Fréttablaðið - 25.03.2006, Side 62
25. mars 2006 LAUGARDAGUR62
NÚNA BÚIÐ
opið alla laugardaga 10-14
TÚNFISKUR
SKÖTUSELUR
ÞORSKHNAKKAR
HÖRPUSKEL
ZAPPA
PLAYS
ZAPPA
miðasala 2. apríl
www.rr.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
F jórða hljóðversplata rokksveitarinnar
Jet Black Joe er
væntanleg í lok
apríl. Platan,
sem heitir Full
Circle, er fyrsta
hljóðversplata
sveitarinnar í
heil 12 ár eða
síðan Fuzz
kom út 1994.
Margir urðu
svekktir þegar
Jet Black Joe
hætti á sínum tíma eftir að söngvarinn
Páll Rósinkranz frelsaðist frá villtu rokk-
líferni. Sveitin var afar dáð og lýsti Páll
Óskar Hjálmstýsson því m.a. yfir í Idol á
dögunum að hann hefði aldrei skilið af
hverju hún sló ekki í gegn erlendis. LÁRÉTT
2 teikning af ferli 6 klaki 8 rá 9 for-
skeyti 11 skóli 12 teygjudýr 14 hani
16 nafnorð 17 forskeyti 18 tunnu
20 2 eins 21 veikja.
LÓÐRÉTT
1 hækka 3 í röð 4 dagatal 5 óðagot
7 skemmtun 10 sjór 13 krá 15 æfa
16 til sauma 19 kringum.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT: 2 graf, 6 ís, 8 slá, 9 sam,
11 mr, 12 amaba, 14 krani, 16 no,
17 rað, 18 ámu, 20 kk, 21 lama.
LÓÐRÉTT: 1 rísa, 3 rs, 4 almanak,
5 fár, 7 samkoma, 10 mar, 13 bar,
15 iðka, 16 nál, 19 um.
Reyklausir
veitingastaðir.
Þetta er það
sem koma skal,
venjist því á
stöðum eins
og B5.
Kynlífsleik-
föng. Þetta er
orðið rosalega þreytt og
ósexí. Prufið hvort annað í
staðinn.
Hárlengingar. Æ
þetta má fara ofan
í niðurfallið ásamt
appelsínugulunni og
Victoriu Beckham.
Strik út fyrir varir.
Þetta er svo búið að það ætti
að vera á safni.
Svalir Danir. Rokk-
ararnir í Raveon-
ettes vita hvað
Nordic kúl þýðir.
Snjór. Nú er
snjórinn að hverfa
og því um að gera
að nýta alla mögu-
leika til að skella
sér á skíði. Það
verður ekki hægt
aftur í bráð.
HRÓSIÐ
...fær María Kristjánsdóttir sem
stóð fyrir því að safna ýmsu dóti,
senda það með skipi til Namibíu
og gefa þeim sem meiri þörf hafa á.
Sigurskáldið 2006, ljóðakeppni
Eddu útgáfu og Fréttablaðsins, er
í fullum gangi. Ljóð ungskálda
hafa borist jafnt og þétt en nú
þegar hafa um 30 skáld sent ljóð
sín á netfangið ljod@edda.is.
„Þetta hefur farið vel af stað en
við viljum að sjálfsögðu sjá miklu
fleiri ljóð,“ segir Kristján B. Jón-
asson sem situr í dómnefnd keppn-
innar ásamt tónlistarkonunni
Ragnheiði Eiríksdótur og Þórarni
Þórarinssyni blaðamanni.
„Skilafresturinn rennur út
fimmta apríl þannig að það er enn
ein og hálf vika til stefnu og því
um að gera fyrir öll skúffuskáld
undir þrítugu að rífa ljóð sín upp
úr skúffunum og senda okkur þau
í massavís en það eru engin tak-
mörk fyrir því hversu mörg ljóð
hver og einn getur sent.“
Kristján efast ekki um að fleiri
eigi eftir að taka við sér en þegar
keppnin var haldin árið 2004 bár-
ust tæplega 300 ljóð eftir um 100
höfunda. „Það var frekar dauft
yfir ljóðlífinu þá en gróskan er
miklu meiri í dag og krafturinn í
ljóðinu er mikill.“
Kristín Eiríksdóttir sigraði
keppnina árið 2004 og Kristján
segist þess fullviss að Sigurskálds-
ins 2006 bíði frægð og frami. „Það
er líka ekkert vandamál fyrir
þessa ófeimnu kynslóð að koma
fram undir nafni þannig að það er
ekki eftir neinu að bíða og ég vona
að við fáum yfir okkur ljóðaskriðu
á næstu dögum.“
Frægðin bíður sigurskáldsins
KRISTJÁN B. JÓNASSON Er byrjaður að taka
á móti ljóðum í keppnina Sigurskáldið 2006
á netfangið ljod@edda.is og vonast til þess
að ungskáld láti hendur standa fram úr
ermum og láti ljóð sín rigna inn á næstu
dögum.
