Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 2
2 25. mars 2006 LAUGARDAGUR Ölvaður undir stýri Lögregla í Hafn- arfirði hafði afskipti af ökumanni sem ók rysjótt um götur bæjarins í fyrrinótt. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ökumaður var drukkinn og var för hans stöðvuð. Ráðist á leigubílstjóra Ölvaður maður réðst að leigubílstjóra í miðbæ Akureyrar laust eftir miðnætti í fyrrinótt. Náðist að yfirbuga manninn áður en skaði hlaust af og gisti hann fanga- geymslur. LÖGREGLUFRÉTTIR PARÍS, AP Enginn árangur varð af fundi forsætisráðherra Frakk- lands og franskra verkalýðsleið- toga í gær um nýju vinnulögin, sem jafnt stúdentar sem verka- lýðsfélög í Frakklandi hafa mót- mælt harðlega undanfarið. Dominique de Villepin forsæt- isráðherra féllst á að hitta verka- lýðsleiðtogana eftir að mótmæla- aðgerðir á fimmtudag snerust upp í hörð átök milli mótmælenda og lögreglu. -gb Átök harðna í Frakklandi: Viðræður voru árangurslausar TÁRAGASIÐ RÝKUR Lögreglan í Rennes í Frakklandi beitti táragasi gegn mótmæl- endum í fyrrakvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Mikil lækkun varð á hlutabréfum í Kauphöll Íslands í gær og lækkaði Úrvalsvísitalan um 4,4 prósent í næstmestu dags- lækkun sögunnar í prósentum. Vísitalan hefur aldrei lækkað eins mikið í stigum talið milli daga. Lokagildi Úrvalsvísitölunnar var 6.089 stig á fimmtudaginn en 5.818 stig við lokun markaða í gær. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 5,14 prósent en fór mest í 24 prósenta hækkun í febrú- ar. Þá heldur krónan áfram að gefa eftir og lækkaði gengisvísitala hennar um 2,75 prósent. Fréttir um að bandarískir pen- ingamarkaðssjóðir hefðu sagt upp skuldabréfum íslensku viðskipta- bankanna, vegna hækkandi ávöxt- unarkröfu, höfðu mikil áhrif á markaðinn til viðbótar við þær fréttir sem hafa borist frá mats- fyrirtæki og erlendum fjármála- fyrirtækjum um íslenskt efna- hagslíf og stöðu bankanna. Þrátt fyrir að skýrsla frá J.P. Morgan, sem birtist í gær, hafi verið á jákvæðari nótum en marg- ar skýrslur erlendra greiningarað- ila virtist hún engin áhrif hafa. Fjármálafyrirtækin leiddu lækkanir gærdagsins. Mest féllu hlutabréf KB banka í verði eða um 7,5 prósent en þar á eftir komu bréf FL Group, sem lækkuðu um 6,7 prósent, og bréf Landsbankans sem lækkuðu um fimm prósent. Gengi hlutabréfa Glitnis og Lands- bankans er lægra en það var um áramót en bréf í FL Group, KB banka og Straumi-Burðarási hafa hækkað á bilinu 6-9 prósent frá byrjun árs. Frá áramótum hafa fjórtán félög í Kauphöllinni hækk- að, tíu lækkað en tvö staðið í stað. Lækkanir hafa sett af stað sölu- hrinu hjá þeim sem hafa verið skuldsettir í hlutabréfakaupum og er mikill taugatitringur á markaði. Í samtölum við verðbréfamiðlara kom fram að margir þeir sem hafi keypt hlutabréf með lánum hafi orðið að selja þar sem að veðkröf- ur bankanna hafi verið komin undir þau mörk sem sett séu. Greiningardeild Landsbankans bendir á að miklar sveiflur hafi orðið á markaði í vikunni. Hluta- bréf hækkuðu á mánudaginn og miðvikudaginn en lækkuðu hina dagana. Alls lækkaði Úrvalsvísi- talan um 7,6 prósent í vikunni. eggert@frettabladid.is HLUTABRÉF FALLA ENN Ein mesta lækkun sögunnar varð í gær þegar Úrvalsvísitalan lækk- aði um 4,4 prósent í kjölfar frétta af því að bandarískir peningamarkaðssjóðir hafi sagt upp skuldabréfum íslensku bankanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Rauður dagur á hlutabréfamarkaði Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan 4. janúar. Hlutabréf lækkuðu um 7,6 prósent í sveiflukenndri viku. Verð tíu félaga af 26 er lægra en það var um áramótin. Þeir sem keyptu hlutabréf á lánum neyðast til að selja. HVÍTA-RÚSSLAND, AP Í fyrrinótt réðst lögreglan í Hvíta-Rússlandi til atlögu gegn tjaldbúðum mótmæl- enda í höfuðborginni Minsk, þar sem fólkið hafði dvalist í fjórar nætur til þess að mótmæla sigri Alexanders Lúkasjenkós í umdeild- um kosningum um síðustu helgi. Hundruð tjaldbúa voru handteknir og fluttir á brott, en skömmu síðar mættu borgarstarfsmenn til þess að hreinsa burt það sem eftir var af tjaldbúðunum. Í gær samþykktu leiðtogar Evr- ópusambandsríkja á fundi sínum í Brussel að refsa bæði Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rúss- lands, og fleiri háttsettum emb- ættismönnum landsins fyrir brot á alþjóðlegum kosningareglum. Bandarísk stjórnvöld skýrðu jafn- framt frá því að þau myndu einnig beita Lúkasjenkó sambærilegum refsiaðgerðum. Líklegt er að refsingin felist í ferðabanni og frystingu inni- stæðna í bönkum. Lúkasjenkó og félagar hans eru þar með komnir á sama svarta listann og Robert Mugabe, forseti Simbabve, og her- stjórnin í Búrma. Leiðtogar Evr- ópusambandsríkjanna fóru hörð- um orðum um framkvæmd kosninganna í Hvíta-Rússlandi og kröfðust þess að mótmælendum verði sleppt úr haldi án tafar. -gb BÍÐUR FRÉTTA VIÐ FANGELSISVEGGINN Alexander Milinkevitsj, leiðtogi stjórnarandstöðunn- ar í Hvíta-Rússlandi, leitað í gær fregna af um 200 mótmælendum sem voru handteknir eftir að tjaldbúðir þeirra voru tæmdar af lögreglunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Tjaldbúðir mótmælenda í Hvíta-Rússlandi rýmdar: Evrópuríki refsa Lúkasjenko LOS ANGELES, AP Nokkur sjúkrahús í Los Angeles í Bandaríkjunum hafa viðurkennt að hafa útskrifað heimilislausa sjúklinga þótt vitað sé að þeir eigi hvergi höfði sínu að halla. Sjúklingarnir hafa verið sendir með leigubílum niður í miðbæjarhverfi, svonefnt Skid Row, þar sem fjölmargt heimilis- laust fólk heldur til. Borgaryfirvöld hafa meðal annars skoðað myndband úr eftir- litsmyndavél, þar sem rúmlega sextug kona, Carol Anne Reyes, sést stíga út úr leigubíl íklædd sjúkrahússlopp. Stjórnendur sjúkrahússins gátu ekki gefið skýringar á þessu. - gb Sjúkrahús í Los Angeles: Reka sjúklinga út á götuna DÓMSMÁL Kveðinn var upp sýknu- dómur yfir Kauphöll Íslands fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en fyrirtækið Míkró fór fram á að viðurkennt yrði með dómi að Kauphöllinni væri heimilt að greiða upp 52 milljón króna veð- skuldabréf. Rök stefnanda voru að hlið- stæða væri fyrir slíku en Míkró keypti húseign af Kauphöllinni, á sama tíma og fyrirtækið keypti einnig af Byggðastofnun. Byggða- stofnun hafði hins vegar heimild til uppgreiðslu fyrr en áætlað var en Kauphöllin . - aöe Héraðsdómur Reykjavíkur: Kauphöllin sýknuð SPURNING DAGSINS Er höfuðborgarsvæðið að koma landsbyggðinni í ógöngur? Nei, en það mætti sýna aðstæðum okkar meiri skilning. Launahækkanir starfsmanna sveitarfélaga kosta sveitarfélögin í landinu 3,6 milljarða á þessu ári. Halldór segir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu bera ábyrgð á erfiðum rekstrarskilyrðum sveitarfélaga. VARNARLIÐIÐ Miðstjórn Alþýðu- sambands Íslands lýsir þungum áhyggjum af atvinnuhorfum á