Fréttablaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 20. mars 2006 5
Samsung hefur sett á markað
nýtt 82 tommu LCD-sjónvarp.
Myndflöturinn er 1,87x2,20 m.
Sjónvarpið, sem hlaðið er tækni-
nýjungum, var sýnt í fyrsta sinn á
CeBIT-tæknisýningunni í Hann-
over í vikunni. Helstu framfarirn-
ar felast í svokölluðum LED-
bakljósum. Þau stjórna birtumagni
en hægt er að slökkva alveg á
þeim, öfugt við hefðbundna lampa
sem aðeins er hægt að deyfa. Þetta
gefur miklu meiri andstæður, en
þær hafa lengi verið vandamál í
LCD-sjónvörpum.
Kostirnir við LED eru fleiri.
Meðal annars hitna þeir minna en
venjulegir lampar en það tryggir
betri endingu og bjarta mynd í
lengri tíma.
Það verður að teljast hæpið að
mikið verði framleitt af sjónvarp-
inu samkvæmt T3 tækniblaðinu.
Ef marka má heimildamann þess-
er sjónvarpið einungis auglýs-
ingabrella, eins konar flaggskip til
að vekja athygli á nýrri tækni.
Þess er þó án efa ekki langt að
bíða að þessi nýja tækni verði
fáanleg í viðráðanlegri stærð á
lægra verði.
Til gamans má geta þess að
sjónvarpið er ekki stærsta flat-
skjársjónvarpið sem framleitt
hefur verið. Þar er LG fremst í
flokki með 102 tommu plasma-
sjónvarp sitt.
Nýtt risa-
sjónvarp
Samsung 82 tommu LCD-sjónvarp.
Reykjavíkurborg veitir styrki vegna
endurbóta á hljóðvist vegna
umferðarhávaða. Miðað er við að ef
hávaði frá bílaumferð fari yfir 65 db
utan við húsvegg íbúðarhúsnæðis
geti eigendur sótt um styrk hjá
borginni. Styrkurinn er þá ætlaður til
að lagfæra glugga í íbúðum á þeim
hlíðum sem snúa að umferðargöt-
unni. Algengar styrkuphæðir eru frá
100 þúsund til 400 þúsund krónur.
Styrkir eru skattskyldir en kostnaður
við vinnu og efni er frádráttarbær.
Á vefnum www.rut.rvk.is má
nálgast kort yfir hljóðstig sem sýnir
hvaða hús eru styrkhæf samkvæmt
umferðatalningu.
Skrifstofa Borgarverkfræðings, Skúla-
túni 2, sér um afgreiðslu og móttöku
umsókna fyrir styrkjum.
Upplýsingar fengnar af www.rut.
rvk.is.
Hvar...
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu var 299,1 stig í febrúar
2006, miðað við 100 stig í janúar
1994. Vísitalan hefur hækkað um
2,0 prósent frá fyrra mánuði og
21,7 prósent síðustu tólf mánuði.
Vísitala íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu sýnir breytingar á
vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka
eftir stærð og hvort það telst fjöl-
býli eða sérbýli.
Birtingu vísitölunnar er ætlað
að varpa ljósi á þróun fasteigna-
verðs samkvæmt þeim gögnum
sem liggja fyrir á hverjum tíma.
Fasteignamat ríkisins áskilur sér
rétt til að endurskoða vísitöluna
aftur í tímann í ljósi fyllri gagna
eða fágaðri aðferðafræði. Vísital-
an er ekki ætluð til að verðtryggja
fjárskuldbindingar. - af www.fmr.is
Vísitala íbúðaverðs
Hækkar enn.
Enn hækkar vísitala íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á vef OR má finna upplýsingar
um margt sem viðkemur vatns- og
rafmagnsnotkun heimilanna.
Meðal annars er þar að finna leið-
beiningar um rafmagnsútihitun
og upplýsingar um heita potta, þar
sem lesa má um muninn á hita-
veitu- og rafmagnskyntum pott-
um, rekstrarkostnað á pottum og
fleira því tengt.
Þeir sem eru að spá í að fá sér
heitan pott í garðinn eða við
bústaðinn ættu að byrja á því að
kíkja á www.or.is.
Allt um potta
Upplýsingar um heita potta auðvelda valið.
Það er ljúft að slaka á í heitum potti eftir
erfiðan dag. En hvor hentar þér betur,
rafmagns- eða hitaveitukyntur pottur?
������������
����������
��� �
��������������
�������
����������
����