Fréttablaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 18
25. mars 2006 LAUGARDAGUR
?
FLÚÐI EINELTIÐ
Í ÓLAFSVÍK
Lausnin
fólst í
tárunum
Guðlaug Káradóttir á að baki
ótrúlega lífssögu. Þrjú systkini
hennar létust af slysförum og
þrítugur eiginmaður hennar
fórst í hinu hörmulega sjóslysi
í Hornafjarðarósi.
SKJÖLDUR
helgar augl 24.3.2006 14:15 Page 3
Um fátt hefur verið rætt meira
síðustu daga en Andra Snæ
Magnason og nýútkomna bók hans
Draumalandið - sjálfshjálparbók
handa hræddri þjóð, þar sem hann
beitir frumlegri nálgun á samtíma
sinn og umhverfi og setur í nýtt
samhengi.
Andri er fædd-
ur í Reykjavík,
sonur Kristínar
Björnsdóttur
hjúkrunar-
fræðings og
Magna Sigurjóns
Jónssonar lækn-
is, og á tvö syst-
kin. Fjölskyldan
flutti til Banda-
ríkjanna þegar
Andri var þriggja
ára og bjó þar
næstu sex árin.
Að öðru leyti er
hann alinn upp í
póstnúmeri 110 í
Reykjavík. Andri
hefur ávallt verið
frjór og skapandi
að sögn þeirra
sem til þekkja.
Sem dæmi má
nefna að fimm
ára gamall fór
hann á náttúru-
gripasafn í
Bandaríkjunum
og sá þar meðal
annars beina-
grind af risaeðlu
og benti foreldr-
um sínum á að
það vantaði einn
hryggjarlið í
hálsinn. Þá hafði
hann mikla
ánægju af því að
byggja hluti og
voru legókubbar
í miklu uppáhaldi
hjá honum.
Upp úr tíu
ára aldri byrj-
aði Andri að
yrkja og gaf oft
litlar ljóðabæk-
ur í jólagjöf sem
hann hafði brot-
ið um og bundið
inn sjálfur.
Andri útskrifað-
ist af eðlisfræði-
braut úr
Menntaskólan-
um við Sund en
lengi framan af
var búist við að hann myndi
annað hvort nema raunvísindi
eða feta í fótspor foreldra sinna
í háskóla. Hann gerði reyndar
máttlausa tilraun til að læra
læknisfræði en snerist fljótt
hugur og skráði sig í íslensku og
útskrifaðist með BA-próf árið
1997. Foreldrum Andra þykir
það víst bót í máli að þótt hann
hafi ekki gengið í heilbrigðis-
stéttina sjálfur er konan hans,
Margrét Sjöfn Thorp, hjúkrun-
arfræðingur. Saman eiga þau
þrjú börn; Hlyn Snæ, Kristínu
Lovísu og Elínu Freyju.
Samdóma álit þeirra sem
þekkja Andra er að hann sé flug-
greindur, einstaklega frjór, skap-
andi og mikil tilfinningavera, ljúf-
menni og náttúrubarn. Spurðir
um galla rak alla í rogastans.
Hann getur átt til að klökkna yfir
því sem honum þykir fallegt og
kemst jafnan á mikið flug þegar
hann talar um það sem skiptir
hann máli. Hann er þó alls enginn
skýjaglópur; einn vinur hans
komst svo að orði að Andri væri
með fæturna á jörðinni en fing-
urna í himninum. Hann þykir
traustur vinur og á auðvelt með
að drífa aðra
áfram. Hann
hefur haft skrift-
ir að aðalstarfi
frá árinu 1996;
til að byrja með
gaf hann út ljóða-
bækur og smá-
sögur sem vöktu
athygli auk þess
sem hann samdi
leikritið Náttúru-
óperuna fyrir
leikfélag Mennt-
askólans við
Hamrahlíð en úr
þeirri sýningu
spratt meðal
annars hljóm-
sveitin múm.
Hann stimplaði
sig rækilega inn
árið 1999 með
barnabókinni
Sögunni af bláa
hnettinum sem
hlaut meðal ann-
ars Íslensku bók-
menntaverð-
launin og hefur
verið gefin út
víða erlendis.
Tveimur árum
síðar kom út
bókin Lovestar
sem hlaut góða
viðtökur almenn-
ings og gagnrýn-
enda og var til-
nefnd til Íslensku
bókmenntaverð-
launanna.
Aldrei þarf að
kreista hug-
myndir úr Andra
Snæ og býr hann
yfir þeirri náð-
argáfu að nálg-
ast hversdaglega
hluti á frumleg-
an hátt. Um leið
getur verið erf-
itt að beisla hug-
myndaflóðið og
að setja punkt-
inn. Þetta er
vandi sem getur
tekið útgefendur
á taugum, en bliknar víst í saman-
burði við kostina, því betra er að
vinna með þeim sem hefur of
margar hugmyndir en of fáar.
Hann er sífellt að velta samtíma
sínum fyrir sér og hefur puttann
iðulega á púlsinum, eins og sann-
ast í Draumalandinu.
MAÐUR VIKUNNAR
Skapandi og
tilfinningaríkur
ANDRI SNÆR MAGNASON
RITHÖFUNDUR
550 5000
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið