Fréttablaðið - 31.03.2006, Blaðsíða 28
[ ]
Ódýr matur og góður
Góður matur þarf ekki að
kosta mikið. Hægt er að galdra
fram góða máltíð án mikillar
fyrirhafnar og án þess að þurfa
að standa í eldhúsinu í marga
klukkutíma.
Hér á eftir fer einföld uppskrift
sem allir, jafnvel klaufskustu pip-
arsveinar, ættu að geta fylgt eftir.
Innihaldið er langt í frá heilagt og
hægt er að skella hverju sem er í
skálina. Sem kjöt má til dæmis
nota allt frá Bónusskinku til
dýrustu kjötstykkja fyrir sælkera.
Skerðu papriku í strimla.
Skerðu hvítlauk eftir smekk í þunnar
skífur. Ekki skera við nögl því hvít-
lauksbragð er gott en hafðu hemil á
þér, lyktin er sterk.
Skerðu lauk niður í stór brot.
Skerðu það kjöt sem þig langar í í
strimla.
Skelltu öllu á pönnu og steiktu
í stuttan tíma. Því næst
tekurðu dós með niðursoðnum
afhýddum tómötum og skellir
á pönnuna. Settu smá slurk af
vatni með. Láttu þetta malla
í smá tíma við ágætis hita en
kosturinn við þennan rétt er að hann
getur kraumað eins lengi og hver vill.
Kryddið með til dæmis basiliku eða
einhverju sem til er í kryddhillunni.
Sjóddu penne pasta (fylltu pott
af vatni, láttu suðuna koma upp,
bættu við salti og einni til tveimur
matskeiðum af olíu. Settu svo pastað
út í og láttu sjóða þangað til það er
hæfilega lint. Það stendur yfirleitt á
pastaumbúðum hversu langan tíma
það tekur).
Núna er maturinn
tilbúinn. Bragðast vel,
lítur vel út og er ódýr og
frekar einfaldur.
Það þarf ekki
að vera dýrt að
borða góðan
mat.
Avókadó, eða lárpera upp á
íslensku, hefur átt vaxandi vin-
sældum að fagna hér á landi.
Hún er upphaflega frá Mið-
Ameríku en vinsældir hennar
jukust ekki fyrr en á miðri 20.
öld.
Lárperan er oft flokkuð sem græn-
meti en hún er í raun og veru
ávöxtur, eins og endingin pera
bendir til. Hún vex á trjám sem
kallast avocado og dregur þaðan
nafn sitt. Lárperan þroskast ekki
fullkomlega á trénu heldur fellur
hún niður og verður þar fullþrosk-
uð. Stundum eru perurnar þó tínd-
ar af trjánum. Hér á landi eru per-
urnar oftast mjög lítið þroskaðar í
búðunum og því gott að kaupa þær
með fyrirvara og geyma þær í
nokkra daga. Ávöxturinn er orð-
inn fullþroskaður þegar hann er
orðinn eilítið mjúkur.
Bragðið er oft mismunandi og
fer það eftir olíumagni í ávextin-
um hvernig hann bragðast. Hýðið
er
ekki vænlegt til átu og er ávöxt-
urinn bestur ferskur og hentar
ekki í hitaða rétti. Ef geyma þarf
rétti sem innihalda ferska lárperu
er gott að setja steinana úr perun-
um í réttinn, þá geymist hann
betur. Lárperan inniheldur ellefu
vítamíntegundir og fjórtán teg-
undir steinefna og er því bráð-
holl.
Íslendingar þekkja líklega
lárperuna best í formi Guacamole-
salsa sem oft er notað með
mexíkóskum mat, en sú sósa er að
mestu leyti gerð úr henni. Einnig
er hún vinsæl til framleiðslu á
andlitskremum enda drekkur
húðin í sig olíuna og vítamínin úr
henni. Mjög gott er að nota lárper-
una í salöt og fylgir hér uppskrift
að ljúffengu lárperusalati.
Saxið tómata og lauk smátt,
skrælið lárperuna og fjarlægið
kjarnann. Saxið peruna niður í
um það bil 1 cm teninga.
Rífið kóríanderlaufin og
hrærið öllu saman.
Látið standa í ísskáp
í klukkustund og
hrærið vel upp
í blöndunni
áður en hún er
borin fram.
Salatið verður
því betra sem
peran er
mýkri. Berið
fram sem
meðlæti
með kjöti
eða fiski, eða
eitt og sér með
brauði.
Hollur ávöxtur
í andlitskrem
Kíví er einn C-vítamínríkasti ávöxturinn. Hann hét upprunalega
kínverskt gæsaber en vegna kalda stríðsins var nafninu breytt í
markaðsskyni.
LÁRPERUSALAT:
4 tómatar
1 lítill rauðlaukur
1 vel þroskuð (mjúk) lárpera
knippi af ferskum kóríander.
Veislukaffið frá Te og kaffi er
nú fáanlegt aftur en það er
komið í fallegar límónugrænar
umbúðir.
Veislukaffi er
árstíðabundin
kaffitegund hjá Te
og kaffi og er nú
fáanlegt í annað
sinn. Í kaffið er notuð
blanda úrvals kaffi-
bauna frá ólíkum
kaffiræktunarsvæð-
um, meðal annars Ník-
aragva og Kosta Ríka.
Veislukaffið hefur þétta
og góða fyllingu með
eftirbragði af rjóma-
súkkulaði. Kaffið er
góður valkostur í
allar veislur, hvort
sem tilefnið er ferm-
ing eða brúðkaup, en þess má einn-
ig njóta í rólegheitum í fámennum
og góðum félagsskap heima við.
Kaffi í allar
veislur
Veislukaffið
frá Te og kaffi
er nú komið í
fallegar græn-
ar umbúðir.
4 kjúklingabringur
4 sneiðar gæðaskinka að eigin vali
(sveitaskinka eða parmaskinka)
300-500 g parmesanostur (má einnig
nota gráðost)
1 dós mascarpone ítalskur ostur
15-20 g smjör til steikningar
salt og pipar
hálfur sítrónubörkur, rifinn
Bringurnar eru snöggsteiktar í smjörinu.
Skinkan er sett í sneiðum yfir. Parmesan-
osturinn er skorinn í grófa bita og settur
á pönnuna ásamt mascarpone-ostinum.
Lokið sett á pönnuna og látið malla við
lágan hita í tólf mínútur. Kryddað til eftir
smekk. Sítrónuberkinum bætt við og látið
malla í tvær mínútur.
Gott er að bera fram réttinn með klettasal-
ati og einni peru skorinni í smáa bita með
parmesanosti yfir.
uppskrift }
Parmesan-
kjúklingur Ásdísar
Ver› fyrir einrétta Ver› fyrir tvírétta
Okkar róma›a humarsúpa 990
Steiktur skötuselur 3.390 4.390
me› hvítvínssósu
Kjúklingabringa 2.950 3.890
,,a la Italiana“
Lambafillet 3.390 4.390
me› sherrybættri sveppasósu
Nautalundir
me› Chateubriandsósu 3.700 4.690
Súkkula›ifrau› 790
Einnig úrval annarra rétta á ,,a la Cartse›li“
~
~
~
~
~
Þriggja rétta matseðill
Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27-29
Borðapantanir í síma 562 1988 • Madonna síðan 1987 • www.madonna.is
Fá›u sætt bros
að launum!
Skeifunni 11d - 108 Reykjavík
Reykjavíkurvegur 64
220 Hafnarfir›i
www.aman.is
25-6
0%
AFS
LÁT
TUR
Lokadagur
útsölunnar
550 5000
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið