Fréttablaðið - 25.03.2006, Side 52
25. mars 2006 LAUGARDAGUR52
utlit@frettabladid.is
Það er ekki hægt annað en að kætast ógurlega þegar þuklað er á nýjustu línu Stellu McCartney, en línan er seld í Adidas Concept store í Kringlunni. Litapallettan er lífleg með heið- gulum
litum, milligrænum, hvítu, kóral-
bleiku og gráu. Það koma nokkr-
ar línur í vor- og sumarlínunni
og eru þær stílaðar inn á
dömulegar íþróttir eins og
tennis, leikfimi, hlaup og
sund. Þótt línan sé kvenleg
þá eru þægindin í fyrirrúmi
og Stella tekur tillit til þess að
það vilja ekki allar konur vera í
níðþröngu. Sniðin eru unnin af
mikilli kunnáttu, rykkt hér og
þar, alltaf þó á réttum stöðum
sem gerir það að verkum að
flíkurnar fúnkera vel, sama
hvort þú notar föt númer 36
eða 42. Stærðirnar eru venju-
legar og frekar í stærra lagi
ef það er eitthvað.
Ef Stellu McCartney-
línan hvetur ekki til hreyf-
ingar, þá veit ég ekki hvað.
martamaria@frettabladid.is
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN
Litrík Stella...
Spáir þú mikið í tískuna?
Nei, ég spái nánast ekkert í
tísku nema þá helst fræðilega.
Það að hægt sé að selja fólki
þá hugmynd að bleikt hafi jú
verið mjög töff í gær en í dag
sé ljósgrænt algjörlega málið
finnst mér mjög áhugavert.
Ég spái hins vegar töluvert
í fötum því það er auðvitað
mjög mikilvægt að vera töff.
Hvernig myndirðu lýsa stíln-
um þínum? Bara mjög töff.
Uppáhaldshönnuðir eða
fatamerki? Ég er mjög hrifin
af Eygló, Hörpu, Ása og Jóni
Sæmundi. Þau eru mjög töff.
Flottustu litirnir? Svart því
svart er töff.
Hverju ertu veikust fyrir?
Glitrandi og töff hlutum.
Hvaða flík keyptir þú þér
síðast? Köflóttan eldgamlan
sundbol. Hann er mjög töff.
Hvað finnst þér flottast í
tískunni núna? Dúskar eru að
koma sterkir inn hjá mér.
Hvað ætlarðu að kaupa þér
fyrir sumarið? Sólgleraugu.
Sólgleraugu eru mjög töff.
Uppáhaldsverslun? Kolaport-
ið. Fyrir utan lyktina, hún er
ekki mjög töff.
Hvað eyðir þú miklum pen-
ingum í föt á mánuði? Svona
100 til 200 þúsund. Það kost-
ar bara sitt að vera töff.
Hvaða flíkur gætir þú ekki
verið án? Pallíettufiðrildanna
minna. Þau eru kannski ekkert
svo töff en þau glitra mikið,
sem er mjög gott.
Uppáhaldsflík? Nýi sundbol-
urinn minn, því hann
er töff.
Hvert myndir þú
fara í versl-
unarferð? Í
Smáralind. Mér
finnst hún svo
töff í laginu.
Ljótasta flík sem þú
hefur keypt þér? Ég
kaupi bara töff föt. Ég held
að niðurþröngu snjóþvegnu
gallabuxurnar mínar sem
eru útvíðar á rassinum séu
samt toppurinn. Þær eru
rosalega töff.
SMEKKURINN JARÞRÚÐUR KARLSDÓTTIR TÓNLISTARKONA
Mikilvægt að vera töff
> Silkimjúk húð
...Hydramax-dagkremið frá
Chanel er fyrirtak fyrir allar
konur sem kjósa það besta.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Það fer alltaf jafn mikið í taugarnar á mér þegar talað er um smart-
heit í sömu setningu og fjárhagur er nefndur. Margar konur halda
það nefnilega að það sé ekki hægt að vera huggulegur til fara nema
eyða morðfjár hvern mánuð í föt. Ég er algerlega ósammála þessu
því ég held að smartheit hafi ekkert með peninga að gera, þótt þeir
auðveldi manni að sjálfsögðu að lifa.
Smartheit eru eitthvað sem fólk hefur í blóðinu. Smartheit ganga
líka í erfðir, flottar ömmur eiga yfirleitt barnabörn sem eru vel til
fara þótt smekkurinn sé kannski ekki alveg sá sami. Ég þekki svo
ógurlega margar konur sem eru alltaf svo fallega klæddar en samt
virðast þær aldrei kaupa sér neitt. En kannski er það líka vegna þess
að þær flagga því sjaldnast þegar þær fjárfesta í einhverju. Þessar
sömu konur geta þó eytt nokkrum fjárhæðum þegar þær fara til
útlanda. Þá fara þær inn í rándýrar merkjavöruverslanir og stelast
til að kaupa sér töskur eða skó til að poppa heildarmyndina upp.
Til að vera smart án þess að eyða fúlgum fjár er grundvallarregla
að vita hvað klæðir mann. Sumar konur eru elegant í rúllukraga-
peysum meðan aðrar líta út eins og fílahjörð á slæmum degi...
Svo dæmi sé tekið þá hefur mitt „fatalíf“ breyst mjög mikið á síð-
ustu árum. Um leið og ég flutti að heiman kom yfir mig mikið fata-
brjálæði. Það spilar kannski inn í að ég vann í tískuvöruverslun og
gat skrifað á mig næstum því ótakmarkað af fötum.
Svo rann sá dagur upp að ég hætti að nenna þessu. Það er ekkert
fengið með því að vera með troðfulla fataskápa og vera „ógurlega
smart“ en hafa ekki efni á neinu öðru. Maður er líka löngu búinn að
skrá sig úr smartfatakeppninni. Þegar öllu er á botninn hvolft þá
snýst lífið um svo margt annað en endalaus föt. Eftir því sem maður
verður eldri verða kröfurnar meiri og eftir því sem maður á meira af
fötum í fataskápnum því erfiðara er að bæta einhverju við. Eina
markmiðið verður því að éta ekki yfir sig svo maður geti notað gömlu
fötin áfram.
Smartheitakeppnin ógurlega!