Fréttablaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 4
4 31. mars 2006 FÖSTUDAGUR
Bandaríkjadalur 70,16 70,5
Sterlingspund 122 122,6
Evra 84,63 85,11
Dönsk króna 11,342 11,408
Norsk króna 10,6 10,662
Sænsk króna 8,985 9,037
Japanskt jen 0,5973 0,6007
SDR 101,01 101,61
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 30.3.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
118,3584
NÁTTÚRUVERND Umsókn Íslands um
að koma Surtsey á heimsminja-
skrá Unesco hefur verið endur-
send stjórnvöldum þar sem hún
þótti ekki nægilega vel unnin.
Þetta staðfesti starfsmaður hjá
Stofnun heimsminjaskrárinnar í
París í viðtali við Fréttablaðið og
sagði að ýmislegt hefði upp á vant-
að svo að nægilegar upplýsingar
kæmu fram til að umsóknin teldist
gild að þeirra mati. Hafa íslensk
stjórnvöld því tæpt ár til viðbótar
til að fullvinna umsóknina áður en
hægt er að sækja um á nýjan leik.
Hugmyndinni um að koma
Surtsey á hina virtu heimsminja-
skrá var hrundið í gegn með litl-
um fyrirvara seint á síðasta ári og
var það mat ýmissa sem að vinnu
þeirri komu að tíminn væri of
knappur. Aðeins liðu tveir mánuð-
ir frá því Náttúrufræðistofnun
fékk það verkefni að útbúa til-
nefningarskýrslu vegna þessa þar
til umsóknarfrestur rann út þann
1. febrúar síðastliðinn. Var umrætt
vinnulag samþykkt af ríkisstjórn-
inni að tillögu Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra og Sigríðar Önnu Þórðar-
dóttur, umhverfisráðherra, þar
sem ekki þótti ráðlegt að bíða of
lengi með tilnefningar Íslands til
heimsminjaskrárinnar.
- aöe
FRÁ SURTSEY Þessi einstaka náttúruperla
Íslendinga kemst ekki á heimsminjaskrá
Unesco að svo stöddu þar sem umsókn
stjórnvalda þótti ekki nægilega vel unnin
og var endursend.
MYND/SIGURÐUR H. MAGNÚSSON
Umsókn um að koma Surtsey á heimsminjaskrá Unesco hafnað:
Vinna þarf umsóknina betur
Formaður Albert Jónsson, ráðgjafi í utanríkismálum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
Jón Egill Egilsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Helgi Ágústsson, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
Þórður Bjarni Guðjónsson sendifulltrúi
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu.
Jörundur Valtýsson, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu.
Jón E. Böðvarsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli.
Erlingur Erlingsson sendiráðsritari.
Íslensk nefnd um varnarmál:
Níu manna íslensk nefnd
Carol van Voorst, sendiherra á Íslandi, formaður nefndarinnar.
Mark Pekala varaaðstoðarutanríkisráðherra.
James Townsend fer fyrir NATO-samstarfi í varnarmálaráðuneytinu.
Noel Preston, flotaforingi í hernum og yfirmaður bækistöðva flotans í Evrópu.
Richard Mills, hershöfðingi og aðstoðaraðgerðastjóri Evrópustjórnar.
Thomas Coon, hershöfðingi í Evrópuherstjórn.
Nefnd Bandaríkjamanna:
Fimm menn fara
fyrir nefndinni
VERÐBÓLGA Árni Mathiesen fjár-
málaráðherra segir að ómögulegt
sé að leggja mat á það hvort spá
Seðlabankans um allt að sex pró-
senta verðbólgu yfir lengri tíma
muni standast. „Það fer annars
vegar eftir því hver þróun gengis-
ins verður og hins vegar eftir því
hver áhrif vaxtahækkunar Seðla-
bankans verður og jafnvel áhrif
vaxtahækkunar sem kann að
verða síðar. Tilgangur vaxtahækk-
unarinnar er einmitt sá að koma í
veg fyrir að spáin um háa verð-
bólgu rætist. Ég vona að Seðla-
bankanum gangi vel að láta vext-
ina hafa tilætluð áhrif,“ segir
fjármálaráðherra. - jh
Fjármálaráðherra og verðlag:
Vaxtahækkun
hrífur vonandi
VARNARMÁL Samninganefndir
Bandaríkjanna og Íslands í varn-
arviðræðunum hittust í tæplega
tvær klukkustundir í sendiráði
Bandaríkjanna við Laufásveg síð-
degis í gær. Fundinum var haldið
leyndum fyrir fjölmiðlum. Albert
Jónsson, formaður íslensku samn-
inganefndarinnar, sagði í gær að
enginn fundur yrði milli nefnd-
anna fyrir þann stóra í dag.
