Fréttablaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 2
2 20. mars 2006 MÁNUDAGUR
Sjálfskipt
og allt allt öðruvísi
1.790.000,-
Sjálfskipt, 1.8 l. vél og hlaðin aukabúnaði
���������������� �����������������
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
MOSKVA, AP Sergei Lavrov,
utanríkisráðherra Rússlands, sagði
í blaðaviðtali í síðustu viku að hann
teldi að palestínsku samtökin
Hamas myndu innan tíðar viður-
kenna Ísraelsríki og fallast á aðrar
kröfur, til dæmis um alþjóðlegt
eftirlit með hjálparstarfi og að við-
urkenna Mahmoud Abbas sem for-
seta Palestínumanna.
„Ég tel að við munum sjá einhver
skref í þessa átt á næstu tveimur
vikum,“ sagði Lavrov, sem nýverið
ræddi í Moskvu við sendinefnd frá
Hamas. Jafnframt varaði Lavrov við
því að reynt yrði að einangra Hamas
á alþjóðavettvangi. - gb
Utanríkisráðherra Rússlands:
Segir Hamas
fallast á kröfur
SERGEI LAVROV Utanríkisráðherra Rúss-
lands er bjartsýnn eftir viðræður við fulltrúa
Hamas. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRAK, AP Írak er nú í miðri borgara-
styrjöld, að sögn fyrrverandi for-
sætisráðherra Íraks. Ayad Allawi
lét þessi orð falla í viðtali við
breska ríkisútvarpið, BBC, í gær.
Talsmenn Bandaríkja- og Bret-
landsstjórna hafa ítrekað neitað
því að borgarastríð geisi í landinu,
en Allawi sagði „borgarastyrjöld“
vera eina orðið sem hægt væri að
nota yfir ofbeldisölduna sem
sífellt færist í aukana þar í landi.
„Á hverjum degi farast fimm-
tíu til sextíu manns víða í landinu,
ef ekki fleiri. Ef þetta er ekki
borgarastyrjöld, þá veit Guð einn
hvað borgarastyrjöld er,“ sagði
Allawi.
Ofbeldisaldan sem nú gengur
yfir landið á upptök sín í sprengjum
sem eyðilögðu einn helgasta stað
sjíamúslima, Gullnu moskuna í
Samarra, hinn 22. febrúar. Þótt
stjórnmálaskýrendur hafi ítrekað
sagt ofbeldið sem fylgdi í kjölfar-
ið geta markað upphaf borgara-
styrjaldar hafa talsmenn Banda-
ríkjahers harðlega neitað þeim
stimpli.
Óeirðirnar hafa heldur ekki
auðveldað mótun nýs þings, sem
sat fyrst á fimmtudag. Fulltrúar
allra stjórnmálaflokka og trúar-
bragða hittust á fundi í Írak í gær,
þar sem framtíð stjórnarinnar var
rædd. - smk
Fyrrverandi forsætisráðherra Íraks opinskár í bresku útvarpsviðtali:
Borgarastyrjöld geisar í Írak
BORGARSTYRJÖLD? Almennir borgarar
slökkva eld í húsi sem í kviknaði við árás
ónefndra byssumanna í Ramadi-borg í Írak
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLA Tveir ungir menn voru
handteknir í miðbæ Reykjavíkur
í gærmorgun eftir líkamsárás.
Lögreglunni var tilkynnt um
stympingar milli nokkurra manna
ofarlega á Laugaveginum klukkan
sjö í gærmorgun. Þar höfðu tveir
ungir menn ráðist að þeim þriðja.
Þegar lögreglu bar að garði voru
árásarmennirnir handteknir og
færðir í fangageymslur. Voru þeir
báðir töluvert ölvaðir og urðu að
sofa úr sér vímuna áður en yfir-
heyrslur gætu hafist. Fórnarlamb-
ið var flutt á slysadeild með
nokkra áverka á búk og andliti en
hann hafði ítrekað fengið í sig
högg og spörk. - sgi
Líkamsárás á Laugavegi:
Handteknir
eftir líkamsárás
MANNFJÖLDI Árið 2005 fjölgaði
íbúum hér á landi meira en mörg
undanfarin ár. Fólksfjölgun var 2,2
prósent á árinu og hefur íbúum
ekki fjölgað jafnmikið hér á landi
frá því fyrir 1960.
Þessi mikla fjölgun er öðru
fremur rakin til mikils aðstreymis
fólks frá útlöndum, til dæmis
vegna stóriðjuframkvæmda á
Austurlandi. Mikil fólksfjölgun hér
á landi frá lokum seinni heims-
styrjaldar til ársins 1970 er aftur á
móti rakin til mikils fjölda fæðinga
og bættra lífslíkna. - shá
Hagstofa Íslands:
Mikil fólks-
fjölgun í fyrra
MOSKVA, AP Hluti ganga í neðan-
jarðarlestarkerfi Moskvuborgar í
Rússlandi hrundi í gær ofan á lest í
göngunum og upp kom eldur í lest-
inni. Þótti mikil mildi að engin
meiðsl urðu á fólki. Göngin og lest-
in voru þegar í stað rýmd, og lágu
lestarsamgöngur niðri um hríð.
Yfirmaður neðanjarðarlestar
Moskvu sagði verkamenn hafa
valdið slysinu, en þeir voru að setja
upp stórt auglýsingaskilti á götu
ofan við göngin, og skemmdu óvart
við það burðarstólpa sem halda
eiga þaki gangnanna uppi.
Vonast var til þess að lestarsam-
göngur um göngin yrðu komnar í
samt lag í dag. - smk
Neðanjarðarlest í Moskvu:
Mannbjörg er
göng hrundu
LESTARSTÖÐ RÝMD Sjúkraflutningamenn
yfirgefa Voikovskaya-lestarstöðina í Moskvu
skömmu eftir að hluti ganganna hrundi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Sérfræðingar í Dan-
mörku telja víst að fleiri tilfelli af
fuglaflensu muni finnast á næst-
unni. Þeir óttast einnig að það muni
taka mörg ár að úthýsa henni, enda
hafi hún verið í Suðaustur-Asíu í
meira en þrjú ár.
Á föstudag fundust níu sýktar
endur á eyjunni Ærø sem liggur
skammt frá Fjóni en fyrsta tilfellið
uppgötvaðist á Sjálandi fyrr í vik-
unni. Samkvæmt frétt Berlingske
Tidende í gær er talið að flensan
muni aðallega halda sig við strend-
ur landsins. - ks
Fuglaflensa í Danmörku:
Veikin komin
til að vera
VARNARMÁL Samfylkingin telur
brot Bandaríkjamanna á varnar-
samningnum marka tímamót í
öryggis- og varnarmálum sem feli
í sér ákveðið tækifæri til að móta
sjálfstæða stefnu í þeim málum.
Þetta var meðal efnis sem fram
kom á blaðamannafundi sem Sam-
fylkingin boðaði til í gær.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingar, sagði að
flokkurinn væri orðinn þreyttur á
að bíða eftir því að ríkisstjórnin
ætti frumkvæði að því að móta
stefnu í öryggis- og varnarmálum
sem tæki mið af þjóðarhagsmun-
um Íslendinga. „Við höfum því
tekið ákvörðun um það sjálf að
freista þess að setja þessa vinnu
af stað og höfum fengið Jón Bald-
vin Hannibalsson til að leiða þessa
vinnu auk þess sem við ætlum að
fá til liðs við okkur fólk sem bæði
hefur sérfræði- og pólitíska þekk-
ingu í þessum málum,“ sagði Ingi-
björg og lagði áherslu á að vinnan
yrði þverpólitísk því nú væri lag
að ná sátt um meginþætti í varnar-
og öryggismálum.
Samfylkingin telur rétt að ein-
blína ekki á varnarsamstarfið við
Bandaríkin heldur meta jafnframt
aðra kosti, til dæmis samstarf við
aðrar bandalagsþjóðir innan Atl-
antshafsbandalagsins og samstarf
við Norðurlönd.
Jón Baldvin Hannibalsson var
utanríkisráðherra í sjö ár og sendi-
herra í átta. Hann hefur haldið því
fram að samningaviðræður
Íslands og Bandaríkjamanna séu
sýndarviðræður sem hvorki hafi
snúist um neitt eða leitt til neins.
Þá hafi ákvörðun bandaríska varn-
armálaráðuneytisins verið gömul
en ekki ný og legið fyrir fyrir
löngu. Hann telur að þrátt fyrir að
hefðbundin hernaðarhótun sé ekki
lengur fyrir hendi verði að finna
varnir mót ýmsum öðrum hættum
hér á landi líkt og hryðjuverkum,
eiturlyfjum og glæpastarfsemi.
