Fréttablaðið - 31.03.2006, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
31. mars 2006 — 88. tölublað — 6. árgangur
Þú þarf ekki að leita lengra
ótrúleg verð á fartölvum.
Asus A6U
15,4” LCD, AMD mobile 3100+,
512MB minni, 60GB diskur
kortalesari, MSN vefmyndavél,
XP PRO, fartölvutaska og mús
á kr. 79.900,- stgr
Sjá í Fermingarblaðinu á bls. 11
AR
GU
S
06
-0
05
2
Kynntu þér Vildarþjónustu fyrirtækja
Alltaf að vinna?
�����������
������� �����������������
��� ����������
���������������������
�����������
������������
���
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
���
����
���
���
�
������� � � ����� � � ������ � ������� � ��������� � � �������� � � ����������� � � ���������
�� ������� �����
����������������
�����������������������
�����
�������������
�����������
��������������������������������
�����������
Kvennafans í þjóð-
leikhúsinu
Edda Heiðrún Back-
man leikstýrir átta
konum í glæpsamleg-
um gamanleik.
MENNING 46
FERMINGAR
Sér sjálfur um
veislustjórn
Fermingardrengurinn Jón Kristófer
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
������������������������������������
���������������������������
���������
��������������������������������������������������������������
fæst í öllum helstu blóma- og bókaverslunum landsins
���������� ��������������������������������������������
��������������������������������������������
������������������������� �
����������������������
�������������������������
������������������������������������������
������� ����������������
�����������������������������
�����������������������������������������
����������������������
������������������������
������������� ����� ����
���������������������������������
������������
VEÐRIÐ Í DAG
Með nýtt köntrílag
Valgeir Guðjónsson
frumflytur nýja drykkju-
vísu með köntrísveit
Baggalúts á Nasa í kvöld.
FÓLK 50
EFNAHAGSMÁL Hækkun stýrivaxta
Seðlabanka Íslands í gær er vart
talin munu stöðva verðbólguna
sem í vændum er.
Greiningardeild Kaupþings
banka bendir á að áhrif vaxtahækk-
ana komi fram með töf og hljóti
hækkanir nú að miða við stöðuna
eftir sex til átján mánuði. Seðla-
bankinn segir þörf á enn frekara
aðhaldi sem bendir til þess að
vaxtahækkunarferli bankans sé
hvergi nærri lokið að mati grein-
ingardeildarinnar.
Viðskiptabankarnir Glitnir og
Landsbankinn brugðust skjótt við
stýrivaxtahækkuninni með því að
hækka sín vaxtakjör. Glitnir hækk-
aði vexti á verðtryggðum íbúðalán-
um úr 4,48 prósentum í 4,6 prósent
og óverðtryggða vexti um 0,7-0,75
prósentustig. Landsbankinn hækk-
aði vexti á íbúðalánum í 4,70 pró-
sent eða um fjórðung úr prósentu.
„Þessum breytingum er ætlað
að leggja lóð á vogarskálarnar og
styðja stjórnvöld og Seðlabankann
í þeirri viðleitni að viðhalda efna-
hagslegum stöðugleika,“ segir í til-
kynningu frá bankastjórn Lands-
bankans.
KB banki hækkaði vexti af
íbúðalánum í 4,6 prósent og mun
hækka óverðtryggða vexti um
næstu mánaðamót um 0,5-0,75 pró-
sent.
Eins og við var að búast lækk-
uðu hlutabréf við vaxtahækkunina.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,65
prósent og stóð í 5.891 stigi við
lokun markaða. Krónan styrktist
hins vegar við vaxtahækkunina,
fjórða daginn í röð. Gengisvísital-
an lækkaði um 0,55 prósent og
styrktist því krónan sem því nam.
- eþa - óká / sjá síðu 24
SEÐLABANKI ÍSLANDS HÆKKAR VEXTI
Vaxtahækkunarferlinu er hvergi nærri lokið
að mati greiningardeildar KB banka.
Bankarnir hækka vexti í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans:
Stöðvar varla verðbólguskot
LÉTTSKÝJAÐ SYÐRA - Í dag verður
norðaustan 5-10 m/s. Léttskýjað á suður-
hluta landsins en stöku él á Vestfjörðum
og á landinu norðan- og austanverðu.
Hiti 0-5 stig syðra en vægt frost á lág-
lendi fyrir norðan. Heldur kólnandi veður.
VEÐUR 4
Seldur á 5 milljónir
ÍBV hefur selt einn af sínum bestu leik-
mönnum til Örebro í
Svíþjóð en það er Eng-
lendingurinn Ian Jeffs.
Kaupverðið mun vera í
kringum fimm milljónir
króna.
ÍÞRÓTTIR 47
Varnarsamstarfið
„Óskar Wilde sagði eins og frægt er,
að Íslendingar hefðu fundið Ameríku
árið 1000, en haft vit á því að týna
henni aftur, rifjar Hannes Hólmsteinn
Gissurarson upp, en vonar að Banda-
ríkjamenn hafi ekki týnt Íslandi.
Í DAG 26
SINUELDAR Að minnsta kosti áttatíu
ferkílómetra land varð gríðarlegum
sinueldum að bráð á Mýrum í Borg-
arfirði í gær. Slökkviliðið í Borgar-
nesi fékk tilkynningu um eldinn á
áttunda tímanum í gærmorgun.
Eldurinn blossaði upp á stuttum
tíma og fór slökkviliðið strax á
staðinn og hóf baráttuna við eldinn.
Ljóst var frá byrjun að útilokað var
að ráða niðurlögum sinueldanna og
einbeitti slökkviliðið sér þá að því
að verja húseignir á svæðinu. Í
gærkvöldi stóð reykjarkófið 1200
metra í loft upp á meðan eldvegg-
urinn æddi stjórnlaust áfram. Elds-
upptökin voru í vegarbrún og telur
lögregla og slökkvilið það koma til
greina að kveikt hafi verið í af
ráðnum hug. Miklir þurrkar hafa
verið að undanförnu og elds matur
því mikill.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Bjarna Þorsteinssyni, slökkviliðs-
stjóra í Borgarnesi, í gærkvöld var
hann staddur á bænum Skíðsholti á
Mýrum þar sem naumlega náðist
að verja nýtt íbúðarhús. Húsið var
í mikilli hættu enda eldurinn kom-
inn alveg upp að húsveggnum á
tímabili.
Bjarni álítur að strax í gærkvöldi
hafi um 80 ferkílómetra svæði verið
brunnið þar sem eldurinn æddi
niður allar Mýrarnar. Hann telur
að allt land á milli Álftár og Hítarár
geti orðið eldinum að bráð.
Allt hans lið, fjórtán menn með
tvo tankbíla og tvo dælubíla, horfði
á eldinn úr fjarlægð og gat ekkert
aðhafst. „Þar sem við horfðum á
þetta úr þriggja kílómetra fjar-
lægð þá var eldveggurinn tveir,
þrír metrar á hæð þar sem hann
geistist áfram. Eldurinn fór þrjá til
fjóra metra á sekúndu og hann flýt-
ur eins og vatn ofan á jörðinni. Ef
það ætti að lýsa þessu einhvern
veginn þá má helst líkja þessu við
náttúruhamfarir,“ sagði Bjarni
Þorsteinsson. - shá / sjá síðu 6
Eldinum líkt við
náttúruhamfarir
Mýrarnar stóðu í ljósum logum í allan gærdag. Þá loguðu mestu sinueldar sem
slökkviliðið í Borgarnesi man eftir. Slökkviliðsmenn horfðu á eldinn sem æddi
um og eirði engu sem á vegi hans varð. Varpland mófugla er í mikilli hættu.
MÝRARNAR LOGA Slökkviliðsmenn frá Borgarnesi fengu ekki við neitt ráðið þegar eldurinn æddi niður Mýrarnar í gær. Talið er að minnsta
kosti áttatíu hektarar lands hafi brunnið. Eldveggurinn náði allt að þriggja metra hæð og reykjarkófið náði 1200 metrum seint í gærkvöld.
VARNARMÁL Samninganefndir
Bandaríkjanna og Íslands í varnar-
viðræðunum hittust í tæplega tvær
klukkustundir í sendiráði Banda-
ríkjanna við Laufásveg síðdegis í
gær. Fundinum var haldið leyndum
fyrir fjölmiðlum.
Albert Jónsson, formaður íslensku
samninganefndarinnar, Ragnheiður
Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður Geirs
H. Haarde utanríkisráðherra, Helgi
Ágústsson, sendiherra í Bandaríkj-
unum og Jörundur Valtýsson, sér-
fræðingur hjá forsætisráðuneytinu
sátu óformlega fundinn. Fundurinn
hófst skömmu eftir klukkan 17, með
mönnunum fimm sem leiða 26 manna
viðræðunefnd bandarískra stjórn-
valda. - gag / sjá síðu 4
Varnarviðræður í brennidepli:
Leynifundur
í sendiráðinu
ÍSLENSKA SENDINEFNDIN Albert Jónsson,
Ragnheiður Elín Árnadóttir, Jörundur
Valtýsson og Helgi Ágústsson koma úr
bandaríska sendiráðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍSRAEL, AP Palestínskur sjálfs-
morðssprengjumaður sprengdi
sig í loft upp við innganginn að
gyðingabyggðinni Kedoumim á
Vesturbakkanum í gærkvöld og
dró þrjá Ísraela með sér í dauð-
ann. Ísraelskir fjölmiðlar greindu
frá þessu.
Nýr öfgahópur með tengsl við
Fatah-hreyfinguna lýsti yfir
ábyrgð á tilræðinu, sem var það
fyrsta sem framið er á hernumdu
svæðunum síðan 29. desember.
Þetta var jafnframt fyrsta sjálfs-
morðssprengjutilræðið sem hópur
ótengdur Heilögu stríði fremur
frá því vopnahléi var lýst yfir í
febrúar í fyrra. - aa
Tilræði á Vesturbakkanum:
Þrír Ísraelar
féllu í árás
HEIÐA Í NIKITA
Selur hönnun sína
um allan heim
• matur • tíska
FYLGIR MEÐ FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A