allt því galopið fyrir lokaumferð-
irnar, sem verða vafalítið æsi-
spennandi. - hbg
Spænski boltinn:
Enn tapar
Real Madrid