Fréttablaðið - 25.03.2006, Side 12
25. mars 2006 LAUGARDAGUR12
Umsjón: nánar á visir.is
Forsvarsmenn Actavis stefna
enn ótrauðir að yfirtöku króat-
íska samheitalyfjafyrirtækis-
ins PLIVA en óformlegt tilboð
um kaup á öllum hlutum fyrir-
tækisins var lagt fram í síð-
ustu viku. Stjórnendur PLIVA
hafa sagt tilboðið of lágt og
króatísk stjórnvöld hafa jafn-
framt gefið út að þau muni
ekki selja Actavis um 15 pró-
senta hlut sinn. Að sögn Hall-
dórs Kristjánssonar, upplýs-
ingafulltrúa Actavis, hafa
hvorki stjórnendur fyrirtæk-
isins né stjórnvöld hafnað við-
ræðum við Actavis. Fundað
verði með báðum aðilum og tillögur kynnt-
ar, þá fyrst sé að marka viðbrögðin. Actavis
hefur að Halldórs sögn skýra hugmynd um
hvernig megi styrkja starfsemina þar í
landi með sameiningunni.
Meðal annars verði áhersla
lögð á að höfuðstöðvarnar
verði áfram þar í landi, fram-
leiðsla og þróun styrkt og
störfum líklega fjölgað.
Halldór segir tilboðið ekki
standa og falla með samþykki
stjórnvalda. „Það er ekki
nauðsynlegt að stjórnvöld
selji okkur sinn hlut til að
yfirtaka geti orðið. Við þurf-
um að kaupa tvo þriðju í
félaginu til að fara með yfir-
ráð.“ Hann segir Actavis þó
vilja vera í góðu sambandi
við stjórnvöld og ekki sé
ástæða til annars. „Actavis er stórt og öfl-
ugt félag á króatískan mælikvarða og yfir-
takan myndi hafa mjög jákvæð áhrif á efna-
hagslífið þarna.“ - hhs
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.819 -4,43% Fjöldi viðskipta: 1.394
Velta: 10.889 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 59,00 -1,01% ... Alfesca
3,90 -2,50%... Atorka 6,15 -0,81% ... Bakkavör 52,40 -1,87% ...
Dagsbrún 6,96 +0,14% ... FL Group 21,00 -6,67% ... Flaga 3,17
-1,25% ... Glitnir 17,00 -2,86% ... KB banki 810,00 -7,53% ... Kögun
74,90 -0,13% ... Landsbankinn 24,90 -4,96% ... Marel 73,00
-2,67% ... Mosaic Fashions 17,20 -2,27% ... Straumur-Burðarás
16,90 -1,17% ... Össur 112,50 -0,88%
MESTA HÆKKUN
Avion Group 0,97%
Dagsbrún 0,14%
MESTA LÆKKUN
KB banki -7,53%
FL Group -6,67%
Landsbankinn -4,96%
Drykkjarjógúrt
– fljótleg máltíð
í flösku
Sími 517 7040 • www.hobbyhusid.is Netsalan ehf
Hobbyhúsið
opnar að Dugguvogi 12
Mest seldu
hjólhýsi í heimi
Gæði - þjónusta
Sölusýning
laugardag kl. 13-17
sunnudag kl. 13-17
Virka daga kl. 10-18
Gullna stýrið 2005
Björgólfur Jóhannsson
hefur tekið við starfi for-
stjóra hjá Icelandic
Group en hann hefur
gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra viðskipta-
þróunar hjá Icelandic.
Þar áður var Björgólfur
forstjóri Síldarvinnslunn-
ar.
Hann sagði að Iceland-
ic, sem skilaði 1,1 millj-
arðs tapi á síðasta ári,
hefði sett sér markmið um vöxt á
næstu þremur árum, fimm pró-
senta innri vöxt og 3-10 prósenta
ytri vöxt. Félagið hefur í því sam-
bandi greint frá kaupum á fyrir-
tæki í Seattle í Bandaríkjunum
sem er sérhæft í inn-
kaupum á hráefni á því
svæði. Stefnt er að því að
velta samstæðunnar
verði 120 milljarðar á
þessu ári en 160 milljarð-
ar árið 2008.
Í máli Gunnlaugs Sæv-
ars Gunnlaugsson stjórn-
arformanns á aðalfundi
félagsins kom fram að
hreinsað hefði verið til í
rekstri dótturfélaga og
boðað sé stórhert eftirlit með þeim.
„Lítið aðhald og eftirlitsleysi hefur
einkennt reksturinn á sumum stöð-
um,“ segir Gunnlaugur. Nú er tími
til kominn að bretta upp ermar
með nýjum stjórnendum. - eþa
BJÖRGÓLFUR
JÓHANNSSON
Björgólfur nýr
forstjóri Icelandic
Dagsbrún hefur gert yfirtökutil-
boð í breska prent- og samskipta-
fyrirtækið Wyndeham Press
Group, sem er skráð í kauphöllina
í Lundúnum, og nemur verðmæti
yfirtökunnar 80,6 milljónum
punda eða tíu milljörðum króna.
