Fréttablaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 16
31. mars 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Rokkarnir hafa
þagnað
„Þetta hrekur ekki margt af
því sem ég hef sagt en ég
ætla ekki að segja orðinu
meira að sinni.“
VILHJÁLMUR BJARNASON KENNARI
UM NIÐURSTÖÐU RÍKISENDUR-
SKOÐUNAR Í STÓRA EGLUMÁLINU.
FRÉTTABLAÐIÐ.
Moggann á þing
„Morgunblaðið hefur ávallt
haldið því fram að Byggða-
stofnun væri óþörf.“
LEIÐARI MOGGANS UM
BYGGÐASTOFNUN OG FLEIRI
RÍKISSTOFNANIR.
„Þetta er ekki gott innlegg í drykkju-
menningu Íslendinga,“ segir Sigrún
Elsa Smáradóttir, matvælafræðingur
og varaborgarfulltrúi, um drykkju-
keppnina sem haldin var á veitinga-
staðnum Barnum á Sauðárkróki um
síðustu helgi. Þrír keppendur enduðu
á sjúkrahúsi með áfengiseitrun.
Sigrún Elsa segir að þó landsmenn séu
miklir keppnismenn að upplagi eigi
þeir alls ekki að keppa í drykkju. „Fólk
hefur hreinlega dáið úr áfengiseitrun í
kjölfar svona keppna, hvort sem um er
að ræða formlegar keppnir eða meting
á milli fólks. Þannig að þetta er grafal-
varlegt mál,“ segir Sigrún Elsa.
SJÓNARHÓLL
DRYKKJUKEPPNIR
Grafalvarlegt
SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR matvæla-
fræðingur og varaborgarfulltrúi
Hamrar, skrúfjárn, tangir, pensl-
ar, spaðar og skæri verða munduð
í Kringlunni í dag þegar Íslands-
mót iðnnema fer fram. Keppt
verður í níu greinum; málmsmíði,
rafvirkjun, trésmíði, málun, múr-
verki, dúklagningu, pípulagningu,
snyrtifræði og hársnyrtingu og er
viðbúið að keppni verði hörð í
öllum greinum.
72 keppendur frá ellefu skólum
taka þátt.
Íslandsmót iðnnema er haldið
samhliða Degi iðn- og starfs-
menntunar en með honum er ætl-
unin að kynna iðn- og starfsmennt-
un fyrir ungu fólki, vekja athygli á
þeim tækifærum sem felast í námi
og starfi í greinunum og bæta
ímynd þeirra.
Pípulögn er ein greinanna sem
keppt verður í og þurfa keppend-
ur að sjóða, pressa og beygja rör
eftir kúnstarinnar reglum. Sigur-
vegarinn verður fulltrúi Íslands á
Norðurlandameistaramótinu í
pípulögnum sem fram fer í Sví-
þjóð á næsta ári. Norðurlanda-
meistaramótið var haldið á Íslandi
í fyrra og var íslenski keppandinn
Tómas Helgason aðeins fimm mín-
útum frá sigri.
Keppnin hefst snemmdægurs í
Kringlunni í dag og lýkur seinni
partinn með verðlaunaafhend-
ingu.
ÍSLANDSMEISTARI Í PÍPULÖGNUM Tómas
Helgason sigraði á síðasta Íslandsmóti.
Hver vinnur nú? FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Iðnnemar reyna með
sér í greinum sínum „Hér verður
allt mögulegt á
boðstólum; ævi-
sögur, skáldsögur,
sjálfshjálparbækur
og heimspeki.
Bara allur pakk-
inn,“ segir Bragi
Kristjónsson,
bóksali í Bókinni,
sem í dag opnar
bókamarkað á
Hverfisgötu 34 í
Reykjavík, gegnt
höfuðstöðvum Framsóknarflokksins.
Pyngjan ætti ekki að léttast mjög þó
viðskiptavinir gangi út með góðan
slatta af bókum því stykkið kostar frá
eitt hundrað og upp í þrjú hundruð
krónur.
Bragi segir að þrátt fyrir þetta lága
verð séu bækurnar almennt góðar.
„Það er hægt að fá ágætis bækur á
hundrað kall,“ segir hann.
Fjöldi eintaka á markaðnum
hleypur á tugþúsundum og vega
bækurnar samanlagt mörg tonn. -bþs
Bækur á 100
til 300 krónur
BRAGI
KRISTJÓNSSON
Ísfirðingarnir Guðmundur
Guðmundsson og Jón Páll
Halldórsson afhentu í gær
Einari K. Guðfinnssyni
sjávarútvegsráðherra mynd
af fyrsta íslenska vélbátn-
um. Þeir segja vélvæðingu
bátaflotans einhver merk-
ustu tímamót í atvinnusögu
þjóðarinnar.
Vélbáturinn Stanley frá Ísafirði var
í eigu Árna Gíslasonar og Sophusar
J. Nielsen. Þetta var sexæringur og
í engu frábrugðinn fjölda annarra
slíkra báta. Tvímenningarnir voru
hins vegar frábrugðnir öðrum
útgerðarmönnum því af einstakri
framsýni réðust þeir í kaup á
danskri tveggja hestafla Möllerup
vél og settu í bátinn. Stanley var
fyrst siglt fyrir vélarafli á Pollinum
á Ísafirði 25. nóvember 1902 og fjór-
um dögum síðar hélt hann í sína
fyrstu veiðiferð.
