Fréttablaðið - 25.03.2006, Side 4

Fréttablaðið - 25.03.2006, Side 4
4 25. mars 2006 LAUGARDAGUR �������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ �������������� �� ���������������������������������������������������������������� ������������� ��� ���������������� ������������� Frumflutningur á verkinu Brynjólfsmessa eftir Gunnar Þórðarson verður í Íþrótta- akademíunni í Keflavík í dag kl. 16 en ekki í Keflavíkurkirkju eins og sagt var í frétt blaðsins í fyrradag. LEIÐRÉTTING Bandaríkjadalur 73,3 73,64 Sterlingspund 127,01 127,63 Evra 87,7 88,2 Dönsk króna 11,754 11,822 Norsk króna 11,005 11,069 Sænsk króna 9,359 9,413 Japanskt jen 0,62 0,6236 SDR 105,12 105,74 GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 24.3.2006 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA Gengisvísitala krónunnar 122,9995 STÖÐUVEITING Ragnar Hall hæsta- réttarlögmaður segir álit umboðs- manns Alþingis áfellisdóm yfir ráðningu Árna Magnússonar, fyrr- um félagsmálaráðherra, á ráðu- neytisstjóra. Álitið sé mjög harðort enda ástæða til, því eins og standi í álitinu séu verulegir annmarkar á stjórnvaldsákvörðuninni. Væri Árni enn félagsmálaráðherra hefði álitið endanlega gert útslagið um að hann sæti áfram. Árni valdi Ragnhildi Arnljóts- dóttur fram yfir Helgu Jónsdóttur sem ráðuneytisstjóra fyrir tæpum tveimur árum, en í álitinu má lesa að starfsreynsla Ragnhildar og menntun sé ýkt og ekki sambæri- leg við menntun Helgu og reynslu af stjórnsýslu. Árni ritar í tölvupósti að rök- stuðningur hans vegna ráðningar- innar hafi verið ítarlegur og vand- aður og engu við hann að bæta. Ragnar undrast orð forsætis- ráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, úr hádegisfréttum Ríkisútvarpsins þar sem hann sagði að ráðning ráðuneytistjóra hlyti fyrst og fremst að vera í höndum ráðherra. Einnig sé ákvörðun Jóns Kristjáns- sonar um að bregðast ekki við álit- inu ámælisverð, en Jón tók við ráðuneytinu af Árna. „Þetta er algjört virðingarleysi fyrir reglun- um sem þeir hafa sjálfir sett og eiga sjálfir að fara eftir,“ segir Ragnar. „Ef menn taka álit umboðs- manns eins og þeir tala og hrista þau af sér eins og rigningarskúr er rétt eins gott að leggja embættið niður og afnema reglur, eins og stjórsýslulög, sem þeir eru búnir að setja sér og ætla að fara eftir.“ Hann segir bráðnauðsynlegt að einhver láti á það reyna hvort ráða- menn geti farið fram eins og þeim sýnist. Jón Kristjánsson félagsmála- ráðherra segir ákvörðun hans um að aðhafast ekki í málinu byggða á því að í álitinu standi að það hafi ekki áhrif á ráðningu Ragnhildar í embætti ráðuneytisstjóra. Hann hafi enga trú á öðru en menn taki mið af álitinu við næstu ráðningar. Helga Jónsdóttir, sviðstjóri hjá Reykjavíkurborg, segir að hún hafi ekki tekið ákvörðun um hvort hún fari með málið fyrir dómstóla. Spurð um orð Halldórs Ásgríms- sonar svarar Helga: „Ég vonast til þess að forsætisráðherra landsins þekki lög þess og átti sig á því, sem er skýrt í áliti umboðsmanns, að ráðherrar verða að fara að málefn- anlegum sjónarmiðum þegar þeir ráða. Regla stjórnsýsluréttar er að ráða á hæfasta umsækjandann.“ Ekki náðist í Árna Magnússon. gag@frettabladid.is RAGNAR HALL Hæstaréttarlögmaðurinn hefur ekki séð umboðsmann Alþingis taka svo djúpt í árinni í álitum sínum áður. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA JÓN FÆR LYKLA ÁRNA AÐ FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTINU Hæstaréttarlögmaður telur að hefði Árni ekki kosið að yfirgefa ráðuneytið til að vinna hjá Glitni hefði álit umboðsmanns að öllum líkindum orðið til þess að Árni hefði þurft að segja af sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ráðamenn virða ekki eigin reglur Ragnar Hall lögmaður vill leggja embætti umboðsmanns Alþingis niður ætli ráðamenn ekki að virða úrskurði þess. Virðingarleysi ráðamanna fyrir eigin reglum sé algjört. Helga Jónsdóttir hefur ekki ákveðið hvort málið fer í dóm. ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi um hvort samræma þurfi lög um hlutafélög, skattalög og lög um ársreikninga í ljósi niðurstöðu héraðsdóms í Baugsmálinu og hvort skrá eigi öll lán fyrirtækja í ársreikninga eins og sérfræðing- ar hafa haldið fram opinberlega. Einnig spyr hún ráðherra hvort hann sé sammála þeim sem haldið hafi fram að mistök hafi orðið við innleiðingu félagatilskipunar Evr- ópusambandsins um framsetn- ingu ársreikninga og hvort ráð- herra telji að breyta þurfi ársreikningalögum til að skýrt liggi fyrir hvað séu lán í skilningi laganna. - sdg Fyrirspurn á Alþingi: Lán stjórnenda fyrirtækja JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR ALÞINGIS- MAÐUR Lagði fram fyrirspurn á miðviku- dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LANDHELGISGÆSLA Björn Bjarnason dómsmálaráðherra greindi ríkis- stjórn frá því í gær hvernig staðið yrði að undirbúningi til að efla þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Björn telur óhjákvæmilegt að leysa verkefnið í tveimur áföngum vegna þeirra tímamarka sem blasi við eftir að Bandaríkjastjórn ákvað að kalla þyrlusveit sína frá landinu fyrir lok september. Í fyrsta áfanga verða þyrlur teknar á leigu til bráðabirgða og náið samstarf haft við nágranna- þjóðir. Með nágrannaþjóðum er átt við þær Evrópuþjóðir sem eru hér við Norður-Atlantshaf og þá sérstaklega Dani sem hafa starfað náið með Landhelgisgæslu Íslands um árabil. Í öðrum áfanga sem er ætlaður til langframa er reiknað með kaupum eða leigu á nýjum þyrlum. Ráðherra hefur falið Stefáni Eiríkssyni, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, að leiða þetta starf á vegum ráðu- neytisins í samráði við Georg Lár- usson, forstjóra Landhelgisgæslu Íslands, og samstarfsmenn hans. Leifur Magnússon verkfræðingur verður ráðgjafi um þá þætti sem lúta að vali á þyrlum og í viðræð- um við innlenda og erlenda aðila. Stefnt er að því að tillögur um bráðabirgðalausn liggi fyrir innan þriggja vikna og tillögur um fram- tíðarskipulag innan tveggja mán- aða. - sdg ÞYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR TF-SIF Í dag hefur Landhelgisgæslan tvær þyrlur til umráða, TF-SIF og TF-LÍF. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Dómsmálaráðherra kynnir hvernig efla á þyrlusveit Landhelgisgæslunnar: Nánara samstarf við Dani VARNARLIÐIÐ Heitavatnskaup Varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli af Hitaveitu Suðurnesja nema 570 milljónum króna á þessu ári að öllu óbreyttu. Júlíus Jónsson, forstjóri Hita- veitunnar, segir að kaupin hafi minnkað um fjögur prósent á ári síðustu þrjú til fjögur árin eins og heimilt er samkvæmt samningi. Farið hafi verið yfir stöðuna á stjórnarfundi nýlega en engar ákvarðanir teknar. Varnarliðið getur samkvæmt samningi ekki hætt skyndilega að kaupa heitt vatn en það kaupir nú tæplega 13 þúsund mínútulítra á ári. - ghs Hitaveita Suðurnesja: Kaupin nema 600 milljónum Sala á landa stöðvuð Eftir ábend- ingu lagði lögreglan í Reykjavík hald á rúma hundrað lítra af tilbúnum landa auk tækja og tóla til framleiðslu við húsleit í höfuðborginni í fyrrinótt. Minniháttar fíkniefnamál Nokkur minniháttar fíkniefnamál komu upp hjá lögreglunni í Reykjavík í fyrrinótt. Í öllum tilfellum var aðeins um örlítið magn af hassi að ræða og var brotamönnum sleppt eftir yfirheyrslur. LÖGREGLUFRÉTTIR LÓÐAÚTHLUTUN Framkvæmdasvið borgarinnar býst við að ljúka samningum um byggingarrétt lóð- anna 120, sem boðnar voru út í fyrsta byggingaráfanga við Úlf- arsfell, fyrir páska. Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri framkvæmdasviðs borgarinnar, segir mestan tíma taka að ganga frá samningum um parhúsa og einbýlishúsalóðirnar þar sem ekki sé gengið að hæstu tilboðum í hverja lóð. Er það til að koma í veg fyrir að sömu mennirnir byggi öll húsin. Ágúst segir langt komið að fá staðfestingu á tilboðunum í lóð- irnar en einhverjir eigi eftir að skila inn viðbótargögnum. - gag Lóðasamningar við Úlfarsfell: Úthlutun lokið fyrir páska UPPBYGGING VIÐ ÚLFARSFELL Hluti fyrsta áfanga af fimm hefur verið boðinn út. FLUGÖRYGGI Breiðþotu af tegund- inni DC 10 frá flugfélaginu North Western var snúið til lendingar á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi vegna þess að viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri í farangurs- rými. Vélin var að koma frá Amster- dam á leiðinni til Bandaríkjanna með 275 farþega um borð. Engar sérstakar varúðarráðstafanir voru gerðar á Keflavíkurflugvelli þar sem flugstjóri þotunnar taldi ekki ástæðu til þess. Flugvélin var tekin til ítarlegrar skoðunar í gærkvöldi en hún átti að halda áfram för sinni að henni lokinni. -shá Keflavíkurflugvöllur: Þotu snúið til lendingar hér

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.