Suðurnesjum, í kjölfar ákvörðun- ar bandarískra stjórnvalda um að draga stórlega úr umsvifum í her- stöðinni á Miðnesheiði. Miðstjórnin krefst þess að íslensk og bandarísk stjórnvöld leggi sitt af mörkum til þess að draga úr áhrifum þessara breyt- inga fyrir starfsfólkið og samfé- lagið í heild sinni á Reykjanesi. Hún segir einnig að það sé skylda bandarískra stjórnvalda að leggja sitt af mörkum til að skapa ný störf. -shá Alþýðusamband Íslands: Áhyggjur af at- vinnuhorfum DANMÖRK Ummæli múslimaprests- ins Ahmeds Akkaris um að réttast væri að sprengja þingmanninn Naser Khader í loft upp verði hann ráðherra innflytjendamála hafa vakið mikla reiði í Danmörku. Helstu stjórnmálaleiðtogar landsins hafa fordæmt ummælin og vilja að kannað verði hvort hægt sé að refsa Akkaris og jafnvel að vísa úr landi. Akkaris hefur beðist afsökunar á orðum sínum sem hann segir hafa verið sögð í gamni. Þá skýringu sættir formaður Jafnaðarmanna sig ekki við. Hún segir hann ekki geta ætlast til að litið sé á dauða- hótun sem brandara. Ekki frekar en hann sjálfur hafi séð húmorinn í Múhameðsteikningunum. Í yfirlýsingu á heimasíðu sinni í gær segist Naser Khader ekki ætla að fara í felur. Hann vilji hins vegar fá að eyða meiri tíma með fjöl- skyldu sinni og safna kröftum enda hafi hann verið undir miklu álagi síðustu mánuði. Khader hefur farið fyrir samtökum lýðræðissinnaðra múslima sem hafa gagnrýnt mál- flutning Akkaris og fleiri múslima- presta vegna Múhameðsteikning- anna. - ks NASER KHADER Danski þingmaður- inn hafði tvo lífverði með sér þegar hann gekk á fund forsætisráðherra Danmerkur í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Dauðahótun dansks múslimaprests: Mikil reiði í Danmörku GENGISÞRÓUN BANKANNA FRÁ ÁRAMÓTUM (ÁRAMÓTAGILDI - HÆSTA GILDI - LÆGSTA GILDI) Velgengni birtist í ýmsum myndum og á öllum sviðum mannlífsins. Hún kemur fram í smæstu hlutum og þeim stærstu. Ólíkir einstaklingar hafa mismunandi viðhorf til þess hvað skiptir mestu máli í lífinu. En öll viljum við njóta velgengni. Velgengni í fjármálum getur lagt grunninn að farsæld á öðrum sviðum og gert þér kleift að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Þá skiptir máli að hafa traustan og snjallan samstarfsaðila sem beitir öllum sínum hyggindum til að tryggja hag þinn. Samstarfsaðila á borð við Glitni. FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI VELGENGNI ER AÐ VITA HVAÐ SKIPTIR MÁLI Íslandsbanki og 7 dótturfyrirtæki og starfsstöðvar heima og erlendis hafa sameinast undir einu nafni – Glitnir. Samræmd ásýnd mun auðvelda okkur að skapa fleiri tækifæri fyrir viðskiptavini okkar. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 1. jan. 2006 1. jan. 2006 1. jan. 2006 24. mars 2006 24. mars 2006 24. mars 2006 1. feb. 2006 16. feb. 2006 15. feb. 2006 746 999 810 25,3 31,4 24,9 17,3 22,6 17,0 MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Mennta- málaráðherra kynnti frumvarp um breytingar á lögum um fram- haldsskóla á ríkisstjórnarfundi í gær. Í frumvarpinu, sem er tvíþætt, felst í fyrsta lagi boðuð ákvörðun um niðurfellingu á samræmdu stúdentsprófi í framhaldsskólum. Í öðru lagi er lagt til að bóknáms- brautunum verði fjölgað úr þrem- ur í fjórar til þess að það verði hægt að koma inn á ný viðskipta- og hagfræðideildum. - sdg Frumvarp um breytingar: Lög um fram- haldsskólana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.