Bandaríski leikstjórinn Kevin
Reynolds er staddur hér á landi
vegna styrktarsýningar kvik-
myndar sinnar Tristan & Isolde.
Reyndar er leikstjórinn mikill
Íslandsvinur og hefur komið hing-
að sjö sinnum enda segist hann
vera dolfallinn yfir landi og þjóð.
Reynolds komst í kynni við
landið þegar hann hitti viðskipta-
manninn góðkunna Jón Ólafsson í
kokteilboði hjá stórleikaranum
Mel Gibson. Jón bauð honum í
kjölfarið til Íslands í veiði og
síðan þá hefur hann heimsótt
landið reglulega. Það voru því
miklir fagnaðarfundir hjá þeim
félögum í miðju viðtali þegar Jón
birtist óvænt og þeir mæltu sér
mót á hótelbarnum. „Vonandi fæ
ég lambakjöt hjá honum því fáir
eru jafn góðir að elda það og Jón,“
segir Reynolds með bros á vör.
Tristan & Isolde er sígild ástar-
saga sem gerist í Englandi
skömmu eftir fall Rómarveldis og
Reynolds segist alltaf hafa heillast
mikið af sögu Englands. „Tímabil-
inu sem sagan sprettur upp úr
hefur verið gert lítið skil og sagan
sjálf var ekki fest niður á blað
fyrr en á tólftu öld en fram að því
barst hún manna á milli í munn-
mælum,“ segir Reynolds og bætir
því við að margar af frægustu
ástarsögum heims sæki mikið í
söguna enda sé þetta harmleikur
þriggja elskenda.
Kevin Reynolds þekkir báðar
hliðar Hollywoodmaskínunnar.
Kvikmyndin hans Robin Hood:
Prince of Thieves varð metsölu-
kvikmynd en Waterworld sem
fylgdi í kjölfarið fékk mikinn
skell. Töluvert gekk á við gerð
þeirrar myndar og slóst í brýnu
með honum og stórstjörnunni
Kevin Costner en þeir voru miklir
vinir. „Við töluðumst ekki saman í
mörg ár en höfum eiginlega graf-
ið stríðsöxina. Vinátta okkar verð-
ur samt aldrei eins og áður,“ segir
Reynolds sem útilokar þó ekki að
þeir muni vinna saman á ný.
Leikstjórinn þreytist seint á að
mæra land og þjóð og vin sinn Jón
enda leikur athafnamaðurinn
prest í kvikmynd. „Hann vildi
bara fá að vera með,“ upplýsir
Reynolds og segist í kjölfarið
dauðlanga að gera kvikmynd hér
á landi. „Veit reyndar ekkert
hvernig mynd það yrði en það
yrði ekki leiðinlegt,“ viðurkennir
hann.
freyrgigja@frettabladid.is
KEVIN REYNOLDS: HEFUR SÆST VIÐ KEVIN COSTNER
Hitti Jón hjá Mel Gibson
KEVIN REYNOLDS Leikstjórinn hefur komið reglulega til Íslands og veitt ásamt stórvini sínum Jóni Ólafssyni sem leikur lítið hlutverk í hans
nýjustu mynd. fréttablaðið / heiða
Jóhannes Jónsson í Bónus var gerður að heiðursfélaga í skákfélaginu
Hróknum í gær. Jóhannes var viðstaddur
setningu Bónusskákmóts sem haldið var
fyrir krakka á grunnskólaaldri í Kringl-
unni í gær og var við það tækifæri heiðr-
aður fyrir „ómetanlegt framlag í þágu
skáklistarinnar á Íslandi“ en Jóhannes
hefur reynst Hróknum haukur í horni og
Bónus hefur styrkt barnastarf Hróksins
með miklum myndarskap.
Heið- ursfélagatal Hróksins
er glæsilegt og Jóhannes
er því ekki í ónýtum
félagsskap þar sem
fyrir eru meðal
annarra ekki
ómerkari einstakl-
ingar en Össur
Skarphéðinsson,
Árni Höskuldsson
gullsmiður, Karl
Hjaltested, lista-
hjónin Jón Óskar
og Hulda Hákon
og tónlistarkonan
Patti Smith. - fb/þþ
������������
��������������
��������������
�������
����������
����
������ �
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8