Guðmundur Guðmundsson og
Jón Páll Halldórsson fengust um
árabil við útgerð frá Ísafirði og er
annt um sögu bæjarins og atvinnu-
hátta. Þeir hafa starfað í Sögufélagi
Ísfirðinga þar sem Jón Páll gegndi
lengi formennsku. Í gær tóku þeir
hús á Einari K. Guðfinnssyni sjávar-
útvegsráðherra og færðu honum
ljósmynd af málverki Sigurðar Guð-
jónssonar af Stanley en það er varð-
veitt á Listasafni Ísafjarðar.
„Það voru einhvern merkustu
tímamót í atvinnusögu þjóðarinnar
þegar sjómaðurinn losnaði undan
árinni og vélaraflið tók við,“ segir
Jón Páll og bætir við að ungu fólki
hafi gleymst hvaða tímamótum
þetta olli í harðri lífsbaráttunni á
Íslandi.
Útgerð Stanleys gekk vel og þó
margir hafi í fyrstu haft efasemdir
um að nokkurt vit væri í að setja vél
í bátinn sigldu aðrir útgerðarmenn
fljótlega í kjölfarið. „Þetta gekk frá-
bærlega vel. Byltingin var slík að
bátaútvegurinn var vélvæddur á
næstu tíu árum. Íslendingar hurfu
frá árinni í útgerð vélbáta og síðan
hafa þær þróast og stækkað eins og
annað.“
Vélvæðing útgerðarinnar hafði
ekki aðeins áhrif til sjávar heldur
gætti þeirra einnig í sveitum lands-
ins. Og ekki tóku allir þróuninni
fagnandi. Jón Páll segir að fram á
20. öldina hafi útgerðin verið fyrst
og fremst í höndum bænda. „Bænd-
urnir reru með sínum húskörlum og
kaupamönnum og þannig vildu
ýmsir hafa það áfram. Þetta var
upphafið að hnignun landbúnaðar-
ins og veldi sveitanna. Með þessu
hófst atvinnubylting, sveitirnar fóru
að dragast saman því sveitaheimilin
höfðu ekki sömu tekjur og áður. Fólk
þyrptist því til þorpanna.“
Eins og við var að búast tók Einar
K. Guðfinnsson vel á móti Guð-
mundi og Jóni Páli og þakkaði fyrir
myndina. Henni verður væntanlega
fundinn góður staður í ráðuneytinu.
bjorn@frettabladid.is
Mynd af Stanley á vegg í ráðuneytinu
STANLEY FRÁ ÍSAFIRÐI Jón Páll Halldórsson, Einar K. Guðfinnsson og Guðmundur Guðmundsson í sjávarútvegsráðuneytinu í gær. Stanley
var fyrsti íslenski vélbáturinn en eigendur hans, Árni Gíslason og Sophus J. Nielsen, sigldu honum fyrst fyrir vélarafli í nóvember 1902.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Það er allt ágætt að frétta nema
hvað það er orðið snjóþungt
hérna í Mjófirði,“ segir Guðleifur
Einarsson, húskarl á Brekku.
„Annars er ég nýkominn að sunn-
an. Ég var hjá lækni á Akranesi og
þurfti líka að endurnýja ökuskír-
teinið. Þó ég sé 75 prósent öryrki
þá er ég að reyna að gera upp
Massey Ferguson traktor. Þetta
er líklegast önnur vélin sem kom
hingað í Mjóafjörð. En þetta getur
reynst manni erfitt sem hefur
mátt þola ellefu læknamistök
og ofan á allt lenti ég í því að
einhver þrjóturinn keyrði aftan á
mig á Holtavörðuheiði í fyrravor.
Sá kom svo að mér í klesstum
bílnum og þegar hann gat ekki
opnað hjá mér hurðina hvarf hann á
braut, þrjóturinn sá. En ég lét lögguna
í Borgarfirði vita og þeir höfðu hendur
í hári hans.“
Eins og lesendur eflaust muna var
tilkynnt fyrir skemmstu að Sæsilfur
sem er með fiskeldi í Mjóafirði ætlaði
að leggja alla starfsemi þar niður.
„Menn bera sig samt vel, það er ekkert
annað hægt,“ segir Guðleifur. „Þetta er
náttúrlega ekkert auðvelt fyrir fólkið en
það gengur svona. Hins vegar líst mér
ekkert á sameininguna sem fyrirhuguð
er við Fjarðabyggð. Svo þykir mér það
sneypa að Árni Magnússon skuli ekki
standa sína plikt og búa þannig um
hnútana að Jón Kristjánsson getur ekki
gert það heldur. Það virðist enginn
geta skilað sínu verki nokkur staðar.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐLEIFUR EINARSSON HÚSKARL Á BREKKU Í MJÓAFIRÐI
Mátti þola ellefu læknamistök
HREINN HLÍFAR GOTTSKÁLKSSON
DÆMDUR Í EINS ÁRS FANGELSI
– VANN Á VEGAS EN FLÚÐI ÚT
Á LAND EFTIR NAUÐGUNINA
– „ÞETTA ER LOKSINS BÚIÐ,“
SEGIR FÓRNARLAMBIÐ
– „HVER EINASTA FRUMA Í MÉR
ER SAKLAUS,“ SEGIR HREINN
NAUÐGAÐI
ÁFENGISDAUÐRI
NEKTARDANSMEY
DV-2x15 30.3.2006 21:02 Page 1