„Spurningarnar sem þarf að
kanna til hlítar eru að hve miklu
leyti við getum annast þetta sjálf-
ir og að hve miklu leyti er eðlilegt
að byggja á fjölþjóðlegu samstarfi
við grannþjóðir, bæði innan Atl-
antshafsbandalagsins og Evrópu-
sambandsins,“ segir Jón Baldvin,
sem svarar því til að aðkoma hans
að þessari vinnu marki „ekki endi-
lega“ endurkomu hans í pólitík.
Hann segist ekki ætla að gefa
neinar yfirlýsingar þess efnis
hvort hann hyggi á að hasla sér
völl innan íslenskra stjórnmála.
„Það kemur bara í ljós og ræðst af
eftirspurn,“ segir Jón Baldvin.
solveig@frettabladid.is
Jón Baldvin kominn
í utanríkismálin
Samfylkingin er þreytt á aðgerðarleysi stjórnvalda. Formaður flokksins hefur
falið Jóni Baldvin Hannibalssyni að leiða vinnu þverpólitísks vinnuhóps sem
hefur það hlutverk að móta tillögur um nýja öryggis- og varnarstefnu Íslands.
Á BLAÐAMANNAFUNDI Samfylkingin vill
að Íslendingar móti sjálfstæða stefnu í
öryggis- og varnarmálum og kanni aðra
kosti en varnarsamstarfið við Bandaríkin, til
dæmis samstarf við aðrar bandalagsþjóðir
innan Atlantshafsbandalagsins og samstarf
við Norðurlönd.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MÓTAR TILLÖGUR UM ÖRYGGIS- OG
VARNARSTEFNU Jón Baldvin samþykkti
beiðni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að
leiða vinnuhóp sem mótar tillögur um nýja
öryggis- og varnarstefnu Íslands. Hann
vildi ekki segja til um hvort þetta markaði
endurkomu hans í stjórnmálum. Það yrði
að koma í ljós og ráðast af eftirspurn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
Þröstur, er ekki næsta skrefið
útrás?
„Jú, næsta skrefið í útrás okkar er að
kenna Norðurlandabúum hvernig þeir
geti grætt á félagslegu húsnæði.“
Þröstur Ólafsson er formaður Félagsbústaða,
sem reka félagslegt leiguhúsnæði. Það
skilaði methagnaði og græddi 4,6 milljarða
á síðasta ári.
RÆÐA Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, sagði í hátíðar-
ræðu sem hann hélt á afmælishátíð
Félags eldri borgara á Hótel Sögu
í gær að þjóðin stæði í mikilli
þakkarskuld við kynslóð hinna
eldri. Þá væri auðlegð Íslendinga
og árangur í viðskiptum og útrás
afrakstur ævistarfs fyrri kyn-
slóða.
Félag eldri borgara er tuttugu
ára í ár og var hátíðarsamkoman
á sunnudag lokapunktur veglegr-
ar afmælishátíðar sem staðið
hefur undanfarið.
„Auðlegð Íslendinga er vissu-
lega orðin mikil, ærin við upphaf
nýrrar aldrar, en samt skortir
nokkuð á að náðst hafi samstaða
um að setja lífskjör aldraðra efst
á forgangslistann, samstaða um
að sýna í verki þakklæti til kyn-
slóðarinnar sem kom Íslandi í
slíka afbragðsstöðu,“ sagði Ólaf-
ur meðal annars í ræðu sinni og
vonaði að Íslendingar bæru gæfu
til að skapa öldruðum áhyggju-
laust ævikvöld. „Hér þurfa allir
að leggjast á árar. Alþingi og
sveitarstjórnir, hagsmunasamtök
og atvinnulífið, sameinast um að
finna laust á brýnum vanda og
skilja engan útundan í þessum
efnum,“ sagði forsetinn og taldi
að það ætti að vera létt verk að
greiða þakkarskuld við eldri kyn-
slóðina ef mið væri tekið af auð-
legðinni sem við njótum.
- sgi
Forseti á afmælishátíð Félags eldri borgara:
Lífskjör aldraðra í forgang
ÞAKKAR ELDRI BORGURUM Ólafur
Ragnar sagði þjóðina standa í
mikilli þakkarskuld við kynslóð
hinna eldri.