Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 8
 25. mars 2006 LAUGARDAGUR Fermingarbarn’67 edda.is Fermingargjafir sem vit er í „Pabbi og mamma gáfu mér skáta- tjald í fermingargjöf sem var seinna stolið frá mér í Húsafelli. En íslensku orðabókina sem ég fékk frá Gillu frænku á ég ennþá og hef notað áratugum saman.“ Tilboðsverð 3.990 kr. Tilboðsverð 3.490 kr. Tilboðsverð 3.490 kr. Tilboðsverð 6.990 kr. Verð 3.990 kr. Tilboðsverð 14.980 kr. NISSAN PATROL Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 Rúmgóður og áreiðanlegur vinnuþjarkur sem hefur sýnt og sannað að hann á heima á Íslandi. Nissan Patrol er einfaldlega alvöru jeppi fyrir alvöru fólk! Líttu inn og sjáðu alvöru jeppa! Verðið á Nissan Patrol er frá 4.170.000 kr. ENDIST ENDALAUST E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 6 4 7 STJÓRNSÝSLA Karlmenn eru í meiri- hluta í nefndum, starfshópum, stjórnum og ráðum sem eru skipuð af ráðuneytunum og eru hlutföllin 60 prósent karlmanna á móti 40 prósentum kvenna. Þetta kemur fram í svari for- sætisráðherra við fyrirspurn Katr- ínar Júlíusdóttur alþingiskonu um nefndarskipan og kynjahlutföll hjá ráðuneytunum. Í svarinu koma fram tölur frá hverju ráðuneyti fyrir sig og voru karlmenn í meirihluta í öllum ráðu- neytum nema í félagsmálaráðu- neytinu þar sem þeir voru 45 pró- sent. Í þremur ráðuneytum var hlutfall karlmanna 80 prósent eða meira en ráðuneytin eru ellefu talsins. Félagsmálaráðuneytið hefur umsjón með framkvæmd jafnrétt- islaga og í 20. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla kemur fram að í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ríkis og sveitarfélaga skulu, þar sem því verður við komið, sitja sem næst jafnmargar konur og karlar. Skal ávallt minnt á það þegar óskað er tilnefningar í hlutaðeigandi nefnd- ir, ráð og stjórnir. Niðurstöðurnar sem koma fram í svari forsætis- ráðherra munu verða teknar fyrir í félagsmálaráðuneytinu að sögn starfsmanns ráðuneytisins. - sdg ALÞINGI Ójöfn kynjaskipting er í nefndum og starfshópum ráðuneyta að því er kom fram í svari forsætisráðherra á þingfundi á miðvikudag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kynjaskipting í nefndum og starfshópum á vegum ráðuneytanna: Karlmenn eru í meirihluta DÓMSMÁL Maður sem var dæmdur í héraði í fjögurra mánaða fangelsi var í gær sýknaður í Hæstarétti af ákæru um að hafa féflett 82 ára gamlan mann. Dómarar telja ósannað að mað- urinn, sem var nýkominn úr við- skiptanámi og þekkti gamla mann- inn lítið, hafi átt að gera sér grein fyrir því að sá hefði skerta hæfni vegna elliglapa og áfengis- drykkju. Þar af leiðir að hann gat ekki séð að sá gamli væri ekki hæfur til að veita leyfi fyrir um þriggja og hálfrar milljónar króna veði í húsi sínu í miðborg Reykjavíkur til að leggja inn í fyrirtæki vinar við- skiptafræðingsins og til að greiða skuldir sínar. Viðskiptafræðingurinn tók 350 þúsund króna þóknun af viðskipt- unum og bjó endurgjaldslaust í húsi gamla mannsins í eitt og hálft ár. Hann neitaði að hafa notfært sér ástand mannsins. Hann hélt því fram að gamli maðurinn hefði beðið sig um að annast fjármál sín, sem komin hafi verið í ólestur. Sonur mannsins kærði við- skiptafræðinginn í janúarlok 2003. - gag ÚR HÆSTARÉTTI Ekki sannaðist fyrir Hæstarétti að viðskiptafræðingur, sem fékk 82 ára gamlan mann til að samþykkja 3,5 milljóna króna veð í húsi sínu, hefði átt að vita að maðurinn gæti ekki tekið slíkar Sýknaður í Hæstarétti af því að féfletta gamlan mann: Gat ekki gert sér grein fyrir elliglöpum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.