„Eins og ég skil það eru Banda-
ríkjamenn í einhverjum eigin
fundarhöldum og fólk að koma
héðan og þaðan að,“ sagði hann
spurður rétt fyrir fjögur í gærdag
hvort nefndirnar ætluðu að hitt-
ast. Hann vildi þá ekki tjá sig um
hvort varnarmálin yrðu einungis
rædd á fundinum í dag eða einnig
atvinnumál á Keflavíkurflugvelli
og sagði slíkt geta skaðað samn-
ingaviðræðurnar.
Auk Alberts sátu Ragnheiður
Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður
Geirs H. Haarde utanríksiráð-
herra, Helgi Ágústsson, sendi-
herra í Bandaríkjunum og Jörund-
ur Valtýsson, sérfræðingur hjá
forsætisráðuneytinu óformlega
fundinn, sem hófst rúmlega fimm,
með mönnunum fimm sem leiða
viðræðurnar fyrir bandarísk
stjórnvöld.
Eftir að fundinum lauk um sjö-
leytið, sagði Albert að ekki væri
mikið um hann að segja. „Við
vorum fyrst og fremst að fara yfir
skipulagið og dagskrána og hitta
fólkið sem er í forsvari fyrir við-
ræðunum.“ Albert vildi ekkert
frekar gefa upp um efnisatriðin
en sagði að einungis lítillega hefði
verið komið inn á efnistök fundar-
ins í dag.
Hershöfðingi í Evrópustjórn
Bandaríkjanna, Thomas R. Coon,
sagði eftir óformlega fundinn í
gær að sendinefndin ætlaði að
miðla þeim hugmyndum sem þeir
hefðu um varnarsamstarfið í
framtíðinni til stjórnmálaleiðtog-
anna. „Vonandi gefum við þeim
góða tilfinningu gagnvart áætlun-
um okkar og getu okkar til þess að
verja landið, samkvæmt varnar-
málasamningnum frá 1951. Ég tel
að eftir að við höfum náð að tala
við alla líði mönnum betur með
ákvörðun okkar.“
Thomas sagði ekki tímabært að
fara í smáatriði þegar hann var
spurður frá hvaða landi þeir
hyggðust verja Ísland. „Á fundin-
um munum við ræða meira á
almennum nótum.“
Aðalfundurinn hefst í dag
klukkan hálftíu. Alls eru 26 í
bandarísku sendinefndinni. Þeir
koma frá bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu, varnarmálaráðu-
neytinu og frá höfuðstöðvum Evr-
ópudeildar Bandaríkjahers í
Stuttgart. Níu eru í þeirri íslensku,
frá Keflavíkurflugvelli, sendiráði
Íslands í Bandaríkjunum, utan-
ríkis-, forsætis- og dómsmála-
ráðunetyinu.
gag@frettabladid.is
magnush@frettabladid.is
Viðræðunefndirnar hittust
á leynifundi í sendiráðinu
Forsvarsmenn íslensku og bandarísku nefndanna í varnarviðræðunum sátu nær tveggja stunda fund í gær.
Farið var yfir skipulag og dagskrá fundarins í dag en lítillega komið inn á efnistökin í viðræðunum.
Nefndirnar hittast
ÍSLENSKA SENDINEFNDIN KEMUR ÚR BANDARÍSKA
SENDIRÁÐINU Jörundur Valtýsson, Helgi Ágústsson,
Ragnheiður Elín Árnadóttir og Albert Jónsson koma
hér af tveggja klukkustunda fundi sem haldið var
leyndum fyrir fjölmiðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
THOMAS R. COON Hershöfðinginn er
einn þeirra fimm sem er í forsvari fyrir 26
manna bandarísku sendinefndina.
ÚR BANDARÍSKU NEFNDINNI James Joye
Townsend Jr., Carol van Voorst sendiherra
og Mark A. Pekala stilltu sér upp í mynda-
töku fyrir leynifundinn.
ALBERT OG RAGNHEIÐUR Forsvarsmenn
íslensku nefndarinnar rölta frá sendiráðinu.
ÍSLENSKA SENDINEFNDIN Albert lítur um
öxl. Ragnheiður í símanum og Jörundur
og Helgi arkar á undan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI