Fréttablaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 58
46 31. mars 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
28 29 30 31 1 2 3
Föstudagur
■ ■ LEIKIR
19.00 Þór og Fram mætast í DHL
deild karla í handbolta í Höllinni á
Akureyri.
19.15 Njarðvík og KR mætast í
Iceland-Express deild karla í körfu-
bolta í Njarðvík.
20.00 Selfoss og Fylkir mætast
í DHL deild karla í handbolta á
Selfossi.
■ ■ SJÓNVARP
19.00 Gillette sportpakkinn á Sýn.
19.30 Meistaradeildin á Sýn.
20.00 Motorworld á Sýn.
20.30 Súperkross á Sýn.
21.00 HM í póker á Sýn.
02.50 Formúla-1 á Rúv. Bein
útsending frá tímatöku í Ástralíu.
Endursýnt klukkan 11.30 á laugardag-
inn.
Íslenski landsliðsframherjinn Hannes
Þorsteinn Sigurðsson skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Stoke City á miðvikudags-
kvöldið. Markið kom ellefu mínútum
fyrir leikslok og reyndist vera sigurmark
Stoke gegn QPR. Það var þungu fargi
létt af Hannesi enda búinn að spila
marga leiki fyrir Stoke án þess að skora.
„Ég var alveg búinn eftir fagnaðarlætin
og varð að kasta mæðinni. Það er svo
langt síðan ég skoraði að ég var nánast
búinn að gleyma hvernig ætti að fagna,“
sagði Hannes léttur við Fréttablaðið í
gær. „Þetta var kannski ekki fallegasta
mark í heimi en það telur jafn mikið og
öll hin. Þetta var pot af stuttu færi. Það
var líka gaman að fá að spila í fremstu
víglínu en ég hef mikið verið að leika á
köntunum með Stoke í vetur.“
Þetta verður hugsanlega síðasta mark
Hannesar fyrir Stoke í vetur því hann er
á leið í aðgerð vegna kviðslits í næstu
viku og tímabilinu verður þar með
formlega lokið.
„Þetta hefur verið að plaga mig síðan
í landsleiknum gegn Trínidad en er
eitthvað furðulegt þar sem ég hef lítið
fundið fyrir þessu síðustu tvær vik-
urnar. Þetta er samt eitthvað sem
verður að laga og ástæðan fyrir
því að mér er skellt í aðgerð
núna er að ég verði klár
þegar undirbúningsstímabilið
byrjar svo að ég lendi ekki á
eftir hinum leikmönnunum.
Tímabilið er líka svo gott sem
búið hjá okkur þar sem við
eigum ekki lengur möguleika
á sæti í umspili um sæti í efstu
deild og getum heldur ekki
fallið. Þetta er góður tími til að
leggjast undir hnífinn og
best að ljúka þessu af,“
sagði Hannes og bætti
við að leikmenn félagsins
hefðu ekki farið varhluta
af deilum þjálfarateymisins
en þrátt fyrir allan hasarinn
sagði Hannes ekki útilokað
að Johan Boskamp haldi
áfram með liðið. Verði hann
áfram þá má samt búast við því að
hann muni skipta út þjálfarateyminu
út eins og það leggur sig enda tvisvar
þurft að setja aðstoðarmenn sína í frí
vegna ósættis.
HANNES SIGURÐSSON: SKORAÐI SITT FYRSTA OG VÆNTANLEGA SÍÐASTA MARK Í VETUR
Var alveg búinn eftir fagnaðarlætin
> Í bann fyrir skjalafals
Drago Pavlov, nýráðinn þjálfari kvenna-
liðs FH, hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða langt bann af hliðarlínunni
vegna skjalafals. Hann varð uppvís af
því í leik FH og Stjörnunnar í deildabik-
arnum þann 4. mars þegar hann skráði
Elísabetu Pétursdóttir á leikskýrsluna en
hið rétt er að hún var ekki með. Í stað
þess spilaði Mist Elíasdóttir leikinn en
á þeim tíma var hún leikmaður KR og
því með öllu ólögleg í leiknum. Pétur
Svavarsson í kvennaráði FH hefur verið
bannað
að sinna
stjórnun-
arstörfum
í tvo
mánuði
auk þess
sem FH
var sektað
um 30
þúsund
krónur.
Stefán til Keflavíkur
Stefán Örn Arnarsson hefur skipt yfir
í Keflavík úr Víkingi Reykjavík. Stefán
er 24 ára gamall sóknarmaður og var
í láni hjá Keflvíkingum síðasta sumar
en hann býr og vinnur í Reykjanesbæ.
Hann skoraði fjögur mörk í tólf leikjum
síðasta sumar og er góður styrkur fyrir
Keflavíkurliðið.
KÖRFUBOLTI Fyrsti leikhluti gaf frá-
bær fyrirheit fyrir leikinn sem
var jafn og spennandi framan af.
Bæði lið sýndu frábæra vörn í
byrjun áður en sóknarloturnar
tóku við þar sem þriggja stiga
hittni liðanna var til fyrirmyndar.
Mjótt var á mununum og staðan
var 30-26 fyrir Keflavík í upphafi
annars leikhluta.
Þá umbreyttist leikur Keflvík-
inga með A. J. Moye fremstan í
flokki og þeir völtuðu yfir gestina
sem áttu engin svör við stórleik
heimamanna sem röðuðu niður
körfunum. Keflvíkingar spiluðu
frábæra vörn og í bland við kæru-
leysi Skallagrímsmanna náðu
heimamenn upp 63-43 forystu í
hálfleik og heillum horfnir Borg-
nesingar vissu ekki hvaðan á sig
stóð veðrið.
Yfirburðir Keflvíkinga héldu
áfram í þriðja leikhluta og Borg-
nesingar áttu engin svör. Það bætti
gráu ofan á svart hjá gestunum að
Jovan Zdravevski var útilokaður
frá leiknum með sína fimmtu villu
um miðbik þriðja leikhluta en þá
var hann stigahæstur Skalla-
grímsmanna með 19 stig.
Heimamenn kláruðu leikinn án
þess að gestirnir væru nálægt því
að gera atlögu að sigrinum. Kefl-
víkingar gátu meira að segja leyft
sér að hvíla lykilmenn fyrir næstu
rimmu liðanna sem verður í Borg-
arnesi á mánudaginn. Íslands-
meistararnir sýndu og sönnuðu af
hverju þeir eru handhafar titils-
ins og hreinlega slátruðu Borgnes-
ingum og unnu að lokum 129-79.
A. J. Moey fór á kostum í kvöld
og sýndi allar sínar bestu hliðar.
Hann lék sér að gestunum og skor-
aði alls 37 stig en fjórir menn skor-
uðu 14 stig, Guðjón Skúlason, Vlad
Boer, Mgnús Gunnarsson og Gunn-
ar Einarsson.
Hinn feykisterki George Byrd
fann sig ekki í leiknum og ef
Skallagrímsmenn ætla sér að kom-
ast í úrslitaeinvígið er ljóst að
hann þarf að spila mun betur.
Hann skoraði 13 stig, Zdravevski
19 og Pétur Sigurðsson 16. - hþh
Íslandsmeistarabragur á Keflavík
Keflvíkingar settu upp sannkallaða sýningu á heimavelli sínum í Sláturhúsinu í gær þegar Skallagrímur
var í heimsókn. Heimamenn fóru á kostum og unnu mjög sannfærandi 129-79 sigur og leiða einvígið 2-1.
A.J MOEY Átti hreint út sagt frábæran leik fyrir Keflavík í kvöld og skoraði alls 37 stig og var
með öllu óviðráðanlegur. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR