Fréttablaðið - 31.03.2006, Page 6
6 31. mars 2006 FÖSTUDAGUR
SINUELDAR „Þetta var lán í óláni má
kannski segja því eldurinn lenti að
megninu til á milli bæja,“ sagði
Sigurður Jóhannsson, bóndi á
Stóra-Kálfalæk, í samtali við
Fréttablaðið í gærkvöld. Hann
segir eldvegginn hafi farið um kíló-
metra frá sínum bæ þar sem hann
hentist áfram á miklum hraða og
ljóst að miklar skemmdir hafi orðið
á varplandi mófugla og girðingar
séu brunnar. Hann segir bæinn
Laxárholt hafa verið í hættu en eld-
urinn farið vestan við bæinn. Einn-
ig sé eyðibýli og sumarhús í hættu.
„Það er ekki séð fyrir endann á
þessu, ekkert nálægt því,“ sagði
Sigurður.
Bjarni Þorsteinsson, slökkvi-
liðsstjóri í Borgarnesi, segist ekki
hafa viljað láta sína menn inn í eld-
ana. „Svona eldur drepur allt sem
fyrir honum verður. Það lifir eng-
inn í þessu. Það eina sem hægt er
að gera núna er að bíða eftir að eld-
urinn brenni út sem tekur líklega
allan daginn í dag. Landið sem mun
brenna er frá Álftá og vestur að
Hítará. Þetta er allur Hraunhrepp-
ur og Mýrar. Þetta er því gríðar-
legt flæmi. Ef þetta var gert vilj-
andi þá er þetta tilræði við líf,
eignir og heilsu fólks,“ sagði Bjarni
að lokum. - shá
�������������
�������� �������
��������� �������������������������������������������
�������������
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur fatamarkað
laugardaginn 1. apríl kl. 11-16 í sjálfboðamið-
stöðinni Hamraborg 11, 2. hæð.
Allur ágóði til styrktar götubörnum í Mósambík.
Seld verða notuð föt á konur, karla, ungmenni
og börn. Verð: 300 kr./500 kr.
Nemendur í MK annast markaðinn sem er loka-
verkefni þeirra í áfanga um sjálfboðið starf.
Kaffi á könnunni.
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 · Sími 554 6626 · kopavogur@redcross.is · www.redcross.is/kopavogur
KJÖRKASSINN
Er þér boðið í fermingarveislu á
næstunni?
Já 63%
Nei 37%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að leyfa spilavíti hérlendis?
Segðu þína skoðun á visir.is
BERLÍN, AP Íranar hafa 30 daga til
að velja á milli alþjóðlegrar ein-
angrunar ellegar að snúa aftur að
samningaborðinu varðandi auðgun
þeirra á úrani, var niðurstaða fund-
ar utanríkisráðherra Rússlands,
Kína, Frakklands, Bandaríkjanna,
Bretlands og Þýskalands sem
saman komu í Berlín í gær.
Tilgangur fundarins var að
ræða áætlun um hvernig Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna tekur á
kjarnorkumálefnum Írans, en í
New York á miðvikudagskvöld
samþykktu 15 fulltrúar ráðsins
samhljóða að veita Írönum þrjátíu
daga frest til að hætta tilraunum
sínum með auðgun úrans. Að frest-
inum liðnum ber Alþjóðakjarn-
orkumálastofnuninni (IAEA) að
gefa Öryggisráðinu skýrslu, þar
sem fram á að koma hvort og
hvernig Íranar hafi brugðist við
þessum tilmælum. Reynist þeir
ekki hafa sinnt þeim, getur Örygg-
isráðið gripið til aðgerða eins og
viðskiptaþvingana.
Á blaðamannafundi eftir fund-
inn í gær lýsti Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
því yfir að „alþjóðasamfélagið
væri sameinað“ í afstöðu sinni til
kjarnorkuvinnslu Írana, og gaf til
kynna að Öryggisráðið mun hefja
aðgerðir bregðist Íran ekki við á
þann hátt sem ráðið leggur til.
Þó bentu orð utanríkisráðherra
Rússlands og Kína til þess að ráðið
væri ekki alveg einhuga um við-
brögð við áframhaldandi kjarn-
orkuvinnslu Írana, haldi þeir úran-
auðguninni áfram.
Fulltrúar Írans breyttu ekki
skoðun sinni í gær. Ali Asghar Solt-
anieh, helsti fulltrúi Írans innan
IAEA, sagði við fréttamenn eftir
fundinn í gær að Írönum væri það
ómögulegt að hætta auðgun úrans,
og ítrekaði enn á ný að kjarnorku-
vinnsla þeirra væri eingöngu ætluð
til friðsamlegra nota.
Vesturveldin telja orð Írana um
tilgang vinnslunnar hins vegar lítt
trúanleg, og telja að Íranar ætli sér
að nota auðgað úran til framleiðslu
á kjarnavopnum.
Frank-Walter Steinmeier, utan-
ríkisráðherra Þýskalands, sagðist
vonast til þess að ummæli Soltani-
eh væru ekki lokaorð Írana í þessu
máli, og bætti því við að 30 daga
fresturinn veitti Írönum tækifæri
„til að taka ákvörðun um einangr-
un ...eða að snúa aftur að samn-
ingaborðinu.“
Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, tók fram á blaða-
mannafundinum að utanríkisráð-
herrarnir hefðu ekki rætt
mögulegar refsiaðgerðir gegn
Íran, og að Rússar styddu ekki slík-
ar aðgerðir. Dai Bingguo, aðstoðar-
utanríkisráðherra Kína, kallaði
jafnframt eftir „friðsamlegri
lausn“ á málinu. Bentu orð þeirra
til minni samstöðu meðal ráðherr-
anna en Rice vildi vera láta.
smk@frettabladid.is
Íranar fá frest til að
hætta tilraunum
Ráðherrar ríkjanna fimm sem hafa neitunarvald í Öryggisráði SÞ, auk Þýska-
lands, hvöttu Íransstjórn í gær til að stöðva alla auðgun úrans á heimavelli, en
Íranar segja engar líkur vera á því að þeir hlýði þeim tillögum.
KJARNORKUVINNSLA Íranskir kjarnorkuversstarfsmenn meðhöndla ílát sem í er úran í kjarnorkuveri sunnan við Teheran. Fimmtán fulltrúar
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna hafa samþykkt að veita Írönum 30 daga frest til að hætta tilraunum með auðgun úrans. NORDICPHOTOS/AFP
SAMKEPPNISMÁL Forsvarsmenn
Flugþjónustunnar á Keflavíkurflug-
velli, IGS, ætla að áfrýja úrskurði
Samkeppniseftirlitsins, sem komst
að þeirri niðurstöðu að IGS hefði
brotið samkeppnislög með samningi
sínum við þýska flugfélagið LTU.
Þýska félagið samdi við IGS um
þjónustu árið 2004 en hafði áður
verið í viðskiptum við Vallarvini,
sem sinna sambærilegri þjónustu
og IGS og eru því í samkeppni um
viðskiptavini.
Samkeppniseftirlitið telur samn-
ing IGS brot á samkeppnislögum,
því tilboð fyrirtækisins í verkefni
fyrir LTU var einungis til þess ætlað
að valda Vallarvinum óþægindum.
Gunnar Olsen, framkvæmda-
stjóri IGS, telur úrskurð Samkeppn-
iseftirlitsins ekki fela það í sér að
samningur IGS við LTU sé ólögleg-
ur. „Við teljum forsendur samnings-
ins ekki vera brostnar. Við munum
áfrýja þessari niðurstöðu vegna
þess að við teljum okkur ekki hafa
brotið lög eða reglur.“
Vallarvinir eru enn starfandi á
Keflavíkurflugvelli og hafa nýlega
gengið frá samningi við British Air-
ways. Sigþór Kristinn Skúlason,
framkvæmdastjóri Vallarvina, seg-
ist hafa búist við því að Samkeppn-
iseftirlitið myndi finna að aðferðum
IGS. „Ég var aldrei í vafa um að það
hefði verið á okkur brotið og er
ánægður með niðurstöðu Sam-
keppniseftirlitsins. Miðað við
úrskurðinn þá er ljóst að ekki er
lengur grundvöllur fyrir samningi
IGS við LTU.“ -mh
IGS ætlar að áfrýja úrskurði Samkeppniseftirlitsins:
Neita að hafa brotið af sér
FLUGVÉLAR ÞJÓNUSTAÐAR IGS er sagt hafa
brotið samkeppnislög þegar félagið samdi
við þýska flugfélagið LTU.
PARÍS, AP Stjórnlagaráð Frakk-
lands, sem sker úr um hvort lög
sem þingið samþykkir stangist á
við stjórnarskrána eður ei,
úrskurðaði í gær að umdeild lög
um breytta vinnulöggjöf stæðust
þá skoðun. Þar með situr Jacques
Chirac forseti uppi með ákvörðun-
ina um næsta skref í deilunni, sem
orðið hefur tilefni harkalegra mót-
mæla gegn ríkisstjórninni.
Chirac getur annað hvort stað-
fest lögin en þar með myndi hann
kalla enn harkalegri mótaðgerðir
yfir landið. Hinn kosturinn væri
að senda lögin aftur til þingsins en
þar með bryti hann gegn eindregn-
um vilja stjórnarinnar. ■
Vinnulagadeilan í Frakklandi:
Lögin úrskurð-
uð lögmæt
Sigurður Jóhannsson, bóndi á Stóra-Kálfalæk, segir varpland í mikilli hættu:
Eldveggurinn æddi framhjá
ELDURINN EIRÐI ENGU Sinueldarnir eyðilögðu fjölda girðinga og einnig varpland mófugla á
stóru svæði. Íbúðarhús voru í mikilli hættu en betur fór en á horfðist. SKESSUHORN/MAGNÚS