Það er dótturfélag Dagsbrúnar,
Daybreak, sem stendur að yfirtök-
unni með aðstoð Landsbankans og
Teather & Greenwood.
Stjórn Wyndeham hefur lagt
blessun sína yfir tilboðið sem hljóð-
ar upp á 155 pens á hvern hlut. Í
gærmorgun höfðu eigendur um 20
prósent hlutafjár gefið samþykki
sitt fyrir kaupunum en tilboðið
hljóðar upp á 1,55 pund á hvern
hlut sem 21 prósent yfirverð frá
lokagengi á miðvikudaginn.
Wyndeham er eitt af stærstu
prentfyrirtækjunum á Bretlands-
eyjum, prentar yfir 600 tímarit í
hverjum mánuði og býður upp á
víðtækar lausnir fyrir útgefendur
og auglýsendur á sviði prentunar.
Félagið velti yfir 17,5 milljörðum
króna á síðasta reikningsári og
skilaði um 700 milljóna króna
hagnaði fyrir skatta.
„Þetta félag er á góðu verði og
hefur mikla vaxtarmöguleika.
Félagið er í rekstri sem er okkur
ekki ókunnugur og það hefur
reynst okkur vel að vera í prentun
og dreifingu á sama tíma og við
höfum verið í fjölmiðlum,“ segir
Gunnar Smári Egilsson, forstjóri
Dagsbrúnar.
Wyndeham hefur byggst upp í
gegnum fjölmörg fyrirtækjakaup
og samruna á liðnum árum. „Við
sjáum tækifæri annars vegar að
láta þetta fyrirtæki vaxa eitt og
sér, vegna stærðar þess, og hins
vegar að það opnist möguleikar
fyrir aðra þætti í starfsemi Dags-
brúnar.“
Hann segir að þessi kaup breyti
engu um vaxtaráform félagsins á
Norðurlöndunum. Deutsche Bank,
sem hefur Orkla Media til sölu,
opnar bækur fjölmiðlafélagsins í
næstu viku og þá munu forsvars-
menn Dagsbrúnar ákveða í fram-
haldi af því hvort fyrirtækið taki
þátt í tilboðsferlinu. Þá hefur félag-
ið stofnað dótturfélag í Danmörku
sem vinnur að stofnun fríblaðs.
Frá áramótum hefur Dagsbrún
fjárfest grimmt innan- sem utan-
lands. Félagið festi kaup á Securit-
as í janúar fyrir um 3,2 milljarða,
á Senu fyrir 3,6 milljarða og stefn-
ir að yfirtöku á Kögun eftir að hafa
greitt 7,2 milljarða fyrir 51 pró-
sents hlut í þessari viku. Gangi
yfirtakan á Kögun og Wyndeham
eftir hefur Dagsbrún fjárfest fyrir
31 milljarð á árinu.
eggert@frettabladid.is
GUNNAR SMÁRI EGILSSON, FORSTJÓRI
DAGSBRÚNAR Dagsbrún hefur gert tilboð í
öll hlutabréf í breska fyrirtækið Wyndeham
Press Group fyrir tíu milljarða króna.
Dagsbrún vill
Wyndeham
Stjórnendur Dagsbrúnar líta á Wyndeham sem
stökkpall inn á breska markaðinn. Dagsbrún hefur
enn augastað á Orkla Media.
FJÁRFESTINGAR DAGSBRÚNAR
Frá áramótum, í milljónum króna.
Félag Kaupverð
Kögun 14.475 *
Wyndeham Press 10.034 *
Sena 3.600 **
Securitas 3.159 **
31.268
* Miðað við að Dagsbrún eignist félagið að fullu
** Miðað við að gengi Dagsbrúnar fari í 7,5 á
árinu en greitt var að hluta eða öllu leyti með
hlutabréfum í Dagsbrún.
RÓBERT WESSMAN, FORSTJÓRI
ACTAVIS Stjórnendur Actavis kynna
tillögur sínar fyrir stjórnendum
PLIVA á næstu dögum.
Stefna ótrauðir að yfirtöku PLIVA MARKAÐSPUNKTAR...
Bakkavör Group hefur keypt 40 prósent
hlutafjár í kínverska salatfyrirtækinu
Creative Foods í samstarfi við Glitni.
Bakkavör Asia, dótturfélag Bakkavarar
Group, og Glitnir hafa stofnað nýtt félag,
Bakkavör China, í tilefni af kaupunum.
Bakkavör Group á 60 prósent hlutafjár í
félaginu og Glitnir 40 prósent.
Actavis hf., Bakkavör Group hf., Kaup-
þing banki hf., Kögun hf. og Straumur-
Burðarás fjárfestingabanki hf. komust
inn í nýju VINX-viðmiðunarvísitölu
NOREX-kauphallanna í Reykjavík, Osló,
Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Hels-
inki sem mun að jafnaði samanstanda
af 150 til 200 félögum.