Fréttablaðið - 25.03.2006, Síða 54
25. mars 2006 LAUGARDAGUR54
Grátt Eins þunglyndislega og
það hljómar þá er varla hægt að
segja annað en að grár hafi verið
litur þessara tískuvikna enda var
hann afar áberandi
í mörgum sýning-
um. Það besta við
hann er þó að það
er hægt að para
hann við nánast
hvaða lit sem er.
Það er óþarfi að
klæðast öllu gráu
og skemmtilegt að
hrista upp í gráu
flíkunum með til
dæmis rauðum
fylgihlutum.
Víðar buxur Fólk fer senni-
lega fljótlega að verða
þreytt á niður- og níðþröngu
buxunum sem hafa verið í
tísku að undanförnu og því
frábært að sjá víðar buxur
á tískupöllunum. Víðu bux-
urnar passa líka vel inn í
tíunda áratugs fílinginn sem
virðist vera að brjótast upp
á yfirborðið aftur þó svo að
krumputeygjurnar fylgi ekk-
ert endilega með.
TÍSKUSTRAUMAR AÐ UTAN
Svartar sokkabuxur Þykkar, svart-
ar sokkabuxur voru sýndar í nán-
ast öllum sýningum á tískuvikun-
um. Oftast voru þær þá paraðar
við stuttan babydoll kjól eða kápu.
Þetta er frekar
óljóst trend, afar
nýtilegt sem og
ódýrt og ekki ein
af bólunum sem
springur eftir
þrjá mánuði. Á
meðal hönnuða
sem sýndu mikið
af svörtum sokka-
buxum voru Iisli,
A q u a s c u t u m ,
Luella Bartley,
og Burberry.
Pokalegt Eitt skemmtilegasta
trendið og ágætis tilbreyting frá
þröngum litlum jökkum og pencil-
pilsum sem hafa verið áberandi
hingað til. Þetta eru frjálslegar
og þægilegar flíkur sem þrengja
hvergi að. Það ætti að vera auð-
velt að passa inn í stílinn með því
að kaupa sér eilítið of stórar flík-
ur næst þegar skroppið er í búðir.
Fjölmargir sýndu þessi pokalegu
áhrif og meðal annars Marc Jac-
obs, Marni, Iisli, Balenciaga og
Stella McCartney en þessi víði og
þægilegi stíll hefur reyndar lengi
einkennt hönnun hennar.
Stóru tískuvikurnar í New York, París, Mílanó og London eru
nú yfirstaðnar og því við hæfi að líta yfir mest áberandi trendin
sem þar sáust. Borghildur Gunnarsdóttir kafaði í málið.
MIGUEL PALACIO
LUELLA BARTLEY
CELINEMARC JACOBS
AQUASCUTUM
IISLI
VERA WANG
MARNI
VIVIENNE WESTWOOD
MARNI
LOUIS VUITTONIISLI
VIKTOR & ROLF
MARC BY
MARC JACOBS CHLOÉ
LUELLA
BARTLEYAQUASCUTUM
COMME DES GARCONS